Vikan - 29.10.1992, Blaðsíða 22
KEMYA
▲ f búöum af
þessu tagi
gefst fólki
kostur á aö
gista meðan
á safaríferð-
inni stendur.
-4 Og svona
líta „tjöldin"
út aö innan.
SOI (Ki
SAIAKI
\ÝR OG FREISTANDIMÖGIILEIKI OPMST
▼ Þaö er
ekki ama-
legt aó
vakna upp
viö hljóöin
í fílahjöró-
inni á
morgnana
inni i miöj-
um frum-
skóginum.
Síðan í fyrra hafa Flug-
leiðir skipulagt safarí-
og sólarferðir fyrir (s-
lendinga fil Kenýa. Ferðirnar
hafa mælst mjög vel fyrir
enda bjóða þær upp á mögu-
leika sem Frónbúar hafa ekki
veitt sérstaka athygli fram að
þessu. Það má segja að hér
sé um að ræða ferðir á vit
ævintýranna - en þaulskipu-
lagðar og með fyrsta flokks
aðbúnaði og þjónustu allan
tímann. Boðið er upp á 14
gistingar annars vegar og 20
hins vegar og er verðið, mið-
að við að fólk búið í tvíbýli, frá
um 160.000 krónur. Innifalið í
verði er flug fram og til baka,
Keflavík - London - Nairobi,
gisting f 14 eða 20 nætur,
hálft fæði nema í safaríferðum
þar sem er fullt fæði, flutning-
ur til og frá flugvelli í Nairoþi
og enskumælandi fararstjóri.
Frá hótelunum, sem dvalið er
á, er haldið í margs konar
ferðir um villidýraslóðir og
hvaðeina í boði fyrir augu og
eyru sem Afrfka státar af fram
yfir aðra heimshluta.
Kenýa varð lýðveldi árið
1963 eftir að hafa verið undir
stjórn Breta síðan 1895.
Landið er á austurströnd Afr-
íku og liggur miðbaugur í
gegnum það. í norðvestur eru
ríkin Úganda og Eþíóþía, í
norðaustur er Sómalía og
Tansanía er fyrir sunnan.
Landið er álíka stórt og ísland
og eru íbúar um 22 milljónir
og fjölgar þeim um fjögur pró-
sent á ári hverju. Nairobi er
höfuðborg landsins og aðal-
miðstöð viðskipta. Aðalat-
vinnuvegur landsmanna var
lengi vel landbúnaðar auk
þess sem fiskveiðar skipa
háan sess - en nú hefur það
gerst að ferðaþjónusta er farin
að skila landsmönnum mest-
um gjaldeyri og á síðasta ári
komu um 800.000 ferðamenn
til landsins. Enska er ríkismál
síðan á nýlendutímanum en
auk þess tala landsmenn sva-
hili og fjölmargar mállýskur.
Ósnortin náttúra Kenýa er
margbreytileg og býður ferða-
mönnum upp á margt augna-
konfektið. Þeim gefst til dæm-
is kostur á að fara í ferðir til
að skoða dýralífið, náttúrufeg-
urðina og mannífið sem er
afar ólíkt því sem Vestur-
landabúar eiga að venjast.
Fyrir þá sem vilja verja hluta
leyfisins í sólböð eru allir
möguleikar opnir þvf að nóg
er sólskinið. Benda má á silf-
urhvítar strendur landsins en
eftir þeim má ferðast til bæj-
anna Mombasa, Malindi og
Lamu. Það svæði er bæði ó-
venjulegt og einkar fallegt.
Möguleikarnir eru óteljandi
og unnt að skipuleggja ferðir
eftir óskum hvers og eins,
hvort sem er með tilliti til æv-
intýra á villidýraslóðum eða
að prófa hina ýmsu golfvelli
sem sagðir eru mjög góðir.
ÞÆGILEGT LOFTSLAG
í Kenýa er hitabeltisloftslag.
Þar ríkir sumar frá því í des-
ember fram í mars en hitinn
fer sjaldnast yfir 32 gráður
þegar heitast er um miðjan
daginn. Þar eð Nairobi og
safarí-löndin eru á háslétt-
unni, um 1700 metra yfir sjáv-
armáli, er hitinn þar þægilegur
og raki lítill eða enginn í loft-
inu. Á hásléttunni getur hita-
stigið farið niður í 12 gráður á
nóttunni yfir sumartímann.
Apríl og maí eru regnmánuðir.
Þó rignir ekki látlaust dag eftir
dag heldur síðdegis eða á
nóttunni. Júní, júlí og ágúst
eru vetrarmánuðir í Kenýa.
Hitastigið þá er frá um 19 til
26 gráður á daginn og að mati
margra Evrópubúa er þetta
besti tíminn til að sækja land-
ið heim. Veðurfar er svipað í
september og fram í nóvem-
ber eins og í apríl og maí. Lít-
ils háttar rigning er í lok októ-
ber og byrjun nóvember.
Safaríferóirnar gefa fólki kost
á aó sjá sitt af hverju og upp-
lifa ævintýri sem þaö verður
líkast til vitni aö í þetta eina
sinn.