Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 25
HUGARORAR HALLGERÐAR
KVARTAÐ YFIR
LÉLEGRI MÆTINGU
Sénsinn. Ég meina eins
og þaö sé ekki meiri
háttar mál aö límast
svona rosalega viö skólabæk-
urnar þetta heilu og hálfu sól-
arhringana. Ég mæti rúmlega
hálftíma á dag og samt er
þetta lið að segja mér aö
skólastjórinn sé aö kvarta yfir
lélegri mætingu. Gaurinn á viö
einhver vandamál aö stríöa,
þaö sjá allir. Ég bara dey
hægum dauðdaga ef þetta
kjaftæöi stoppar ekki á stund-
inni. Gamli boltinn sagöi aö ef
ég endurskoðaði ekki mæt-
ingar á næstunni yröi ég rekin
meö skömm úr skólanum og
send í heimavistarskóla. Þetta
skólastjórafrík er algjör sad-
isti, þaö sjá allir. Þaö vita allir
aö ég hef ekki geöheilsu til aö
lenda í skóla með sveita-
krökkum og öðrum ofdekruð-
um. Sénsinn.
Pabbi er á vakt við skólann
núna og sá mig smella mér í
sjoppuna. Glætan. Hann birt-
ist bara meö þaö sama á
sjoppugólfinu, rétt þegar þessi
rosalega þreyta var aö fara úr
mér á fimmtu pylsunni. Þessi
sjúki bolti er bara í því að
dömpa mann. Ég gargaði
náttúrlega þegar pinninn
reyndi að draga mig af svæö-
inu og allir héldu aö sóðinn
væri nauðgari eöa eitthvað.
Alla vega mátti hann þakka
fyrir aö sleppa eins billega og
hann geröi. Þaö brotnaði í lát-
unum bara rétt framan af
tveim framtönnum í puttanum
og nefiö er eitthvað smá til
vinstri. Rosalega er þetta liö
eitthvaö afbrigðilegt. Sénsinn.
Svona skóladæmi er ekki
hægt aö vera meö við heilann
þetta heilu dagana. Glætan.
Ég fékk aö gista hjá afa á
Grandanum eina vikuna og
þá gekk allt upp meö þaö
sama. Afi er svo rosalega
meiri háttar aö ég veit varla
hvernig heimurinn getur lifað
án hans. Hann sá náttúrlega
eins og skot aö þaö var verið
aö bögga mig ósmekklega og
hringdi bara sjálfur f skóla-
stjórann og tilkynnti aö ég
væri föl, fámál, meö verk í
vinstri mjööm og nokkuö
magnaða vindverki. Síöan
bætti hann við aö ef ég væri
meira en hálftíma í einu í
svona svakalegu þjáningar-
ástandi í skólanum næstu vik-
urnar gæti það sennilega haft
í för meö sér varanlega skaða
sem kannski kæmi fram síðar
á ævinni. Skólastjóraboltinn
náttúrlega kunni aö skammast
sín. Hann böggar mig sko
ekki meir enda sagöi hann aö
ef vindverkirnir yröu mér of-
viöa skyldi ég bara fara heim
eöa eitthvaö.
Það má segja að ég geti
stytt þessa hálftíma skólasetu
mína niður í fimm mínútur á
dag. Meö sæmilega góöum
herkjum ætti ég aö geta þetta.
Ég fann þaö svo meiri háttar
vel þegar ég rétt gat lúsast í
fimm partí um helgina hvaö
ég á bágt.
Við skulum bara athuga
þaö aö Jóa vinkona hefur
aldrei veriö óþreyttari en síö-
an ég sagöi henni aö koma
sér fyrir hér og þar heima
meö svaka lopateþþi á sér
rétt áöur en ætti aö fara aö
keyra hana í skólann og
skjálfa af kulda og stynja mjög
hátt af kvalafullri þreytu.
Mamma hennar réö náttúr-
lega heila hjúkku í dæmiö og
Jóa hefur þaö bara næs enda
ekki sést í skólanum í mánuð.
Vonandi verö ég uppgötvuð
snarlega. □
REKÍS hf. - SÍMI: 26525
"Beverly Hills"
perfume
and cosmetics
bring out your
individual style!
'BtVtRLY HILIS'
PERFUME • MRKE-UP • SKIN CflRE • BRTH
GALEHAYMAN
BEVERLY HILLS*