Vikan - 31.05.1999, Blaðsíða 6
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Myndir: Úr einkasafni
Hestaferðir um
óbyggðir íslands
njóta vaxandi vin-
sælda, bæði meðal
íslendinga og er-
lendra ferðamanna.
Fyrir hestamenn eru
sumarferðirnar
toppurinn á tilver-
unnni. Erfiðiðí
kringum hestana í
leiðindaveðri yfir
vetrarmánuðina
gleymist þegar vel
heppnuð sumarferð
eraðbaki. Fyrir
hina óvönu getur
sumarferð vakið
löngun til að eignast
hest og stunda
hestamennsku allt
árið um kring.
Nokkrir félagar í hesta-
mannafélaginu Gusti
hafa farið saman í
sumarferð allt frá árinu 1991.
Við kíklum inn í eina kaffistof-
una í Gustshverfinu og hittum
að máli þrjá félaga úr ferða-
hópnum þá Sturlu Snorrason,
Guðmund Tryggvason og Sæv-
ar Kristjánsson.
Ekki vantaði gestrisnina hjá
hestamönnunum. Blaðamanni
var boðið upp á kaffi og með-
læti að hætti hússins sem reynd-
ist vera kremkex frá Frón. Fé-
lagarnir voru uppteknir af að
ræða um járningar og úrslit al-
þingiskosninga komu til tals
Greinilegt að menn voru ekki á
eitt sáttir um hver hefði unnið
en komust þó að ásættanlegri
niðurstöðu. Að allir væru sig-
urvegarar! Eftir líflegar um-
ræður voru þeir tilbúnir að
hlýða á fyrstu spurninguna sem
kom þeim kannski ekki á óvart.
Hvað olli því að þessi ianglífi
ferðahópur varð til?
Sævar upplýsir að hesta-
mannafélagið Gustur hafi upp-
haflega staðið fyrir sumarferð
árið 1989. Sú ferð tókst vel og
ákveðið að fara aftur að ári
iiðnu. Hópur fólks, sem var
með í þessari för, ákvað að
stofna sinn eigin ferðahóp.
Hópurinn er misjafnlega stór á
milli ára en yfirleitt reynt að
halda félagahópnum í kringum
tuttugu. Ákveðin hefð hefur
skapast eins og að
eldri félagar þurfa
að samþykkja
nýja hópfélaga.
Meðlimir ferða-
hópsins mega taka sér frí eitt
sumar en ef þeir koma ekki
með tvö ár í röð detta þeir sjálf-
krafa út.
Sextíu ára aldursmunur
Hópurinn hefur tekið rnikl-
um breytingum frá árinu 1991.
Sævar og Guðmundur eru þeir
einu sem hafa farið með öll
árin. Veikindi, meðgöngur og
aðrir áhrifaþættir hafa hamlað
því að sumir félagar hafi komist
með. Þeir sem ekki hafa geta
riðið með hafa oft heimsótt
hópinn á áfangastað. Sturla
hefur líka verið duglegur, ein-
ungis sleppt úr einni ferð. Aðr-
ir hafa bæst seinna inn í hópinn.
Margir gætu haldið að hér væri
á ferðinni hreinræktaður karla-
klúbbur en svo er ekki. Að
sjálfsögðu bjóða þeir sínum
heittelskuðu með í rómantíska
fjallaferð, eins og sönnum
herramönnum sæmir. I hópn-
um er töluvert mikið af hjóna-
fólki og í einni ferðinni voru
þrír ættliðir samankomnir. Sjö
ára stúlka, foreldrar hennar,
amma og afi. Félagarnir minn-
ast þess að í eitt skipti var tíu
ára strákur með í för og jafn-
framt annar ferðafélagi um sjö-
tugt. Tekinn var mynd af þeim
þar sem sextíu ár skildu á milli.
Ljóst er að aldur er afstætt hug-
„Höfum mætt jákvæðu
viðmóti hjá bændum og þeir
tekið vel á móti okkur."
6 Vikan