Vikan - 09.07.1998, Page 48
skerma. Þeir eru seldir í raf-
tækjaverslunum um land allt
en einnig hefur fólk komið
til þeirra í Skermahúsið með
sérstakar óskir:
„Það er mjög algengt að
fólk komi með lampafót sem
því er annt um,” segja þau.
„Margir hafa fundið gamla
lampa við tiltekt í geymsl-
unni, öðrum hefur áskotnast
gamall lampi sem þeir vilja
láta gera upp. Lampar eru að
komast í tísku aftur og kast-
arakerfið er að líða undir
lok. Þriggja arma standlamp-
arnir eru orðnir svo vinsælir,
að færri fá en vilja. Við höf-
um varla haft undan að búa
til skerma á slíka lampa.”
Kristján Karl getur hannað
skerma á allar gerðir af
lampafótum og úrvalið í efn-
um er mikið hjá þeim. Þau
bjóða líka þá þjónustu að
búa til skerma úr gardínuefni
vilji fólk hafa lampaskerma í
stíl við gardínurnar. En þau
framleiða ekki bara fyrir ein-
staklinga, fjöldi hótela skipt-
ir við þau. En hversu langan
tíma tekur að búa til lampa-
skerm?
„Það getur tekið drjúgan
tíma,” segja þau. „Fyrst þarf
að hanna skerminn, síðan
smíða grindina, þá þarf að
líma og loks sauma efnið á.
Ljósdrappaðir, vínrauðir og
grænir litir eru áberandi vin-
sælastir í skermum, hvað
sem veldur því.”
Hugmyndirnar að
skermunum fæðast í kolli
þeirra en þau segjast líka
skoða mikið blöð og útfæra
hugmyndir úr þeim. Verðið á
skermum er frá um eitt þús-
und krónum upp í tíu þús-
und, en það fer auðvitað eft-
ir stærð, efni og vinnu hvað
hver skermur kostar: „Auð-
vitað er þetta allt saman
handavinna sem tekur tíma,”
segir Ingibjörg. „Við fáum
aldrei sannvirði fyrir vinn-
una - en við reynum að vera
sanngjörn og meðan við
njótum starfsins erum við
ánægð”.
Nýjasta framleiðslan: Veggljós. Hér er ekki eingöngu um skerm-
inn að ræða, heldur framleiða þau hjónin lampann frá grunni.
Þessi skermur er úr flaueli, skreyttur irjeð gullsnúru og dúski og
fæst í nánast öllum litum og úr öðrum efnum. Öðruvisi veggljós
en við eigum að venjast! mpmm
úr hótelrekstri í skermagerð í Safamýrinni
Þegar hjónin Ingibjörg Sigurðardóttir og Kristján Karl Guðjónsson
fluttu heim frá Lúxemborg fyrir rúmum 3 árum voru þau ekki
viss um hvað þau ættu að taka sér fyrir hendur. Kristján
Karl, sem er flugmaður að mennt, segir að hann hafi þó
að minnsta kosti vitað að hann væri orðinn of fullorðinn til
að fá starf sem flugmaður. viðtai: Anna Kristine Magnúsdóttir
Myndir: Gunnar Gunnarsson
Þá kviknaði hugmynd-
in að gerð lampa-
skerma. Ingibjörg
hafði séð óvenjulega lampa-
skerma í verslun í Frakk-
landi, keypt einn og sprett
honum upp til að sjá hvernig
hann væri búinn til.
„Nei, ég hafði aldrei áður
komið nálægt skermagerð!”
segir hún. „Ég liafði starfað
sem hárgreiðslumeistari og
rak síðar Eddu hótel fyrir
norðan í átta ár, þangað til
við fluttum til Lúxemborgar.
Þar rákum við hótelið „Le
Roi Dagobert” í sjö ár - en
þá var hótelbakterían líka al-
veg horfin úr mér.J”
Þau keyptu lager af manni,
sem hafði framleitt skerma í
Reykjavík í 25 ár, pöntuðu
efni frá Þýskalandi og
Hollandi og hófust handa.
Þótt þau hafi keypt öll verk-
færi af manninum nota þau
nánast eingöngu núna verk-
færi sem Kristján Karl smíð-
ar.
„Ég hef alltaf verið hrifin af
lömpum og aldrei þolað loft-
ljós,” segir Ingibjörg. „Krist-
ján Karl sér um hönnunina á
skermunum, en ég sauma
það sem sauma þarf og geng
frá.”
Fyrsti skermurinn leit dags-
ins ljós fyrir einu og hálfu ári
og þau giska á að þegar hafi
þau búið til um eitt þúsund
LAMPASKERM
48