Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 26
THAILAiMD
FEKDIR:
► Phuket-eyja
er mjög for-
vitnileg fyrir
margra hluta
sakir. Þessi
sérkennilegi
kletturer
nefndur
„krabba-
augaö“.
Islendingar hafa farið
mjög víða á undanförnum
árum og alltaf eru nýir
áfangastaðir að bætast í hóp-
inn. Á síðustu árum hafa æ
fleiri Frónbúar lagt leið sína til
Tælands. Ferðaskrifstofur
hafa fylgst með þróuninni,
þekkja kröfur fólks og vita vel
hvar setja má mörkin hvað
varðar verð. Nú er svo komið
að það er litlu dýrara að ferð-
ast á fjarlægar slóðir eins og
til Tælands en að fara í hefð-
bundnar sólarlandaferðir. Ein-
hverju munar það í verði en á
móti kemur að verðlag í
Tælandi er mjög lágt auk
þess sem ævintýrin þar um
slóðir eru vafalítið meiri en
gengur og gerist í venjulegri
sólarlandaferð.
Vinsældir Tælands á meðal
ferðamanna frá Vesturlöndum
hafa aukist geysilega á und-
anförnum árum enda hafa
landsmenn nú umtalsverðra
hagsmuna að gæta á sviði
ferðaþjónustu og hafa því
komið mjög til móts við hina
fjölmörgu gesti sína.
Tæland hefur löngum verið
miðstöð menningar og trúar-
bragða í Suðaustur-Asíu.
Landamæri þess liggja að
Malasíu, Búrma, Laos og
Kampútseu. Fyrir vikið liggja
menningarlegar rætur Tæ-
lendinga víða og það gerir
mannlífið í landinu afar fjöl-
breytt og áhugavert.
Landið hefur verið sjálfstætt
síðan 1238 og var lengst af
konungsríki en er nú lýðveldi
og hefur löngum verið mikil
ólga í stjórnmálum þar. Frá
því 1980 hafa ýmsar sam-
steypustjórnir verið við völd
og staðist ýmsar valdaránstil-
raunir. íbúar Tælands eru um
52 milljónir og er mikill meiri-
hluti þeirra búddatrúar.
Segja má að vegna marg-
breytileikans megi finna í
Tælandi flest það sem hugur
hins vestræna ferðamanns
girnist, fjölskrúðugt mannlíf,
ÞARMÆTIST
HDGAMLA
(Hi \V.J\
Skoðunarferö
um Bangkok
er ævintýri
líkust. Þar
mætast
gamli tíminn í
formi æva-
gamalla
Austurlanda
og nýi tíminn
á sérkenni-
legan hátt.