Vikan


Vikan - 29.10.1992, Page 44

Vikan - 29.10.1992, Page 44
▲ Dóm- nefndin aö störfum, en hún þurfti aó gera upp á milii meira en sjö hundruö mynda. yfirfór herlegheitin. Nefndina skipuðu þau Brynjólfur Jóns- son Ijósmyndari fyrir Samút- gáfuna Korpus, Sigríður Bach- mann Ijósmyndari og Gísli Gestsson frá Ljósmyndavör- um ( Skipholti, umboðsaðila Fuji. Og saman áttu þau nokkrar góðar stundir, já klukkustundir, yfir Ijósmyndum frá lesendum Vikunnar. Vissulega voru myndirnar eins misjafnar og þær voru margar. Sumar hverjar voru staðfestingar á kærkomnum augnablikum, óvæntum á góðum stundum sem og list- rænar útfærslur á undrum náttúrunnar og mannanna verkum. Og samspil náttúru og mannverka átti ámóta vel upp á pallborðið sem annað hjá dómnefndinni og svo fór að mynd sem atti þessu tvennu saman færði skapara sínum fyrstu verðlaun. Augna- HAFNARSTRÆTI 15 REYKJAVÍK ■ SÍMI 13340 blikin veittu náttúrufyrirbærun- um harða keppni og það er alltaf erfitt að þurfa að skilja milli tilkomumikilla svipbrigða eða athafna mannfólksins annars vegar og sólarlags hins vegar, svo eitthvað sé nefnt. Slíkt myndefni verður þó aldrei langt undan fyrsta sætinu og við þurfum ekki að fara langt til að finna dæmi um það. Verðlaunin voru vegleg og komu þau frá Ljósmyndavör- um í Skipholti. Sigurvegarinn, Sveinbjörn Ólafsson, hlaut fyrstu verðlaun og hlýtur-hann Fuji DL-3000 myndavél að verðmæti 33.000 krónur, sýn- ingarvél fyrir skyggnur að verðmæti 30.000, Cullman tösku og þrífót og tuttugu film- ur, bæði skyggnur og fyrir pappírsstækkanir. Samtals er verðmæti fyrstu verðlauna rétt um eitt hundrað þúsund krónur. Ekki var skipt niður verð- launum í annað og þriðja sæti heldur fá þeir sem urðu í öðru til tíunda sæti að mati dóm- nefndar Fuji DL-8 myndavél. Þeir eru eftirtaldir: Birgir Sigurðsson, Kjalar- landi 25 í Reykjavík, Einar H. Björnsson, Dalseli 10 í Reykjavík, G. Guðrún Óla- dóttir, Sundstræti 26 á ísafirði, Hólmfríður Birna Björnsdóttir, Reykjum I Vestur-Húnavatns- sýslu, Páll H. Sigvaldason, Hjarðarholti 18 á Akranesi, Ríkarður Ríkarðsson, Garð- arsbraut 42 á Húsavík, Sigfús Gunnar Guðmundsson, Höfða- vegi 61 í Vestmannaeyjum, Sigurveig Guðmundsdóttir, Haðarstíg 16 í Reykjavik og Unnur Sigurðardóttir, Hjarðar- holti 18áAkranesi. Og í næsta tölublaði Vikunn- ar munum við birta eitthvað af þeim myndum sem ofantaldir sendu okkur og 110 nöfn til viðbótar, tíu af þeim fá Fuji DL- 5 myndavél og hundrað fá Fuji Quicksnap myndavél. ▲ Verölaunin sem vinningshafar í Ijósmyndasamkeppni FUJI og Vikunnar fá aó launum. MIKILL HEIÐUR Við slógum á þráðinn til Sveinbjarnar vinningshafa Ólafssonar og brást hann að vonum vel við þessum tíðind- um. „Þetta er geysilega mikill heiður og gaman að þessu vegna þess að Vikan er mjög vandað og gott blað,“ var það fyrsta sem hann gat sagt eftir að hafa áttað sig á því um hvað var rætt. Sigurmyndina tók hann í annarri eða þriðju viku ágúst fyrir nokkrum árum um klukkan tíu að kvöldi þeg- ar sólin var komin næstum í beina Knu við bobbingana. Sveinbjörn notaði Fuji- chrome RF50 filmu til þess að festa þetta einstæða augna- blik um alla framtíð. Hann segist hafa notað hraða einn þrítugasta úr sekúndu og Ijós- op fjóra svo að hann virðist hafa ígrundað Ijósmyndun af miklum móð. Sveinbjörn hefur lengi haft áhuga á Ijósmynd- un, um það bil tíu ár að því er hann segir sjálfur. „Ég hef aldrei verið í sérstökum Ijós- myndaskóla, bara í klúbbum eins og Hugmynd sem er Ijós- myndaklúbbur áhugamanna. Og ég hef sótt nokkur nám- skeið hjá þekktum Ijósmynd- urum sem öll hafa aðeins ver- ið nokkrar klukkustundir að kvöldi. Þá hef ég lesið mér töluvert til í Ijósmyndablöð- um,“ segir Sveinbjörn en hann fer töluvert um gagngert til þess að taka myndir. „Ég hef tekið mikið af myndum á tónleikum og ég hélt eitt sinn sýningu í Djúpinu á slíkum myndum. Núna stefni ég að því að halda aðra Ijósmyndasýningu á þessu ári sem sýnir trúarlíf Tibeta,“ seg- ir hann en Sveinbjörn hefur ferðast víða, hann var til dæmis á Indlandi frá því í byrjun janúar til júlíbyrjunar á þessu ári. „Þar er mikið af Tí- betum, sennilega hundrað til hundrað og þrjátíu þúsund en ég hef lengi haft áhuga á tí- betskri menningu, skrifaðist til dæmis á við tíbetska lama- presta. Og ég bjó í klaustri með tvö þúsund munkum á Suður-lndlandi, en klaustrið er eitt það stærsta sinnar teg- undar. Síðan var ég tvo mán- uði á Norður-lndlandi, sótti meðal annars námskeið í tíb- etskri heimspeki. í ferðinni tók ég mikið af myndum, 44 slides-filmur, þar af 40 Velvia-filmur. Hinar voru 100 ASA Fuji-chrome og auk þess sjö svart hvítar filmur sem ég framkalla og stækka sjálfur," segir Sveinbjörn en hann hefur einnig stækkað lit- myndir sjálfur í svokölluðu Cibachrome af litskyggnum. í keppnina sendi hann eingöngu skyggnur og átti hann einnig mynd í flokki tvö til tíu og er hún birt hér. Vikan óskar Sveinbirni til hamingju með sigurinn sem og öllum hinum tvö hundruð og rúmlega það sem hver um sig sigraði með því einu að vera með. Og hver sem er hinna sjö hundruð mynda gæti birst einhvern tímann á næst- unni í einhverju tölublaða Vik- unnar, af nógu er að taka. □ 44 VIKAN 22. TBL. 1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.