Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 12
tíma að minnka og laga hvort
brjóst um sig.
Eins og í brjóstastækkunar-
aðgerðum og öðrum aðgerð-
um þar sem sjúklingurinn er
svæfður fylgir brjóstaminnk-
unaraðgerðum viss áhætta
varðandi sýkingar, ofnæmi og
fleira en, sem betur fer, eru
mikil vandræði samfara
brjóstaminnkunaraðgerðum
frekar sjaldgæf.
STÚR ÖR
Konur sem fara í
brjóstaminnkun ættu að gera
sér grein fyrir því að þessari
aðgerð fylgja mikil og stór ör.
Örin eru löng og bleik og
jafnvel þótt ör lýsist yfirleitt
með tímanum er það ekki
sjálfgefið í þessum tilfellum.
Sem betur fer eru örin þó á
neðanverðum brjóstunum og
því hægt að fela þau.
Eðiilegt er að konan sé
aum, bólgin og viðkvæm
fyrstu dagana eftir aðgerð en
hún ætti að geta farið að
vinna um tveimur vikum eft-
ir aðgerð.
Kynlíf fyrstu tvær vikurnar
eftir aðgerð getur verið vara-
samt þar sem saumar geta
rifnað við það. Konan ætti
einnig að forðast að reyna
mikið á sig eða stunda líkams-
rækt fyrstu sex vikurnar eftir
aðgerð.
Umhirða brjóstanna eftir
aðgerð er því afar mikilvæg,
Konan ætti að ganga í góðum
íþróttabrjóstahaldara sem
styður vel við brjóstin, halda
þeim hreinum og hlífa þeim
brjóst,“ segir „Lilja“ sem er
tæplega þrítug.
„Aðgerðin sjálf gekk ágæt-
lega og þrátt fyrir stór ör og
talsverðar bólgur á eftir leið
mér tiltölulega fljótt vel með
nýju brjóstin. Eg fór niður í
stærð 36 C sem er alveg pass-
legt fyrir mig og gel nú gengið
í flegnum bolum og þröngum
peysum án þess að vera nokk-
uð að hugsa um brjóstin."
KVENLEGRIEN ÁÐUR
„Ég rétt fyllti út í brjósta-
haldara númer 32 AA áður
en ég fór í brjóstastækkun. Ég
keypti mér alltaf brjóstahald-
ara með stórum púðum og gat
aldrei keypt þá hérlendis þar
sem verslanir hér virðast ekki
selja svona litla haldara," seg-
ir „Alda“ sem er tuttugu og
sex ára.
Ég er í föstu sambandi og
kærastanum mínum leist fyrst
ekkert á það að ég færi í
brjóstastækkun. Sumar vin-
konur mínar héldu að hann
hefði att mér út í þetta en ég
gerði þetta bara fyrir mig og
mitt sjálfstraust. Eg hafði átt
nokkra kærasta á undan hon-
um og enginn þeirra hafði
haft orð á því að ég væri með
oflítil brjóst. Flestir karlmenn
eru þó, þrátt fyrir allt, tillits-
samari en svo! Mér sjálfri
fannst ég hins vegar alltaf
voðalega stráksleg og var orð-
in þreytt á því að þora ekki í
sund vegna brjóstanna eða
geta ekki gengið í flegnum
bolum nema að vera í ein-
hverjum brjóstahaldara með
risapúðum.
Ég vissi að það væri ekki
sniðugt að fá sér mjög stór
brjóst, enda væri það svo
áberandi og óeðlilegt svo ég
sættist á að fara upp í 34 B. Ég
er mjög ánægð með árangur-
inn og finnst ég bæði kvenleg
og kynþokkafull núna.“
eftir mætti til að minnka hætt-
una á blæðingum og sýkingum.
NÝTT LÍF MED MINNI
RRJÓSTUM
„Ég fór í brjóstaminnk-
unaraðgerð þegar ég var tutt-
ugu og tveggja ára görnul og
hefði viljað fara miklu fyrr. Ég
er ekki nema 162 sm á hæð
en notaði fyrir aðgerðina
brjóstahaldara í stærðinni 38
DD. Ég var alltaf mjög með-
vituð um brjóstin á mér og
fannst þau allt of stór og í
engu samræmi við aðra lík-
amhluta þar sem éy er frekar
grönn og fíngerð. Ég var ekki
í föstu sambandi þegar ég fór
í aðgerðina, enda fór ég bara
fyrir sjálfa mig og engan ann-
an. Ég vissi að sennilega gæti
ég ekki haft barn á brjósti í
framtíðinni ef ég færi í
brjóstaminnkun en mér
fannst það lágt gjald að greiða
fyrir minni og meðfærilegri
12 Vikan