Vikan - 29.10.1992, Síða 31
vitna til þess hversu ómögu-
leg þú sért. Ég giska þó á aö
einhvers staðar innst inni sé
hún full sektarkenndar yfir
framkomu sinni en geti ekki
brotiö þann vítahring sem upp
er kominn. Þér finnst reyndar
aö þú hafir gert allt sem í þínu
valdi stendur til þess aö reyna
aö vera eins og hún vill aö þú
sért og að hún sé ósanngjörn.
Þetta verður til þess aö þú
ferö að setja þig í spor kenn-
ara og reyna aö segja henni
til um hvernig hún eigi eöa
eigi ekki að hegða sér. Meö
því stráir þú salti í sáriö, kem-
ur viö sektarkennd hennar en
setur þig um leið á háan hest
og neyðir hana til aö verja sig.
Þar meö viðheldur þú víta-
hringnum.
ER ÉG ÞAÐ
SEM ÉG GERI?
Þessi vítahringur samskipt-
anna viö móöur þína hefur
kennt þér aö eina leiöin til
þess að veröa elskuð sé aö
standa þig. Á sama tíma færö
þú stanslaust aö vita aö þú
standir þig ekki. Niöurstaöa
þín er því sú að þú sért svo ó-
möguleg aö þaö sé ekki hægt
aö elska þig. Sjálfstraust þitt
er í molum og sjálfsvirðing lít-
il. Þú heldur áfram aö reyna
aö vera undirgefin og þóknast
öðrum en uppskeran er í
engu samræmi við þaö.
Þú ert ekki þaö sem þú ger-
ir. Þú ert manneskja, sém átt
rétt á að vera elskuð, án þess
aö þurfa aö vinna fyrir því. Þú
þarft aö gera kröfur um ást í
staö þess aö reyna aö vinna
fyrir henni. Þú þarft aö bera
virðingu fyrir þér til þess aö
geta búist viö aö aðrir beri
virðingu fyrir þér. Þaö sem þú
gerir getur veriö gott eöa
slæmt og aðrir geta veriö á-
nægöir eða óánægöir með
þaö en viröing þeirra og ást
gagnvart þér fer ekki eftir því
sem þú gerir.
Barnið er ekki ómögulegt
þótt þaö geri eitthvað af sér.
Þaö þarf bara aö leiðrétta það
sem þaö gerir rangt. Það
sama gildir um þig. Þú þarft
að hætta aö reyna stanslaust
að gera það sem þú heldur að
aörir vilji aö þú gerir. Þá
minnka hjá þér mistökin
vegna þess aö þú ferö aö
gera þaö sem þú vilt gera eöa
langar aö gera. Þú þarft aö
læra aö meta þig upp á nýtt,
viröa þig og rétt þinn og læra
aö stöðva yfirgang annarra,
án þess aö gera lítið úr sjálfri
þér í leiðinni eða setja þig á
háan hest. Þannig öðlast þú
virðingu sjálfrar þín og ann-
arra. Ekki er ólíklegt að þú
þurfir aöstoð sálfræðings við
þessa sjálfsstyrkingu. Leitaöu
þér frekar aðstoðar en aö gef-
ast upp. Þú átt betra skilið,
eöa hvaö finnst þér?
KYNFERÐISLEG
FULLNÆGING
Ég get ekki veriö alveg viss
um aö ekki sé neitt líkamlegt
að þér þar sem þú segir aö þú
finnir til sársauka við samfarir.
Þaö getur veriö líkamlegt og
það getur líka veriö sálrænt.
Ef þú bærir meiri virðingu fyrir
sjálfri þér létir þú læknana
ekki komast upp með aö
svara þér svo ófullkomið sem
þú lýsir. Þú átt rétt á því aö
þeir annaöhvort skoöi þig al-
mennilega eöa vísi þér til
læknis sem það getur. Þú átt
aö leita til kvensjúkdóma-
læknis í þessu samhengi og
gera kröfur um svör um það
hvort um líkamlegar orsakir
geti verið að ræða eöa ekki.
Orsakirnar geta líka veriö
sálrænar og tengdar því hvaö
þú gerir litlar kröfur og ert óör-
ugg meö sjálfa þig. Sú er líka
aö öllum líkindum ástæöan
fyrir því aö þú færö ekki full-
nægingu viö samfarir. Þú
passar ekki nægilega vel upp
á þínar eigin þarfir, gerir ekki
nægilegar kröfur um aö njóta
kynlífsins, hugsar meira um
karlmanninn en sjálfa þig og
þorir ekki aö slaka á og njóta
af ótta viö aö standa þig ekki,
stráknum líki ekki viö þaö
hvernig þú „ert í rúminu" eöa
eitthvaö í þá áttina. Þetta
tengist sem sé einnig sjálfs-
trausti þínu og sjálfsvirðingu
og ætti að stórlagast um leiö
og þú vinnur sigra tengda
sjálfstrausti og sjálfsvirðingu.
AÐ LOKUM
Prófaðu að spyrja mömmu
þína beint um það hvort hún
elski þig. Hættu öllum vanga-
veltum um það eöa krókaleið-
um. Segöu henni aö þú hafir
þörf fyrir að hún sýni þér ást,
aö þú sért óörugg um þaö
hvort hún elski þig og þér líði
illa með það. Um leið verður
þú aö slaka á og þora aö taka
á móti þeirri ást sem hún
hugsanlega sýnir þér í staö
þess að vera stolt og reyna
að hefna þín.
