Vikan - 15.06.1944, Page 42
42
VIKAN, nr. 23—24, 1944
ENDURREISN LÝDVELDIS.
Framhald af bls. 40.
Þegar martröð stjórnarfarslegra,r kúg-
unar hvíldi þyngst á Islendingum, var sem
íslenzkuna þryti varnir gegn danskri
áleitni. Stjórnarfarsleg og efnahagsleg
niðurlæging þjóðarinnar hélzt í hendur
við niðurlægingu tungunnar. En áður en
hin stjórnmálalega sjálfstæðisbarátta var
hafin, hófst baráttan fyrir sjálfstæði tung-
unnar. Bessastaðakennarar og Fjölnis-
menn höfðu rutt brautina á þessu sviði,
áður en hin eiginlega sjálfstæðisbarátta
hófst. Og síðan hefir hlut tungunnar verið
haldið uppi í landinu af ótalmörgum, sem
átt hafa smekk og þekkingu til þess að
verja hana og vernda gegn allri erlendri
áleitni. Það er orðið gleðilegt tákn tím-
anna, sem nú eru að líða, að þótt þeir, sem
minnst hugsa og minnstu vilja fórna fyrir
andleg verðmæti þjóðar sinnar, geri ekk-
ert til að vanda mál sitt, þá eru hundrað
sinnum fleiri Islendingar, sem þrá það að
geta beitt þjóðtungu sinni í ræðu og
riti, þannig, að vel sé og gera það — og
með þeim árangri að íslenzk tunga er
betur rituð nú en nokkuru sinni fyrr, síð-
an á -gullöld bókmenntanna. Og þetta er
eitt af fjöreggjum þess lýðveldis, sem nú
er stofnað, því:
„tungan geymir
í tímans straumi
trú og vonir
landsins sona“.
Knútur Arngrímsson.
Jón Sigurðsson
í rœðu og riti
Bókaútgáfan Norðri h.f. gefur út sér-
lega myndarlegt rit með ofangreindu nafni
og er bókin nýkomin í verzlanir. Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason hefir séð um útgáfuna og
byrjar bókin á ritgerð eftir hann um Jón
Sigurðsson. Bókin er myndum prýdd og
falleg að ytri frágangi, en um innihaldið
er ekki að efast, því það eru ræður og rit-
gerðir eftir forsetann. Jón Sigurðsson var
fyrst kosinn á þing árið 1844 og er því
bókin gefin út á aldarafmæli þingmennsku
hans. — Auk ritgerðarinnar, sem áður er
getið, skrifar Vilhjálmur Þ. Gíslason líka
formálsgreinar fyrir hverjum höfuðþætti
bókarinnar.
Dagskrá þjóðhátiðarhaldanna
lálÉflioUin á Þinpáta og Bsjiijivil
Þjóðhátíðamefnd Lýðveldishátíðar-
haldanna hefir gengið frá dagskrá
hátíðahaldanna á Þingvöllum 17. júní
og hér í Reykjavík þann 18. Fer dag-
skráin hér á eftir:
17. júní.
1 Reykjavík.
Kl. 9.00. Forseti sameinaðs Alþing-
is leggur blómsveig við styttu Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli og flytur
ræðu. Lúðrasveit leikur: „ó, guð
vors lands." — Stjórnandi Albert
Klahn.
Á þingvöllum (Lögbergi).
Kl. 1.15. Ríkisstjóri, ríkisstjóm og
alþingismenn ganga til þingfundar að
Lögbergi, niður Almannagjá. Um
leið og gengið er að Lögbergi, leikur
lúðrasveit: „Öxar við ána".
Kl. 1.30. Forsætisráðherra setur
hátíðina. Guðsþjónusta. Sálmur: „Þín
miskunn, ó, guð“. Biskupinn yfir Is-
landi flytur ávarp og bæn. Sálpiur:
„Faðir andanna."
Kl. 1.55. Þingfundur settur. Forseti
sameinaðs Alþingis lýsir yfir gildis-
töku stjórnarskrár lýðvcldisins.
Kl. 2.00. Kirkjuklukkum hriugt um
land allt í 2 mínútur. Einnar mínútu
þögn á eftir og samtímis umfcrðar-
stöðvun um land allt. Þjóðsöngurinn.
KI. 2.10. Forseti sameinaðs Alþing-
is flytur ræðu.
Kl. 2.15. Kjör forseta fslands. For-
seti fslands vinnur eið að stjórnar-
skránni. Forseti lsiands ávarpar
þingheim. Þingfundi slitið. Sungið:
„Island ögmm skorið." Kveðjur full-
trúa erlendra ríkja. Fánahylling:
„Fjallkonan" ávarpar fánann. Sungið:
„Rís þú, unga Islands merki". Hlé.
Á Þingvöllum (Völlunum).
Kl. 4.30. Formaður þjóðhátíðar-
nefndar flytur ávarp. Fulltrúi Vestur-
Islendinga, prþf. Richard Beck, flyt-
ur kveðju. Lúðrasveit leikur: „Þótt
þú langförull legðir —“ (Stephan G.
Stephansson. — Sigv. Kaldalóns).
Þjóðhátíðarkór Sambands islenzkra
karlakóra syngur. — Stjórnendur:
Jón Halldórsson (aðalsöngstjóri),
Sigurður Þórðarson, Hallur Þorleifs-
son og R. Abraham.
Emil Thoroddsen: „Hver á sér
fegra föðurland?" (Hulda). „Island
farsælda frón,“ íslenzkt tvísöngslag.
