Vikan


Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 50

Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 50
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR * NÝJAR HLJÓMPLÖTUR % NÝJAR HLJÓMPLÖTUR Gæöi og aftur gæði viröist ver -PETER GABRIEL: US SNILLD Meistari Gabriel hefur á und- anförnum árum verið að þróa með sér stíl sem er einstakur. Fyrir sex árum kom út platan So og á henni, svo og plöt- unni þar á undan, IV, heyrð- ust greinileg áhrif heimstón- listar í tónlist Gabriels. Núna er það ekki bara heimstónlist- in heldur blandar hann vest- rænu poppi/rokki/sálartónlist saman við hana og útkoman er snilldarleg. Us er nokkuð þyngri en So en að sama skapi meira verk, meira í hana spunnið. Vinnan við útsetningarnar er svo nostursamleg og handverkið svo fágað að undirritaður á vart orð tii að lýsa hrifningu sinni. Orðin hrein fágun fara þó langt með að lýsa plötunni sem fjallar um samskipti karl- manna og kvenna. Us vinnur Gabriel í samvinnu við Daniel Lanois (sem vann með hon- um á So) og snillingafjöldinn, sem kemur við sögu á plöt- unni, er mikill. Nokkur dæmi: Sinead O’Connor, Brian Eno, Manu Katche (trommur) Dav- id Rhodes (gítar), Tony Levin (bassi), Hossam Ramzy (tabla) og Ravi Shankar (fiðla). Sem sagt einvalalið. Það er útilokað að gera upp á milli laga á plötunni. Það sem hins vegar er hægt að gera er að benda þér, lesandi góður, á að kaupa þennan Love sem Clapton og blús- maðurinn Robert Cray semja saman. Greinilegt er að það skiptir engu máli hvort það er rafmagn á græjunum hjá Eric Clapton. Eina sem skiptir máli er að maðurinn hafi gítar við höndina og röddina í lagi. STJÖRNUGJÖF: **** SILFURTÓNAR: SKÝIN ERU HLÝ STERK HUGHRIF Það er óhætt að segja að nýi diskurinn frá Silfurtónum færi hlustendum hlýju, nú á svöl- um haustdögum. Hitinn, kraft- urinn og húmorinn í Silfurtón- um er nægur til þess að bræða hjörtu hörðustu togara- jaxla. Lögin Við, úr Poppleikn- um Palla og Litið til baka, sem fannst í Kaupmannhöfn, eru dæmi um þetta: „Nú stjörnur blikka mig / skýin eru hlý / og allt er gleymt og grafið / já öll- um líður vel.“ (Litið til baka). Silfurtónar spanna vítt svið tónlistarlega: popp/rokk/diskó (undir sterkum áhrifum frá Gibb-bræðrum enda virðist diskóið aftur vera að komast í tísku!) og ballöðuformið hent- ar þeim líka vel, svo sem í laginu Með þér/Going Baby sem skiptist reyndar í tvo kafla; sá fyrri hægur en sá seinni öllu meiri keyrsla. Það er viss upplifun að hlýða á Silfurtóna. Þeir mynda sterk hughrif með leik sínum, sem fáum tekst hérlendis. Þeir eru öðruvfsi en aðrir, það er staðreynd. Önnur stað- reynd er að þeir eru einstakir. Það eru einhverjir töfrar sem umlykja Silfurtóna, þessa rúmlega tuttugu ára gömlu hljómsveit. STJÖRNUGJÖF: **** Clapton kemur vel út á Unplugged. disk og hverfa um stundar- korn inn í heim tónsnillinga. Þú sérð ekki eftir því. STJÖRNUGJÖF: ***** ERIC CLAPTON: UNPLUGGED RAFMAGNSLAUST Gítarleikarinn fingrafimi, Eric Clapton, er einn af þeim tón- listarmönnum sem gert hafa svokallaðan „unplugged” disk hjá MTV sjónvarpsstöðinni. Það þýðir að eina rafmagnið sem notað er knýr söngkerfi tónlistarmannanna, öll hljóð- færi eru órafmögnuð. Á diskn- um, sem inniheldur fjórtán lög, nýtur Clapton aðstoðar manna sem undanfarin ár hafa unnið mikið með honum, svo sem Nathan East (bassi), Steve Ferrone (trommur), Chuck Leavell (hljómborð) og Ray Cooper (ásláttur), að ó- gleymdum upptökustjóranum, Russ Titelmann. Það er vægast sagt góð stemmning hjá Clapton en á disknum tekur hann meðal annars þekktasta lag sitt, Layla, í mjög skemmtilegri út- setningu, þeirri bestu sem undirritaður hefur heyrt. Einnig er hér að finna Tears in Heaven sem hann flytur nær hnökralaust. Þá er og slatti af blúsum á disknum og einn sá besti af þeim er Old ▲ JÚIiUS H. Ólafs- son, annar aöal- söngvari Silfurtóna, sýnir í sér stelliö á á- hrifamik- inn hátt. Ljósm.: GHÁ cn T’a oo oo GO CD 50 VIKAN 22.TBL.1992

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.