Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 9
höfða til kvenna ef það ætti
að ganga og sýndi virðingu
sína fyrir þeim með því að
láta fjölda stytta af konum í
mismunandi þjóðbúningum
Evrópu skreyta úthliðar húss-
ins. Fyrirtækið hefur alltaf
gegnt nokkuð mikilvægu hlut-
verki í mannlífi borgarinnar og
það þótti hýsa fínustu kaffi-
húsin. Enn í dag má sjá mik-
inn fjölda Edinborgara, sér-
staklega úr hópi eldri kvenna,
á kaffistofunum þremur sem
þarna eru.
Hinn verslunarkjarninn er
Marks og Spencer en báðar
þessar verslanir eru mjög
hefðbundnar. Frá King James
Thistle hótelinu er innangengt
í stóra verslunarmiðstöð sem
hýsir fjölda smærri verslana
og verslunarútibúa, til dæmis
hina vinsælu tískuvöruverslun
Top Shop og svo líka stór-
Út frá High Street er gaman
að leggja lykkju á leið sína
niður að Grassmarket. Á leið-
inni er fjöldi smárra antikversl-
ana sem eru jafnt með gömul
föt, leirtau og húsgögn. Á
þessari leið eru líka margar
skemmtilegar krár gem stúd-
entar sækja gjarna. Rétt utan
við miðborgina er hverfi sem
kallað er Stockbridge. Þar er
fjöldi skemmtilegra smáversl-
ana sem gaman er að skoða.
íslendingar eru aufúsugest-
ir í Edinborg enda þekktir fyrir
að vera bæði hressir og
eyðslusamir. Hvar sem maður
fer heyrir maður talað um hve
gott sé að fá þá til borgarinnar
á haustin og margir sjá sér
hag í að laða þá til sín með
ýmsum hætti. Það er því vel
þess virði að líta eftir tilboðum
og afsláttarmiðum sem
standa til boða.
Á hverju kvöldi gefst fólki kostur á aö slást í för meö 18. aldar
draugnum Adam Lyal sem leiöir þaö á vit fleiri drauga vítt og
breitt um miðborgina.
verslanir eins og John Lewis.
Waverley Shopping Centre,
sem er við hliðina á brautar-
stöðinni, er einnig heimsóknar
virði, bæði til að dást að vel
heppnuðum arkitektúr og
hönnun og finna ýmsar ágæt-
ar sérverslanir. Waverley er
alltaf opið á sunnudögum og
þar er einnig að finna upplýs-
ingaskrifstofu fyrir ferðamenn
og miðasölu fyrir helstu listvið-
burði, leiksýningar og óperur.
Þegar beygt er af Princess
Street eru margar smáar hlið-
argötur með skemmtilegum
sérverslunum. Það sama gild-
ir um High Street þar sem líka
er töluvert af minjagripaversl-
unum og litlar hliðargötur út
frá því. Á High Street er hægt
að kaupa mikið af skoskum
prjónavörum og svo auðvitað
skotapilsin frægu. Þar er líka
eitt þekktasta kasmírfyrirtæki
Skotlands, Cashmere Store,
með gott úrval af jökkum,
kápum, sjölum og treflum.
Cashmere Store er auk þess
að finna á Bank Street en fyr-
irtækið rekur einnig víðtæka
og virta póstpöntunarþjón-
ustu.
FRÆG
MENNINGARBORG
Edinborgarhátíðin er senni-
lega það fyrirbæri sem borið
hefur nafn borgarinnar víðar
en nokkuð annað. Hátíðin er
löngu fræg um allan heim og
þegar hún stendur yfir, í ágúst
á hverju ári, tvöfaldast mann-
fjöldinn í borginni. Alþjóðlegt
yfirbragð læðist um hana og
hún skartar venju fremur lit-
ríku mannlífi enda er hér um
að ræða eina stærstu menn-
ingar- og listahátíð heims.
Þótt borgin færist aftur í eðli-
legt horf eftir að hátíðinni lýk-
ur er alltaf mikið um listvið-
burði. Borgin státar af West
End hverfi þar sem góð stykki
eru á fjölunum og á þessu
hausti gefst fólki kostur á að
berja augum Lundúnasöngleik-
inn Me and My Girl. Þeir sem
hafa gaman af góðum óperum
og konsertum ættu líka að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Edinborg er ein af þeim
borgum sem auðvelt er að
falla fyrir og það er ekki
ósennilegt að fólki finnist það
eiga margt ógert þegar nokk-
urra daga viðdvöl þar lýkur. □
SKOSK KASMIRULL
með flugpósti
Þeir sem heimsótt hafa Edinborg
og gengið um verslunargötuna Royal Mile
hafa veitt athygli hinu stórkostlega úrvali
af gæðavöru úr kasmírull í versluninni
„The Cashmers Store".
•
nú getur þú einnig verslað þar
þótt þú komist ekki til Edinborgar,
því að pöntunariistinn fyrir haust og vetur 1992-93
er nú líka fáanlegur á íslandi.
Verðlagið í ár er jafnvel lægra en í fyrra
(frá 95 pundum). Við getum sent þér
ailt það sem í listanum er í flugpósti
og fullri ábyrgð.
•
Hafir þú áhuga á pöntunarlistanum okkar,
sem þú færð frían, skaltu skrifa eða hringja:
The Cashmere Store
14 Bank Street - Edinburgh - Scotland
Sími: 90-44-312254055.
•
VERIÐ ÁVALLT VELIiONIPÍ
í verslanir okkar að Royal Mile nr. 27
og Bank Street nr. 14 í Edinborg.
The Cashmere Store
Póstsendingaþjónusta • The Cashmere Store
• 207 High Street • Edinburgh EHl 1 PE
The Cashmere Store is a Limited Company
1992 FERÐAVIKAN 9