Sveinbj. Sveinbjörnsson: „Móðurmál-
ið“ (Gísli Jónsson). Þórarinn Jóns-
son: „Ár vas alda" (úr Völuspá).
Sveinbj. Sveinbjörnsson: „Lýsti sól“
(Matth. Joch.). Sigfús Einarsson:
„Þú álfu vorrar" (Hannes Hafstein).
Kl. 5.00 Benedikt Sveinsson, fyrv.
forseti neðri deildar Alþingis, flytur
ræðu.
Kl. 5.15 Þjóðkórinn syngur undir
stjórn Páls Isólfssonar tónskálds
eftirfarandi ættjarðarljóð: „Ég elska
yður, þér Islands fjöll." „Fjaliadrottn-
ing, móðir mín.“ „Þið þekkið fold
með blíðri brá.“ „Ég vil elska mitt
land.“
Kl. 5.25. Hópsýning 170 fimleika-
manna undir stjórn Vignis Andrés-
sonar fimleikakennara.
Kl. 5.40. Þjóðkórinn syngur undir
stjóm Páls Isólfssonar tónskálds
ef tirfarandi ættjarðarljóð: „Nú
vakna þú, ísland.” „Ó, fögur er vor
fósturjörð." „Lýsti sól stjörnustól."
Kl. 5.50 Flutningur kvæða. Bryn-
jólfur Jóhannesson leikari flytur
hátíðarljóð Huldu. Jóhannesson úr
Kötlum flytur hátíðarljóð sitt.
Kl. 6.00. Islandsglima. Stjórnandi
Jón Þorsteinsson, fimleikakennari. Að
henni lokinni verður sigurvegaranum
afhentur verðlaunabikar ríkisstjórn-
arinnar og glímubelti 1. S. 1.
Kl. 6.30. Þjóðhátíðarkór Sambands
íslenzkra karlakóra syngur. Stjórn-
endur: Jón Halldórsson, Sigurður
Þórðarson, Hallur Þorleifsson og R.
Abraham. — Jón Laxdal: „Vorvísur"
(Hannes Hafstein). Bjarni Þorsteins-
son: „Ég vil elska mitt land“ (Guðm.
Magnússon). Björgvin Guðmundsson:
„Heyrið vella" (Grímur Thomsen).
Sig(valdi Kaldalóns: „Island ögrum
Frá Akratiesi.
Hinn 16. júní
1944 eru liðln 80
ár frá því að lög-
giltur var verzl-
unarstaður á
Akranesi. Fimm
fyrstu verzlanim-
ar voru allar sett-
ar á fót við Lamb-
hússund. en það
var hin löggilta
höfn. Sundið sést
á myndinni. Hún
er tekin úr Vest-
urflöt yfir sundið.
Sjást bryggjur á
myndinni og
verzlunarhúsin,
svo og kirkjan
og fleiri hús, en
Akrafjall í bak-
sýn.
skorið" (Eggert Ólafsson), einsöng
syngur Pétur Á. Jónsson óperu-
söngvari.
Kl. 6.45. Fimleikasýning, úrvals-
flokkur 16 kvenna. Stjórnandi: Jón
Þorsteinsson.
Kl. 7.00. Þjóðkórinn syngur undir
stjórn Páls Isólfssonar tónskálds:
„Þú nafnkunna landið." „Drottinn,
sem veittir." „Island ögrum skorið."
Lúðrasveit og þjóðkórinn leika og
syngja: „Ó, guð vors lands.“
Kl. 9.00. Fimieikasýning 16 karla
— úrvalsfiokkur. Stjórnandi Davið
Sigurðsson, iþróttakennári. Lúðra-
sveit leikur.
18. júní.
1 Reykjavík.
Kl. 1.30. Skrúðganga hefst við Há-
skólann. Haldið verður um Hring-
braut, Bjarkargötu, Skothúsveg, Frí-
kirkjuveg, Vonarstræti, Templara-
sund, fram hjá Alþingishúsinu,
Kirkjustræti, Aðalstræti, Austur-
stræti og staðnæmst fyrir framan
stjórnarráðshúsið.
Á svölum Alþingishússins tekur
forseti Islands kveðju fylkingarinnar.
— Lúðrasveit gengur í fararbroddi
og leikur ættjarðarlög.
Kl. 2.00. Lúðrasveit leikur nokkur
lög fyrir framan Stjórnarráðshúsið.
Kl. 2.15. Forseti Islands flytur
ræðu til þjóðarinnar. Að henni lok-
inni leilcur lúðrasveit: „Island ögrum
skorið".
Ávörp formanna þingfiokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn: Ólafur Thors
alþm.
Framsóknarflokkurinn: Eysteinn
Jónsson alþm.
Sameiningarflokkur alþýðu, sósia-
listaf lokkurinn: Einar Olgeirsson
alþm.
Alþýðuflokkurinn: Haraldur Guð-
mundsson alþm.
Á eftir hverju ávarpi verður leikið
ættjarðarlag.
Að lokum leikur lúðrasveitin þjóð-
sönginn.
Kl. 3.30—4.30. Þjóðhátíðarkór Sam-
bands íslenzkra karlakóra syngur I
Hljómskálagarðinum.
Kl. 10.00—11.00. Lúörasveit leikur
í tlljómskálagarðinum.
Kl. 4 verður opnuð í húsakynnum
Mcnntaskólans; sögusýning úr frelsis-
og menningarbaráttu fsiendinga á
liðnum öldum.