Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 15
skemmtanir. Þar sitja píanó-
leikarar marga morgna og
leika létt lög fyrir gesti „hallar-
innar".
Verslanir og veitingahús
eru á allri neðstu hæðinni um-
hverfis húsagarðinn. Svalir
hafa verið byggðar á þrjá
vegu umhverfis garðinn út af
annarri hæð húsanna. Gömul
og dökk furuborð úr gamalli
Guinness-bjórverksmiðju voru
notuð í svalagólfin og sést
enginn munur á þeim og ald-
argömlum gólfum viðbygging-
anna, sem eru svarbrún og
harðlökkuð. Af þessum svöl-
um er gengið inn í bæði versl-
anir og veitingahús en síðan
er auðvitað líka hægt að
ganga milli hæða innan dyra.
SANNKÖLLUÐ
MENNINGARARFLEIFÐ
Powerscourt Townhouse
Centre er svo sannarlega
annað og meira en venjulegt
verslunarhús. Þangað er
hægt að koma til að skoða
gamla menningararfleifð íra á
sviði byggingarlistar, sem felst
í húsinu sjálfu. Þar er hægt að
njóta lista með því að skoða
listaverk, sem sýnd eru í
tveimur listasölum hússins en
annar þeirra var danssalur
hallarinnar. Allir helstu antik-
salar írlands bjóða gestum að
skoða og kaupa alls kyns dýr-
gripi. Þeir sem láta sér ekki
nægja að ganga í fjöldafram-
leiddum skóm geta fengið
þarna handsaumaða skó eftir
máli. írskir fatahönnuðir leggja
líka sitt af mörkum í þágu við-
skiptavina „hallarinnar“, auk
þess sem þarna eru verslanir
sem selja vörur frá öllum
helstu tískuhönnuðum heims.
Forsvarsmenn Powerscourt
Townhouse Centre leggja á
það mikla áherslu að hér sé
ekki aðeins um forna menn-
ingararfleifð að ræða, fólk
þurfi ekki að óttast að þarna
sé ekkert nema gamlir munir
og merkilegir, nóg er af vörum
sem samræmast nýjustu tísku
hverju sinni. Svo eru veitinga-
húsin ekki síður fjölbreytileg.
Meira að segja grænmetisæt-
ur geta brugðið sér á veitinga-
stað og fengið mat við sitt
hæfi.
Það sem ef til vill vakti hvað
mesta athygli mína var sá
mikli fjöldi gesta sem þarna
var inni og gerði, að því er
virtist, lítið annað en að
mynda það sem fyrir augu
bar. Og Ijósmyndararnir höfðu
vissulega úr nógu að moða
hvað myndefnið snerti. □
▲ I Solomon Gallery má sjá
sýningar frægra listamanna
en í upphafi vega var þarna
danssalur Powerscourts lá-
varðar og fjölskyldu hans
þar sem haldnir voru vegleg-
ir dansleikir.
A Um þetta
þrönga stræti
er gengið að
Powerscourt
Townhouse
Centre.
◄ Powerscourt Townhouse -
þetta var aðalinngangurinn f
höll lávarðarins. Nú eru
verslanir, sýningarsalir og
veitingarekstur í öllum her-
bergjum hallarinnar sem og í
vióbyggingunni sem reist var
umhverfis hallargarðinn.
Píanóleikari skemmtir við-
skiptavinum og öörum gest-
um.
DIBLINAR-
Leiðin aö
verslunar„höllinni“. T
Trinity College
GETA HEIMSOTT
RAEAVERfJLEGA
VERSLUMR^HOLL*