Vikan


Vikan - 09.07.1998, Page 43

Vikan - 09.07.1998, Page 43
Reyndu ekki að passa manninn þinn í veislum eða stjórna gerðum hans. Reglurnar • Utskýrðu fyrir manninum þínum hvers vegna háttar- lag hans fer í taugarnar á þér. Gerðu það þegar þú ert í jafnvægi, ekki bíða þangað til sýður uppúr. • Gerðu ekki lítið úr mann- inum þínum með því að siða hann svo aðrir heyri til. Notaðu orðalag eins og...”mér líður illa af því ég tek alla ábyrgðina á ...” frekar en “ þú tekur aldrei ábyrgðina á ..” eða “þú lætur aldrei...” Síðar- nefndu setningarnar fela í sér ásökun, hin fyrri er að- eins ábending um það hvernig hegðun hans hefur slæm áhrif á þig og á þessu tvennu er mikill munur. • Reyndu aldrei að segja honum hvað honum finnst eða hvað hann hugsar. Þú ert ekki hugsanalesari. Þegar þú þarft að ræða málin skaltu halda þig við þínar eigin tilfinningar. • Ræddu bara hegðun hans, ekki persónuleika hans. Þú breytir honum hvort eð er ekki. • Ræddu aldrei nema eitt at- riði í einu. Ef gera á upp alla vankanta á samband- inu á einu bretti endar það með rifrildi og beiskju sem erfitt getur verið að laga seinna. • Rifjaðu aldrei upp öll skiptin sem hann hefur brotið af sér í þínum aug- um. Hann man það jafn vel og þú og kannski er það þér að kenna að þetta hefur gerst svona oft?! • Reyndu að skilja að fólk leggur misjafnt mat á hlut- ina. Sumum finnst hreint það sem öðrum finnst skítugt. Hver segir að þitt mat sé það eina rétta? • Settu aldrei kröfur sem þú veist að ekki er hægt að standa við, það er vísasta leiðin til að eyðileggja hjónabandið. • Það eru engir “sigurvegar- ar” í góðu sambandi. Gefðu því alltaf á móti þegar hann vill koma til rnóts við þig. Nöldur Vikunnar, Leiðinda boð og bönn Þjóðhátíðardagurinn 1998. Það er farið að líða á kvöldið. Veðrið er yndislegt. Rússíbanarnir spila á Ingólfstorgi. Eftir að hafa staðið þar drjúga stund ákveður vinahópurinn að færa sig yfir á Kaffi Reykja- vík, setjast þar utandyra og njóta sumarblíðunnar. Sum- ir ætla að fá sér kakó, aðrir kaffi og enn aðrir eitthvað sterkara. En engin borð eru útivið. „Því miður,” er svar- ið hjá barþjóninum. „Þið megið ekki fara með neina drykki út úr húsinu. Það er bannað eftir klukkan níu á kvöldin.” Fólkið spyr sig hvar í veröldinni það sé eiginlega statt - hringir svo í Vikuna daginn eftir og biður blaðamenn að leita svara: „Það verður að taka tillit til íbúa nærliggjandi húsa,” segir Signý Sen, fulltrúi hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík. „Þetta er ekki eingöngu ákveðið af lögreglunni, heldur líka af borgaryfirvöldum. Þessar reglur hafa verið við lýði í mörg ár. Það eru nokkur ár síðan veitingahúsaeig- endur óskuðu eftir að fá að vera með veitingar ut- andyra. Það var kvartað undan því og þess vegna sett þessi tímamörk, en það þarf að sækja um leyfi til að bera veitingar fram útivið. Leyfin eru takmörkuð þannig að þetta leyfist eingöngu á tímabilinu frá maí til september - til klukkan níu á kvöldin. Á öðrum tíma ársins er bannað að njóta veitinga utan dyra veitingahúss”. Kæri lesandi, er eitthvað sem ergir þig? Sendu okkur línu. „Nöldur Vikunnar". Vikan Seljavegi 2,101 Reykjavík eða hringdu í símsvara Vikunnar s: 515-5690

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.