Vikan


Vikan - 29.10.1992, Side 21

Vikan - 29.10.1992, Side 21
„Ég fékk alveg heilmikið út úr því,“ segir Brynja. „Þar að auki ferðaðist ég mikið á með- an á dvölinni stóð. Ég fór og heimsótti vini mína í Los Ang- eles, fór til Mexíkó, Kanada og tvisvar til New York.“ Þessi útúrdúr hefur tafið út- skrift Brynju úr MH en hún segir að hún ætti að geta tek- ið stúdentspróf næsta haust ef hún verður sérstaklega dugleg. „Ég er ákveðin í að fara ekki í Háskóla íslands að loknu stúdentsprófi. Mig lang- ar út - eins og alla hina. Það væri hagnýtt að notfæra sér ríkisborgararéttinn og fara í einhvern ríkisrekinn skóla í Bandaríkjunum og þá líklega í fjölmiðlafræði." Hvernig vill Brynja Valdís eyða frístundum sínum, þegar hún er ekki að dansa eða leika í Kramhúsinu? „Ég er ágætlega virk í skemmtanalífinu og hef gam- an af að fara út og sjá fólk. Tunglið er ágætt en ég hef líka gaman af að fara út að borða. Svo elska ég leikhús og læt heldur ekki góðar ball- ettsýningar fram hjá mér fara.“ Við hlið sér í öllu þessu gamni og vonandi alvörunni líka hefur Brynja sérstakan vin og er helst að heyra að hún sé þegar lofuð. En hvað vill hún fá út úr lífinu? „Vó!“ hrópar Brynja upp. „Það er stórt spurt! Ég vona að ég þroskist sem mest á þessu tilverustigi," svarar hún svo eftir dálitla umhugsun og er komin út á brautir sem vekja fleiri spurningar. „Nei, ekkert meir um það!“ segir hún og bandar frá sér með hendinni og kemur í veg fyrir frekari umræðu á þessum nótum. Hvað fær svo Brynju Val- dísi til að taka þátt í forsíðu- stúlkukeppni? „Ég ákvað að slá til þegar ég var beðin vegna þess að ég hef áhuga á módelstörfum og er á skrá hjá Módelsam- tökunum. Svo tel ég þetta vera kjörið tækifæri til að læra að koma fram og efla sjálfs- traustið." Foreldrar Brynju eru Gísli Magnús Karlsson og Anna Kristín Arngrímsdóttir. Hún á þrjú alsystkini og tvö hálf- systkini. Brynja Valdís Gísla- dóttir er 169 sentímetrar á hæð og er dökkhærð og brún- eygð. □

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.