Vikan


Vikan - 14.04.1949, Side 12

Vikan - 14.04.1949, Side 12
12 „Jæja?“ hrópaði hún. „Jæja? Hvað viljið þér nú? Eruð þið ekki búnir að pína mig nóg? Eruð þið ekki búnir að láta mig svíkja veslings Derek? Hvers óskið þið frekar?“ „Aðeins svars við einni spurningu, ungfrú. Þegar þér komuð inn i klefann til frú Kettering eftir að lestin fór frá Lyons —“ „Hvað?“ Poirot leit á hana mildum ásökunaraugum og tók aftur til máls. „Ég sagði, þegar þér komuð inn í klefa frú Kettering —“ „Ég kom þangað aldrei." „Og funduð hana dauða —“ „Ég kom þangað aldrei." „Hvem and ....!“ Hann vatt sér reiðilega að henni og hrópaði framan í hana, og hún hörfaði undan honum. „Ætlið þér að ljúga að mér? Ég skal segja yður, að ég veit eins vel hvað skeði og ef ég hefði verið viðstaddur sjálfur. Þér fóruð inn í klefann og funduð hana dauða. Ég veit það. Það er hættulegt að ljúga að mér. Gætið að yður, ungfrú Mirella." Augu hennar urðu flöktandi undan augnaráði hans og loks leit hún niður fyrir sig. „Ég —ég —“ byrjaði hún, en þagnaði svo aftur. „Það er aðeins eitt, sem ég er ekki viss um,“ sagði Poirot. „Ég er ekki viss um, hvort þér hafið fundið það sem þér voruð að leita að eða —“ „Eða hvað?" „Eða hvort einhver annar varð á undan yður.“ „Ég svara ekki fleiri spurningum," æpti dans- mærin. Hún sleit sig lausa úr höndum Poirot, og fleygði sér á gólfið æpandi og með grátsog- um. Þjónustustúlka kom í ofboði hlaupandi inn. Hercule Poirot yppti öxlum, lyfti augabrún- um og gékk stillilega út úr herberginu. En hann virtist ánægður. 30. KAFLI. Ungfrú Viner fellir dóm. Katrín leit út um gluggann á svefnherbergi ungfrú Viner. Það var rigning, ekki hellirign- ing, en jafn og þéttur úði. Glugginn sneri út að forgaði og gata lá niður að hliðinu með blóma- beð til beggja handa, þar sem síðbúnar rósir og ljósrauðar hýasintur voru í blóma. Ungfrú Viner lá í stóru rúmi. Bakki með leifum af morgunverði hafði verið ýtt til hliðar, og hún var önnum kafin að opna bréfin sín. Katrín var með opin bréf í höndunum og var að lesa það í annað sinn. Það var sent frá Ritz gistihúsinu í París. „Kæra ungfrú Katrín," byrjaði það, — „ég vona að þér séuð við góða heilsu, og afturkoman í enska vetrarloftið hafi ekki fengið of mikið á yður. Um mig er það að segja, að ég held áfram athugunum mínum af mikilli elju. Ég er sannarlega ekki í neinni orlofsferð hér. Ég kem til Englands mjög bráðlega, og vonast til að verða þá þeirrar ánægju aðnjótandi að hitta yður enn einu sinni. Verður mér ekki að von minni? Ég mun skrifa yður, þegar ég kem til London. Þér munið, að við erum samherjar í þessu máli? Já, ég er viss um, að þér munið það. Ég fullvissa yður um einlæga vináttu mína og virðingu. Hercule Poirot." Katrín hnyklaði lítið eitt brúnirnar. Það var eins og eitthvað í bréfinu vekti hjá henni óljósan grun. „Já, sei, sei, skemmtiferð kórdrengja," sagði irngfrú Viner. „Það ætti að skilja Tommy Saunders og Albert Dykes eftir, að öðrum kosti legg ég ekkert fram. Ekki veit ég, hvað þeir drengir halda að þeir séu að gera í kirkju á sunnudögum." „Ég veit, að þeir eru slæmir," samsinnti Katrín. Hún opnaði næsta bréf sitt og roðnaði þegar hún sá það. Rödd ungfrú Viner virtist koma langt að. „Ég ég sagði við hana: „Ég held nú ekki. Það vill svo til, að Tamplin greifafrú er frænka ung- frú Grey." Hvað segið þér um það?