Vikan - 31.08.1944, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 35, 1944
3
Smm a m 0 m
ongstfori
austan hafs og vestan.
Framh. af forsíðu.
Um árslok 1900 tók Brynjólfur við söng-
kennslu í Menntaskólanum af Steingrími
Johnsen, og við andlát Jónasar Helgasonar
1903 tók hann auk þess við söngkennslu
í barnaskólanum og varð jafnframt organ-
leikari við Dómkirkjuna. Öll þessi störf
hafði hann á hendi þar til hann fór af
landi burt vestur um haf til Kanada í
ársbyrjun 1913.
Á þessum tíma fellur aðalstarf Bryn-
jólfs fyrir sönglíf og söngmenningu okkar
hér á landi.
Einn þátturinn í því er söngkennslan í
skólunum. Um söngkennslu hans í Mennta-
skólanum ætla ég ekki að vera langorður.
Eitt er víst, að „þá var söngur í skóla, og
þá útskrifuðust syngjandi stúdentar“ —
Þannig fannst mér það reyndar líka vera
á mínum skólaárum, og þannig er þetta
sjálfsagt enn. En ég minnist þess, að eldri
skólapiltarnir voru stoltir af söng sínum
hjá Brynjólfi og fannst hann betri en
okkar yngri piltanna. — Brynjólfur þótti
einkar laginn að kenna börnum söng. Var
jafnan fjölmennt við söngpróf í barna-
skólanum á vorin, og þótti mönnum unun
að heyra börnin syngja undir stjórn hans.
Ég vil geta þess hér, að ég hefi heyrt
Vestur-lslending tala með aðdáun um
Söngfélag'ið „Kátir piltar“. Myndin tekin rétt eftir aldamótin. — Aftasta röð frá vinstri:
Valdimar Ottesen, Ólafur Rosenkranz, Björgúlfur Ólafsson, Þorkell Þorláksson, Halldór Jónas-
son, Herbert Sigmundsson, Hendrik Erlendsson, Jón Johannessen. — Miðröð: Jón Aðils, (ein-
söngvari), Sigvaldi S. Kaldalóns, Brynjólfur Þorláksson söngstjóri, Guðmundur Pétursson, Gísli
Guðmundsson. — Fremst: Jón Rosenkranz, Ólafur Björnsson, Guðmundur Gamaliélsson.
söng barnaflokka undir stjórn Brynjólfs
í Winnipeg, en starf hans þar vestra mun
mestallt hafa legið á sviði söngsins. Þar
stjórnaði hann meðal annars karlakór Is-
lendinga í Winnipeg, og er Islendingar
minntust hálfrar aldar dvalar sinnar í
Kanada árið 1925 með hátíðahöldum að
Gimli, hafði Brynjólfur á hendi stjórn
blandaðs kórs og unglingakórs, sem vöktu
á sér mikla athygli; birtust meðal annars,
auk lofsamlegra ummæla um söngstjórann,
myndir af báðum söngflokkunum í ýmsum
helztu blöðum Kanada. Víðsvegar um
Islendingabyggðir Kanada stofnaði Bryn-
jólfur og starfrækti ungmennasöngflokka.
Framh. á bls 7.
Kórinn, sem söng við móttöku Friðriks áttunda 1907 í Alþingishúsinu. Þar voru sungin hátíðaljóð Þorsteins Gíslasonar, sem Sveinbjörn Sveinbjörns-
son hafði samið lag við. Brynjólfur Þorláksson stjórnaði söngnum. — Aftasta röð frá vinstri: Pétur Jónsson, Jón Þ. Thoroddsen, Pétur
Lárusson, Viggó Björnsson, Magnús Erlendsson, Sigurður Þorsteinsson, Einar Viðar, Valdimar Ottesen, Símon Þórðarson, Pétur Halldórsson. Nœst
aftasta röð: Jörgen Þórðarson, Hendrik Erlendsson, séra Bjarni Hjaltesteð, Martin Bartels, Benedikt Gröndal Þorvaldsson, Jakob Guðmundsson, Bjarni
Snæbjörnsson, Þorkell Þorláksson. Aftan við bekkinn: Elín Magnúsdóttir, Margrét Þórðardóttir, Helga Magnúsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Nikoiina
Sigurðardóttir, Benediktína Benediktsdóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir, Helga Claessen, Guðrún Helgadóttir, Jón Rosenkranz, Herbert Sigmundsson.
Sitjandi: Elín Laxdal (einsöngvari), Geir Sæmundsson (einsöngvari), Sveinbiöm Sveinbiömsson. tónskáld. Bryniólfur Þorláksson söngstjóri, Ásta
Einarsson (annaðist undirleik), Fremsta röð: Jón Halldórsson, Matthildur E. Kvaran, Ingibjörg Helgadóttir, Ragnheiður Þórðardóttir, Magnþóra Magnús-
•dóttir, Hólmfriður Halldórsdóttir, Ágústa Thors, Þorsteinn Jónsson.