Vikan - 31.08.1944, Qupperneq 1
Söngstjóri
austan hafs og vestan.
Brynjólfur Dorláksson fyrrum Dómkirkjuorganisti cg sörgstjóri hefir unnið mikiö
og merkilegt starf í págu
Það var hann, sem um skeið var
athafnamestur og áhrifamestur
við að móta söngsmekk okkar Is-
lendinga.
Brynjólfur Þorláksson er fæddur 22.
maí 1867 í Nýjabæ á Seltjarnamesi,
sonur hjónanna Þorláks bónda Þór-
kellssonar og Þórunnar Sigurðardóttur, sem
lengi bjuggu á Bakka í sömu sveit. Var Þor-
lákur faðir hans söngmaður góður og fleiri
menn í ætt hans. Ungur að aldri fekk hann
ritarastarf í skrifstofu landshöfðingjans
og var þar full tuttugu ár. En hann var
kominn um tvítugt, er hann fyrst átti kost
á að nema söngfræði og hljóðfæraslátt.
Þá voru aðrir tímar hér á landi en nú
em og tækifærin margfalt færri, sem img-
ir menn áttu til að svala fróðleiksþorsta
sínum, bæði á þessu sviði og öðrmn. Hann
lærði um tíma söngfræði og harmoníum-
Jeik hjá Jónasi Helgasyni organista, en
síðan að leika á píanó hjá frú Önnu Peter-
sen. Árið 1897 fekk hann utanfararstyrk
hjá Alþingi og dvaldi síðan veturinn 1898
—99 í Kaupmannahöfn og lærði orgelleik
hjá John. H. Nebelong, organista við St.
Jóhanneskirkju, en tónfræði hjá P.
Rasmussen, organista við Garnisonkirkj-
una. Enda þótt þetta myndi nú á dögum
þykja stuttur námstími og ónógur, þá er
það alveg áreiðanlegt, að á þessum skóla
voru ekki vindhöggin slegin, því að sá grund-
völlur, sem Brynjólfur lagði með námi
sínu, var traustur, og byggði hann síðan
ofan á hann með sjálfsnámi og æfingum
og varð aðdáun manna á söngstjóm hans
og organslætti alveg einróma.
* Framhald á bls. 3.
íslenzkrar söngmenntar