Vikan


Vikan - 29.10.1992, Síða 9

Vikan - 29.10.1992, Síða 9
 höfða til kvenna ef það ætti að ganga og sýndi virðingu sína fyrir þeim með því að láta fjölda stytta af konum í mismunandi þjóðbúningum Evrópu skreyta úthliðar húss- ins. Fyrirtækið hefur alltaf gegnt nokkuð mikilvægu hlut- verki í mannlífi borgarinnar og það þótti hýsa fínustu kaffi- húsin. Enn í dag má sjá mik- inn fjölda Edinborgara, sér- staklega úr hópi eldri kvenna, á kaffistofunum þremur sem þarna eru. Hinn verslunarkjarninn er Marks og Spencer en báðar þessar verslanir eru mjög hefðbundnar. Frá King James Thistle hótelinu er innangengt í stóra verslunarmiðstöð sem hýsir fjölda smærri verslana og verslunarútibúa, til dæmis hina vinsælu tískuvöruverslun Top Shop og svo líka stór- Út frá High Street er gaman að leggja lykkju á leið sína niður að Grassmarket. Á leið- inni er fjöldi smárra antikversl- ana sem eru jafnt með gömul föt, leirtau og húsgögn. Á þessari leið eru líka margar skemmtilegar krár gem stúd- entar sækja gjarna. Rétt utan við miðborgina er hverfi sem kallað er Stockbridge. Þar er fjöldi skemmtilegra smáversl- ana sem gaman er að skoða. íslendingar eru aufúsugest- ir í Edinborg enda þekktir fyrir að vera bæði hressir og eyðslusamir. Hvar sem maður fer heyrir maður talað um hve gott sé að fá þá til borgarinnar á haustin og margir sjá sér hag í að laða þá til sín með ýmsum hætti. Það er því vel þess virði að líta eftir tilboðum og afsláttarmiðum sem standa til boða. Á hverju kvöldi gefst fólki kostur á aö slást í för meö 18. aldar draugnum Adam Lyal sem leiöir þaö á vit fleiri drauga vítt og breitt um miðborgina. verslanir eins og John Lewis. Waverley Shopping Centre, sem er við hliðina á brautar- stöðinni, er einnig heimsóknar virði, bæði til að dást að vel heppnuðum arkitektúr og hönnun og finna ýmsar ágæt- ar sérverslanir. Waverley er alltaf opið á sunnudögum og þar er einnig að finna upplýs- ingaskrifstofu fyrir ferðamenn og miðasölu fyrir helstu listvið- burði, leiksýningar og óperur. Þegar beygt er af Princess Street eru margar smáar hlið- argötur með skemmtilegum sérverslunum. Það sama gild- ir um High Street þar sem líka er töluvert af minjagripaversl- unum og litlar hliðargötur út frá því. Á High Street er hægt að kaupa mikið af skoskum prjónavörum og svo auðvitað skotapilsin frægu. Þar er líka eitt þekktasta kasmírfyrirtæki Skotlands, Cashmere Store, með gott úrval af jökkum, kápum, sjölum og treflum. Cashmere Store er auk þess að finna á Bank Street en fyr- irtækið rekur einnig víðtæka og virta póstpöntunarþjón- ustu. FRÆG MENNINGARBORG Edinborgarhátíðin er senni- lega það fyrirbæri sem borið hefur nafn borgarinnar víðar en nokkuð annað. Hátíðin er löngu fræg um allan heim og þegar hún stendur yfir, í ágúst á hverju ári, tvöfaldast mann- fjöldinn í borginni. Alþjóðlegt yfirbragð læðist um hana og hún skartar venju fremur lit- ríku mannlífi enda er hér um að ræða eina stærstu menn- ingar- og listahátíð heims. Þótt borgin færist aftur í eðli- legt horf eftir að hátíðinni lýk- ur er alltaf mikið um listvið- burði. Borgin státar af West End hverfi þar sem góð stykki eru á fjölunum og á þessu hausti gefst fólki kostur á að berja augum Lundúnasöngleik- inn Me and My Girl. Þeir sem hafa gaman af góðum óperum og konsertum ættu líka að finna eitthvað við sitt hæfi. Edinborg er ein af þeim borgum sem auðvelt er að falla fyrir og það er ekki ósennilegt að fólki finnist það eiga margt ógert þegar nokk- urra daga viðdvöl þar lýkur. □ SKOSK KASMIRULL með flugpósti Þeir sem heimsótt hafa Edinborg og gengið um verslunargötuna Royal Mile hafa veitt athygli hinu stórkostlega úrvali af gæðavöru úr kasmírull í versluninni „The Cashmers Store". • nú getur þú einnig verslað þar þótt þú komist ekki til Edinborgar, því að pöntunariistinn fyrir haust og vetur 1992-93 er nú líka fáanlegur á íslandi. Verðlagið í ár er jafnvel lægra en í fyrra (frá 95 pundum). Við getum sent þér ailt það sem í listanum er í flugpósti og fullri ábyrgð. • Hafir þú áhuga á pöntunarlistanum okkar, sem þú færð frían, skaltu skrifa eða hringja: The Cashmere Store 14 Bank Street - Edinburgh - Scotland Sími: 90-44-312254055. • VERIÐ ÁVALLT VELIiONIPÍ í verslanir okkar að Royal Mile nr. 27 og Bank Street nr. 14 í Edinborg. The Cashmere Store Póstsendingaþjónusta • The Cashmere Store • 207 High Street • Edinburgh EHl 1 PE The Cashmere Store is a Limited Company 1992 FERÐAVIKAN 9

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.