“ „Voruð þér að taka minn málstað? Það var fallega gert af yður." „Þér getið kallað það því nafni, ef þér viljið. Ég gef ekkert fyrir titla. Mér er sama þó að hún sé kona prestsins, hún er eins og lævís kisa. Hún var að gefa í skyn, að þér hefðuð keypt yður inn í félagsskap heldra fólsksin." MAGGI OG RAGGI Teikning eftir Wally Bishop. 1. Raggi: Ég er með bréf frá kennaranum míuum, afi. 2. Afi: Ég furða mig á þér, Raggi. Við skulum sjá, hvað segir hann hérna? 3. Afi: Það er ekki gott að lesa skrift kenn- arans. Ég verð að játa, að ég get ekki lesið þetta! Raggi: Ég veit svo sem, hvað hann hefur skrifað . . . 4. Raggi: . . . hann er að kvarta undan því, hvað ég skrifa illa! VTKAN, nr. 15, 1949 FELUMYND ■*) Sjáið þið annan mann á myndinni? „Hún hefur ef til vill ekki haft með öllu rangt fyrir sér.“ „Það þarf ekki nema horfa á yður,“ hélt ung- frú Viner áfram. „Hafið þér komið aftur eins' og forskrúfuð hefðarmær, eins og vel gat átt sér stað? Nei, þér eruð eins skynsamar og blátt áfram og þér voruð, í góðum og hlýjum sokk- um og þokkalegum skóm. Ég minntist einmitt á það við Ellen í gær. „Ellen," sagði ég, „litið á imgfrú Grey. Hún hefur verið að skemmta sér með ýmsu af helzta fyrirfólki landsins, og er hún eins og þér, með pils upp á hnjám og gagnsæjum silkisokkum og skóm eins og stult- um?“ “ Katrín brosti með sjálfri sér; Það hafði sýni- lega borgað sig að haga sér í samræmi við for- dóma ungfrú Viner. Garrila konan hélt áfram með auknum ákafa. „Mér hefur verið það mikill léttir, að þér hafið ekki látið glepjast. Um daginn var ég að leita í blaðaúrklippunum mínum. Ég á nokkrar úr- klippur um Tamplin greifafrú og herspítalann hennar og ýmislegt fleira, en ég get ekki fundið þær. Mér þætti vænt um, ef þér vilduð gá að þeim, væna mín; þér sjáið betur en ég. Þær eru í öskju í skrifborðsskúffunni." Katrín leit á bréf, sem hún hélt á, og ætl- aði að fara að tala, en hætti við það, og fór í þess stað að leita í úrklippunum í öskjunni, sem hún fann í skrifborðsskúffunni. Síðan hún kom aftur til St. Mary Mead hafði hún í hjarta sínu fyllzt aðdáunar á staðfestu og’ þreki gömlu konunnar. Hún fann, að það var aðeins litið sem hún gat gert fyrir þessa gömlu vin- konu sína, en hún vissi af gamalli reynslu, hve smámunirnir gátu skipt miklu máli fyrir gamalt fólk. „Hérna er ein,“ sagði hún von bráðar. „Greifa- frú Tamplin, sem hefur breytt húsi sínu í Nice í spítala fyrir liðsforingja, varð nýlega fyrir því óhappi, að gimsteinum hennar var stolið. Meðal þeirra voru nokkrir mjög frægir smaragð- ar, ættargripir Tamplinfjölskyldunnar." „Það hafa sennilega verið eftirlíkingar," sagði ungfrú Viner; „margir af gimsteinum þessara hefðarkvenna eru ekki annað en eftirlíkingar." „Hérna er önnur," sagði Katrin. „Mynd af henni. „Ljómandi falleg mynd af Tamplin greifa- frú og dóttur hennar Lenox." " „Lofið mér að sjá,“ sagði Viner. „Það er víst ekki hægt að sjá mikið af andliti barnsins. Það er líka sjálfsagt eins gott. Það er margt öfugt og umsnúið I þessum heimi, og fallegar mæður eignast oft ljót böm." Katrín hló.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.