Vikan


Vikan - 26.09.2000, Side 4

Vikan - 26.09.2000, Side 4
Kæri lesandi kólinn er byrjaður með tilheyrandi umrœðu um skólamál og kennara- skort. Astandið hefur aldrei verið verra og það er vœgast sagt hörmulegt í mörgum skólum þar sem ekkifást menntaðir kennarar til starfa. Því miður virðast yfirvöld hafa tiltölu- lega litlar áhyggjur afþessum vanda og þegar kennarar og foreldrar byrsta sig yfir ástandinu og lýsa vanþóknun sinni á því að réttindalaust fólk sé fengið til kennslustarfa er því borið við að þetta sé vel menntað og gottfólk og svo ber að skilja að þakka megi fyrir að það skuli vilja starfa við skólana. Það er enginn að gera lítið úr leiðbeinendunum með því að gagnrýna þetta ástand, þeir eru bara ekki kennarar og eiga því ekki að stunda kennslustörf. Kennari þaif ekki einungis að vera betur menntaður en börnin eða að vita meira en þau. Kennari þarfheldur ekki að vera sér- staklega „góð“ mannskja (hvað sem átt er við með því ?!). Kerinarinn þarf umfram allt að kunna að KENNA! Eg er sjálf kennari og stund- aði kennslu í átta ár og veit fullvel að það sem skiptir máli er að hafa lag á börnunum (unglingunum), geta haldið aga og að kunna leiðir til að gera námsefitið skemmtilegt og skiljanlegt. Það erfyrst og fremst kenn- aramenntunin og -reynslan sem gerir manni það kleift þótt það saki sjálfsagt ekki að vera „góð manneskja Skortur á menntuðum kennur- wn til staifa í skólunum er mjög alvarleg staðreynd og skömin í íslensku þjóðfélagi og því verður að breyta efmennt- un í landinu á ekki að hraka hönnulega á nœstunni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það þarf að gera skólann að- laðandi fyrir kennara og nem- endur, öðru vísi nœst ekki ár- angur. Það þaifaðeins tvennt til þess: MANNSÆMANDILAUN til kennara, til þess að duglegt og metnaðarfullt fólk sœki í kennslustöifog haldist við þau, og AGA. Já, aga. Eg þekki marga góða og reynslumikla kennara sem eru aðflýja úr kennslunni um þessar mundir. Það kann að koma mörgum á óvart, en það er ekki vegna þess að þeir hafi ekki nœgilega há laun, heldur vegna þess að þeirfá ekki lengur að halda uppi aga í skólastofunni. Agaleysið í skólunum er í raun enn alvar- legra vandamál en hin bágu kjör kennara. Það þarfnefni- lega ekki nema einn brjálœð- ing í hvern bekk til að eyði- leggja allan veturinn fyrir kannski 18-23 öðrum börnum og kennarinn má ekki taka á vandanum! Hvenœr œtlar okkur Islending- um að skiljast að það er ekki hœgt að halda uppi skólastarfi án aga? Hvað œtla foreldrar að láta bjóða sér það lengi að einhver einn einstaklingur leggi skólagöngu barnsins þeirra í rúst án þess að kenn- ararnir og skólastjórnin taki á málunum? Svari nú hverfyrir sig. Og meðan ég er að tala um aga má ég til með að nota tœkifœrið og senda Geir Jóni Þórissyni, yfirlögregluþjóni í Reykjavík, aðdáunarh’eðju. Sem blaðamaður stóð ég heils hugar með „mínum mönnum“ í deilunum sem spruttu vegna heimsóknar kínverska þingfor- setans hingað um dagana. Eg gat þó ekki annað en dáðst að Geir í rökrœðum hans um málið í útx’arpi. Maðurinn er snillingur í mannleguin sam- skiptum og aldeilis frábœr sáttasemjari að eðlisfari. Lög- reglan gœti ekkifundið betri mann til að koma fram fyrir almenning þegar eitthvað bjátar á íþjóðfélaginu. Jólianna Harðardóttir ritsjóri Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir, vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, simi: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, sími: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512. Blaóamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð i áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Óll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.