Vikan - 11.06.1998, Blaðsíða 55
....Kaffí Reykjavík í
Kaupmannahöfn. Hjónin Nicolai
ThimogMargrétJónsdóttirflugfreyja
reka veitingastað kendan við
höfuðborgina okkar Reykjavík.
Staðurinn er við Rádhusstræde, rétt
við Strikið. Þar má finna íslensk blöð
og tímarit, hlusta á lifandi tónlist í
hádeginu á sunnudögum og svo er
íslenskur matur í boði á kvöldin. Á
matseðlinum má t.d. finna bleikju,
lunda, hákarl og brennivín. Snorri
Birgir Snorrason er yfirkokkur. Ekki
spillir fyrir að rabba við Nicolai en
hann talar íslensku eins og Frónbúi.
Amtsbókasafnið á Akureyri
llllllllllllllllllllll
ekki missa af
....Góðum morgunverði. Ólafur Sigurðsson,
arkítekt í Mosfellsbæ, gaf Vikunni uppskrift að gómsætum
ávaxtasafa sem hann útbýr á hverjum morgni. Það er góð
byrjun á sumardegi að setja ávexti í ávaxtakvörn, taka lýsi
á maðan ávextirnir maukast í vélinni og drekka svo þennan
orkudrykk: 1 epli, 1 appelsína, 1 pera, 1 kiwi, 1 gulrót, 1
mandarína. Namm!
03 591 125