Vikan


Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 49

Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 49
► Tveir sígildir í njósnamyndinni Sneakers. ▲ James Bond teiknimyndin breska. < Freddi njósnari aö slá sér upp í Freddie as F.R.O.7. góðrar þýðingar á íslensku. Að mati höfundar er um að ræða myndir sem eru öðruvísi en hefðbundnar myndir. Söguþráðurinn getur verið snúinn og jafnvel er skortur á heilbrigðri skynsemi í efnis- uppbyggingu myndarinnar. Myndir þessar geta líka verið ódýrar að gerð og illa gerðar en hafa samt orðið vinsælar vegna þess að þær eru ein- faldlega öðruvísi og áhorfend- ur hafa jafnvel gaman af þeim þrátt fyrir að þær þyki vitlaus- ar. Oftast er það svo að myndin skilur eitthvað eftir sig þrátt fyrir að mikla rökvísi sé ekki að finna. Þetta eru líka myndir sem geta verið frumlegar og ferskar og því ekki hefð- bundnar. Þær geta ennfremur komið af stað æði sem erfitt er að útskýra. Nýjasta æðið er eflaust það sem myndin Way- nes World og Ted og Billy myndirnar komu af stað. Myndirnar eru snarruglaðar, geggjaðar, innihalda villta tón- list og mikið er um gæja- og töffaratal í þeim. Hvaða myndir eru það svo sem hafa komið af stað vissu æði eða þykja öðruvísi og ódauðlegar? Hvaða myndir flokkast undir „cult movies“? Nú vantar góða íslenska þýðingu fyrir þetta orð. Fyrst má nefna Rocky Hor- ror Picture Show (1975) sem er ein vinsælasta neðanjarð- armynd allra tíma og enn er verið að sýna hana á miðnæt- ursýningum í New York og öðrum stórborgum Bandarikj- anna og í Lundúnum. Hvers vegna? Vegna þess að hún hefur komið einhverju af stað sem kvikmyndahúsagestir hafa ekki kynnst áður í söngva- og dansmynd. Frum- leiki og villtur söngur einkenn- ir söguþráð . myndarinnar. Tónlist og búningar skipa líka höfuðsess í myndinni. Mynd John Landis, The Blues Brothers, (1980) kol- féll í Bandaríkjunum og var dýr að auki, kostaði alls 33 milljónir Bandaríkjadala og það þótti mikið fyrir tólf árum. Síðan hefur hún verið endur- sýnd og fólk kann yfirleitt að meta snarruglaðan söguþráð- inn, auk þess sem tónlistin þykir kröftug og lífleg. Myndin þykir líka skondin og bilaelt- ingaleikurinn er einn sá ótrú- legasti sem sést hefur i kvik- mynd. Pönkara- og þungarokks- myndin Sid and Nancy (1987), sem fjallar um ævi Sex Pistols meðlims, gerði það stórgott í Bretlandi því pönk og þungarokk er vinsælt meðal ungmenna þar. Þrátt fyrir vinsældirnar er þetta eng- in stórmynd. Fyrsta Terminator myndin (1984) er líka í hópi „cult mynda“, auk Dune (1984), myndar David Lynch sem kolféll en er samt í hópi þess- ara mynda því það er eitthvað við hana sem heillar áhorf- endur. Myndin er afar löng (þetta er vísindaskáldsögu- mynd) og stundum hreinlega óskiljanleg því hún er snúin og persónur margar. Hún þyk- ir samt listaverk á að horfa vegna búningahönnunar, kvikmyndatöku og vegna þess að hún þykir frumlegri en Star Wars myndirnar. Á HVERS KONAR MYNDUM GETUM VIÐ ÁTT VON? Alltaf er gaman að forvitnast um þær myndir sem eiga eftir að koma fram á hvíta tjaldið því það kitlar forvitnina og kemur manni á bragðið. SVIKARAR Robert Redford, Dan Aykroyd, Ben Kingsley, Sidney Poitier (Shoot to Kill, Little Nikita), Mary McDonnel (Dances with Wolves, Grand Canyon) og River Phoenix (My Own Private Idaho, Stand by Me) leika f hörku- spennandi njósna- og spennumynd sem kölluð hef- ur verið Sneakers (Svikarar) og hlotið verðskuldaða athygli í Bandaríkjunum. Robert Redford þykir standa sig prýðilega og menn vilja meina að með þessari mynd hafi hann unnið mikinn leik- sigur eftir hrakfarirnar í Havana (1990). Sidney Poiti- er er auk þess einn besti afrísk-ættaði ameríski leikar- inn í dag í Bandaríkjunum en hann hóf leiklistarferil sinn á sjötta áratugnum. ▲ Bob Hoskins í Kalla kan- ínu. ► Hin gull- fallega Walt Disn- ey teikni- mynd Beauty and the Beast. ▲ Teikni- mynd Dons Bluth, Land Before Time. T Walt Disney teikni- myndin Pétur Pan. NÝ MYND FRÁ SPIKE LEE Ný mynd frá Spike Lee verður frumsýnd þann 20. nóvember í Bandaríkjunum, stjórnmála- og baráttumyndin Malcolm X sem hefur á að skipa blökku- manninum Denzel Washing- ton (Mo Better Blues, Glory, Cry Freedom). Myndin verður sýnd undir lögregluvernd því aðrar blökkumannamyndir eins og New Jack City og Boyz n the Hood ollu miklu fjaðrafoki og ólátum. Þessi nýja mynd Spike Lee þykir ein kröftugasta ádeilumynd sem gerð hefur verið. Myndin verður sýnd í SAM-bíóunum þegar þar að kemur. □ TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.