Vikan


Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 20

Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 20
KJORIÐ TÆKIFÆRI TIL AD LÆRA AÐ KOMA FRAM - segir Brynja Valdís Gísladóttir, síðasti þátttakandinn í forsíðustúlkukeppninni TEXTI: HELGA MÖLLER UÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON FÖRÐUN: KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR MEÐ NO NAME SNYRTIVÖRUM HÁRGR.: HÁR OG FÖRÐUN, FAXAFENI Brynja Valdís Gísladóttir er áttundi og síðasti þátttakandinn sem við kynnum til leiks í forsíðustúlku- keppninni. Svo skemmtilega vill til að hún er fædd 6. júní, sama dag og stalla hennar og nafna, Brynja Hjörleifsdóttir, sem kynnt var í næst síðasta tölublaði Vikunnar. Að vísu eru nokkur ár á milli þeirra því Brynja Valdís er fædd 1973, er nítján ára gömul. Tilviljun réð því að hún fæddist í New York, þar sem faðir hennar vann um tíma. Fjölskyldan fluttist heim þegar Brynja var nokkurra mánaða gömul en fyrir bragðið hefur hún bandarískan ríkisborg- ararétt, samhliða þeim ís- lenska. Brynja er alin upp í Reykja- vík og hefur búið á nokkrum stöðum í borginni. Ýmislegt hefur drifið á daga hennar f gegnum árin, ef marka má af öllum þeim áhugamálum sem hún hefur átt - á ekki lengri ævi en raun ber vitni. Þar má nefna frjálsar íþróttir, fimleika, ballett, tónlist, ferðalög og fleira enda segist Brynja vera félagslynd og þannig gerð að vilja hafa margt í takinu í einu. Um þessar mundir æfir hún alls kyns dans í Kramhúsinu, ásamt því að sækja tíma í leiklist á sama stað. „Ég er í afró-, djass- og funk-dönsum. Það er ofsalega gaman,“ seg- ir hún og áhuginn leynir sér ekki. Ætlar hún að leggja dans- inn eða leiklistina fyrir sig? Vill hún kannski enda á sviði eins og móðir hennar, sem er leik- kona? „Ég er bara forvitin. Á mað- ur ekki að reyna sem flest í líf- inu?“ svarar Brynja að bragði. „Annars hef ég fleiri áhugamál og langar hugsanlega að starfa við fjölmiðla í framtíð- inni, kannski verða blaðamað- ur. Helst vildi ég geta heim- sótt önnur lönd í því starfi - fara á staðinn þar sem eitt- hvað er að gerast og koma svo heim og skrifa um það. Annars er þetta alls ekkert endanlegt val, ég er ekki búin að taka ákvörðun um framtíð- arstarfið." Þótt áhugamálin séu mörg gefur Brynja sér tíma til að sækja skóla og er á félags- fræðibraut í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Að vísu gerði hún hlé á náminu eina önn til þess að fara til Bandaríkjanna og gerast „au pair“ í Pittsburg í sjö mánuði. 20 VIKAN 22.TBL. 1992

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.