Vikan


Vikan - 22.02.2000, Qupperneq 47

Vikan - 22.02.2000, Qupperneq 47
sem þú og bölvuð mamma þín þráið svo mikið. Það verður að minnsta kosti ekki mitt barn!“ Samviskubit Lauru minnk- aði þegar hún minntist þessara síðustu orða Dirks. í fyrstu höfðu þau brennt sig inn í hjarta hennar, fyllt hana sekt- arkennd og sársauka. í raun var það sektarkenndin sem hafði komið í veg fyrir að hún reyndi að sættast við Dirk á eftir. Hún elskaði hann og saknaði hans alveg hræðilega mikið en hún hafði verið viss um að hann væri betur kom- inn án hennar. Kannski myndi hann finna einhverja „venju- lega“ konu til að giftast sem yrði ófrísk strax og myndi ekki kvelja hann með undar- legri hegðun sinni. Laura hafði nefnilega verið viss um að þrátt fyrir allt langaði Dirk líka að eignast barn. Móðir hennar hafði hins vegar verið á öðru máli. „Framagjarnir menn eins og hann vilja í raun og veru ekki eignast börn,“ hafði Vera sagt með sinni venjulegu kald- hæðni. „Þeir lifa fyrir vinnuna og konur hafa aðeins eitt hlut- verk í þeirra lífi og við vitum nú hvað það er. Börnin eru bara umborin til að halda eig- inkonunni ánægðri,“ voru lokaorð Veru. Laura hafði ekki verið sam- mála Veru og varði Dirk af ákafa. Þess vegna hafði henni brugðið mjög er hún komst að því nokkrum mánuðum síðar að Vera hafði rétt fyrir sér í þessum efnum. Hún mundi þetta eins og það hefði gerst í gær. Laura hafði verið ein heima í sorg sinni því móðir hennar hafði dáið úr kransæðastíflu viku áður. Þær höfðu ekki átt aðra að því Vera hafði verið mun- aðarlaus og átt Lauru í lausa- HNEYKSLANLEGT BÚNORB leik eins og þá var sagt. Faðir Lauru var ríkur kaupsýslu- maður og glaumgosi sem hafði yfirgefið Veru um leið og hann komst að því að hún var ófrísk. Eina aðstoðin sem hann hafði boðist til að veita var að borga fyrir fóstureyð- ingu. Hann hafði síðan dáið í þyrluslysi þegar Laura var tveggja ára. Dirk hafði alltaf haldið því fram að þessi reynsla Veru hefði gert hana bitra og að hún hefði komið inn undarleg- um hugmyndum inn hjá Lauru um karlmenn og kynlíf. Hann hafði meira að segja ásakað Lauru um að leyfa móður sinni að heilaþvo sig og stjórna kynlífi þeirra óbeint. Laura skyldi samt ekki hvernig hann gat sagt annað eins. Hafði hún ekki látið undan löngunum sínum og farið í rúmið með honum á þeirra fyrsta stefnumóti þrátt fyrir að hún væri hrein mey? Auðvit- að hafði hún haft svolítið sam- viskubit yfir því fyrst hversu auðveldlega honum hafði tekist að tæla hana í rúmið. Hún hafði líka hugsað um orð móður sinnar þess efnis að maður eins og Dirk þráði bara líkama hennar. Hann var líka tíu árum eldri en hún og góð- ur sakamálalögfræðingur en hún var á þeim tíma bara af- greiðsludama í stóru vöruhúsi. Það eina sem henni fannst hún hafa fram að færa á þeim tíma var fallegur vöxturinn, svart liðað hárið og frítt and- litið. En Dirk hafði sagt að hann elskaði hana og nokkrum mánuðum síðar höfðu þau gift sig, móður hennar til mikillar gremju. Ekki það að aðvaran- ir móður hennar hefðu haft neitt að segja. „Þetta snýst bara um kynlíf af hans hálfu,“ hafði Vera sagt. „Sjáðu til eftir eitt til tvö ár hvort hann verð- ur ekki orðinn leiður á hjóna- bandinu. Hann mun heldur ekki leyfa þér að verða ófrísk!“. Vera hafði haft rétt fyrir sér að því leyti að Dirk hafði ekki viljað að Laura yrði ófrísk á fyrsta ári þeirra í hjónaband- inu. Hann hafði sagt að þau þyrftu tíma til að kynnast hvort öðru áður en þau eign- uðust barn saman. En þegar hún hætti síðan á pillunni virt- ist hann vera mjög spenntur yfir tilhugsuninni að hún gæti gengið með barn hans. Þung- unarprófið hafði hins vegar verið neikvætt og læknirinn hafði sagt henni að þótt hún hefði ekki haft blæðingar væri hún ekki ófrísk heldur stafaði það af minni háttar hormón- arugli. Hún hafði fengið lyf við því en samt sem áður ekki tekist að verða ófrísk. Hún hafði reynt að vera bjartsýn og vongóð í meira en ár. En þegar mánuðirnir liðu varð hún taugastrekktari og sam- bandið milli hennar og Dirks versnaði. Kynlíf þeirra varð smátt og smátt að vísindatilraunum sem bara voru framkvæmdar þegar tíminn var réttur, lík- amshiti hennar réttur og jafn- vel þegar afstaða stjarnanna var rétt að hennar mati! Þetta hafði orðið að algjörum skrípaleik. Laura hafði séð fá- ránleikann í þessu öllu saman um leið og Dirk fór frá henni. Svo hafði hún óskað sér að hún gæti helst horfið aftur í tímann og breytt því sem gerst hafði á milli þeirra. Hún hafði að minnsta kosti óskað sér þess þar til í kvöld er hún hitti Dirk með þessari kynbombu. Laura fékk sting í hjartað og seig niður í sætið. Hún hafði verið svo hamingjusöm þegar hann kom aftur að heimsækja hana nokkrum vik- um eftir rifrildið þeirra. Svo fáranlega hamingjusöm... „Mér þykir fyrir því sem ég sagði um mömmu þína,“ hafði hann sagt er hann settist niður með kaffibolla hjá henni þennan dag. „Eg veit að við náðum ekki vel saman en ég veit að henni þótt vænt um þig Laura, kannski einum of vænt um þig.“ „Já kannski er það rétt,“ hafði hún sagt í von um að hann hefði komið til að sætt- ast við hana. Hún hafði verið svo hræðilega óhamingjusöm og einmana síðan hann flutti út. Þau höfðu bara sést einu sinni síðan þá er hann hafði komið til að sækja afganginn af eigum sínum og til að segja henni að hún gæti haldið íbúð- inni, innbúinu og bílnum sem hann hafði gefið henni. En hann hafði ekki komið til þess að sættast.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.