Ég vona aö þú farir aö
vinna meö sjálfstraust þitt og
sjálfsvirðingu og farir aö elska
sjálfa þig og viröa þannig að
þú getir farið að njóta lífsins í
staö þess aö einungis lifa það
af. Leitaðu þér aöstoðar ef
þér finnst þú þurfa þess.
Kær kveöja,
Sigtryggur
STJÖRNUSPA
HRÚTURINN
21. mars-19. apríl
Undirbúningur þinn fyrir
veturinn hefst á eins konar
hlutleysisástandi þar sem lík-
legt er aö spenna hlaöist upp.
Þessi óvissa nær hámarki 9.
nóvember en dæmiö snýst
strax viö þann 10. Þetta varðar
fyrst og fremst vinnuna og
heimilið.
NAI
W 20;!
NAUTIÐ
apríl-20. maí
Fjármálin verða hag-
stæö eftir mánaðamót en
gættu þess aö einblína ekki á
efnahagsleg gæöi. Mannleg
samskipti ættu aö skipta þig
meira máli um sinn þar sem
rómantíkin er enn skammt und-
an, sérstaklega eftir 10. nóv-
ember þegar tungliö er fullt.
TVÍBURARNIR
21. maí-21. júní
Líklega eiga fjármál eft-
ir aö skaprauna þér upp úr
mánaöamótunum. Fyrsta vika
nóvember veröur viökvæm aö
þessu leyti og þú skalt fara var-
lega í skemmtanalífinu. Ein-
beittu þér frekar að innri mál-
um, til dæmis andlegum efnum.
KRABBINN
22. júní-22. júlí
Tilfinningalíf þitt gæti
orðið sveiflukennt næstu daga
þar sem mars er á leið inn i
merki þitt. Þú þarft aö endur-
meta ýmislegt og þarft því tíma
til aö vera í einrúmi af og til,
þótt freistandi sé aö vera innan
um fólk. Haföu augun opin.
UÓNID
23. júlí-23. ágúst
Framkvæmdagleöi
þinni eru settar hömlur um sinn
vegna mála sem standa þér
nær; fjölskyldumála. Þú ættir
aö gefa þessu gaum og halda
þig heima viö 7. og 8. nóvem-
ber. Þaö á eftir aö borga sig
eins og í Ijós kemur eftir þann
11.
MEYJAN
24. ágúst -23. sept.
Þú ættir aö sýna þínum
nánustu meiri skilning og þolin-
mæöi og líta um leið í eigin
barm. Þú færö mikið af góðum
hugmyndum en tími til aö fram-
kvæma þær bestu kemur ekki
fyrr en seinna á árinu. Láttu
ekki gott tækifæri fara framhjá
þér 8. nóvember.
VOGIN
24. sept.-23. okt.
Innri ólga fer minnkandi
og bestu eiginleikar þínir,
mannleg jafnvægiskennd, er
smám saman að koma betur í
Ijós. Þig langar aö láta gott af
þér leiöa og þú hefur tækifæri
til þess. Vissir einstaklingar
laöast að þér en láttu þaö ekki
trufla þig.
SPORÐDREKINN
24. okt.-21. nóv.
Skammdegið viröist
örva sjálfsvitund þína og næmi.
Athygli þín batnar og fátt virðist
fara framhjá þér. Þetta er gott
tímabil þar sem þú getur bæöi
haft áhrif á rómantísk sambönd
og hagnýt atriöi í hversdagslíf-
inu.
BOGMAÐURINN
22. nóv.-21. des.
Þig langar aö koma
hugmynd eöa vissu máli á
framfæri en staöa mars er þér
ekki hagstæö í bili. Satt aö
segja ertu í eins konar biðstööu
fyrstu níu daga nóvember. Not-
aðu tímann til aö sinna ýmsum
smáatriðum og fullkomna það
sem betur mætti fara.
STEINGEITIN
22. des.-19. janúar
Eftir mánaöamót dreg-
ur úr athyglinni sem þú hefur
notiö og þú gætir farið aö efast
um eigiö ágæti. Þú stendur
auövitaö jafnt fyrir þínu og áöur.
Þarna eru önnur áhrif aö verki.
Þú þarft að átta þig á þessu því
aö 10. nóvember gæti reynst
þér mikilvægur dagur.
VATNSBERINN
20. janúar-18. febr.
Sjálfsagi ætti aö vera
lykilorð þitt næstu tvær vikur
því aö þú virðist geta valiö úr
spennandi samskiptum viö fólk.
Áríðandi forgangsverkefni
mega ekki sitja á hakanum. Þú
þarft á allri skynsemi þinni aö
halda 7. nóvember.
FISKARNIR
19. janúar-20. mars
Líklega verður nóvem-
ber þér ekki eins góður mánuö-
ur og þú hafðir reiknaö meö.
Þú þarft aö leggja hart aö þér
til að ná settum markmiðum og
árangurinn er ekki alveg í aug-
sýn. Reyndu þó að sjá björtu
hliðarnar á málunum því aö
betri tíö er framundan.
22. TBL. 1992 VIKAN 31