Vikan


Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 6

Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 6
S p u r n i n g l i Arna Krisljánsdóttir er hress og bjartýn hona á fertugs- aldri sem sagði upp góðri vinnu tii að stotna fyrirtæki sem er eitt sinnar tegundar á landinu. Fyrírtækíð heitir flink og sérhæfir sig meðal annars í nokkru sem heitir rýmislausnir og ráðgjöf fyrir uerslunareigendur. „Ég var að vinna sem svæð- ~ isstjórisérvöruhjáHagkaupí -n Kringlunni og sá því um allt •=> annað en matvöruna. Þangað o> var ráðinn heimsþekktur ^ bandarískur ráðgjafi sem ^ heitir Jim Schafir og hefur ~ meðal annars endurskipulagt bandarísku Wal-Mart versl- = unarkeðjuna. Hann kom til — okkar til að kenna yfirmönn- c um Hagkaups hvað hefur = áhrif á ákvörðun um kaup, <■= hver eru lykilatriðin viðvöru- framsetningu og hvernig er >< best að skipuleggja það rými — sem maður hefur í búðinni. Ég hafði unnið nokkuð lengi í þessum geira og haft áhuga á þessum málum. Margt af því sem hann sagði var mjög rök- rétt og virtist liggja í augum uppi þegar hann sagði það. Eftir þetta fór ég að hugsa um hvort ekki væri hægt að halda svona námskeið hérlendis til að hjálpa búðareigendum að koma vörum sínum betur á framfæri. Það er nefnilega staðreynd að allt verður fyrir áhrifum frá umhverfinu, ekki síst við- skiptavinir verslana. Gott skipulag verslunarrýmis og góð vöruframsetning eru því ákaflega mikilvægir þættir og geta skipt sköpum um aukna sölu,“ segir Arna og það er greinilegt að nýja fyrirtækið er ekki bara viðurværi henn- ar heldur einnig áhugamál. Að hrökkua eða stökkua Arna viðurkennir fúslega að það hafi verið mikið stökk fyrir konu með fjölskyldu að segja upp góðri, fastri vinnu til þess að fara út í eigin rekst- ur og þar að auki rekstur sem ekki hefur verið reyndur hér- lendis áður. „Þetta var bara spurning um að hrökkva eða stökkva“ segir Arna brosandi. „Ég hafði reyndar komið nálægt rekstri áður þar sem ég rak saumastofu um skeið. En þegar ég rak hana hafði ég ekkert vit á rekstrinum og seldi vinnu mína alltof ódýrt. Þess vegna dreif ég mig á námskeið hjá Iðntæknistofn- un þar sem kennd var stofn- un og rekstur smáfyrirtækja. Ég lærði gífurlega mikið af námskeiðinu því þar sá ég hvað var mögulegt og hvað ekki. Þar lærði ég að gera alls kyns áætlanir og gat því séð vel fyrir mér hvað ég þyrfti að gera. Samt sem áður tók und- irbúningurinn við stofnun fyr- irtækisins mun lengri tíma en ég ætlaði mér, eða um þrjá og hálfan mánuð, en ég hafði áætlað að undirbúningstím- inn yrði um sex vikur,“ segir Arna hlæjandi. En er einhver þörf fyrir slíka þjónustu í verslunum hérlendis? „Já, það held ég. Áður en ég starfaði hjá Hagkaup starf- aði ég sem verslunarstjóri hjá dönsku verslunarkeðjunni CHA CHA og þar kynntist ég því vel hversu miklu máli það getur skipt hvernig verslunin er skipulögð hvort fólk kaup- ir eitthvað. Varan þarf að vera sýnileg því tilviljun ein ræð- ur því oft hvað fólk kaupir,“ bætir Arna við. Konur eru jarðbundnari Arna lofar mjög námskeið Iðntæknistofnunar sem eru öllum opin en segir jafnframt að meirihluti þeirra sem var á námskeiðinu hennar hafi verið konur sem hafi viljað stofna smáfyrirtæki. Hugsa konur smærra í viðskiptum en karlar? „Já, sennilega gera þær það að einhverju leyti. Þær byrja smátt, taka minni lán, eru jarðbundnari og varkárari en karlarnir sem stofna kannski stór hugbúnaðarfyrirtæki með fjölda starfsmanna í fyrstu atrennu á meðan kon- urnar eru allt í öllu í sínu litla fyrirtæki. En það er ekki þar með sagt að fyrirtæki kvenn- anna geti ekki stækkað og dafnað eins og t.d. líkams- ræktarveldi Jónínu Ben og fleiri kvennafyrirtæki sanna. Það er alla vega staðreynd að smáfyrirtæki kvenna hér- lendis ganga yfirleitt vel og kannski hafa þær bara ein- 6 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.