Vikan - 26.09.2000, Blaðsíða 55
Lögrclguincnn aö gcra fil-
raunir fil art livulla giimbát
cins og þciin scni Randy rcri
út á vatnirt nicrt Cynthiu.
og ástúðlegri framkomu en líkt
og áður var tilfinningahiti hans
fljótur að kólna þegar í hjóna-
bandið var komið. Donna var
einnig beðin um að taka sam-
eiginlega líftryggingu og hún
gerði það.
Bjargað á elleftu stundu
Donna var hins vegar ekki
ein á báti. Fjölskylda hennar
var mjög samrýnd og móður
hennar fór fljótlega að renna í
grun að nýi tengdasonurinn
væri ekki allur þar sem hann var
séður. Donna sjálf fann einnig
til mikillar og vaxandi tor-
tryggni og þær mæður ræddu
þetta sín á milli. Foreldrar
Donnu voru mikið íþróttafólk
og ákveðið var að ungu hjónin
færu með þeim í gúmbátasigl-
ingu eftir á í nágrenninu. I þeirri
ferð sigldi bátur þeirra Donnu
og Randys á sker og Donna
hentist fyrir borð. Bátarnir
höfðu skilist að á flúðum í ánni
og bátur foreldra Donnu borist
niður þær á undan hinum. Móð-
ir hennar fékk sterklega á til-
finninguna að eitthvað væri að
og beið því átekta fyrir neðan.
Fíún heyrði síðan dóttur sína
kalla á hjálp, sá hana berast nið-
ur flúðirnar og ná taki á steini í
ánni. Þaðan tókst foreldrum
hennar að bjarga henni og ekk-
ert þeirra efaðist um að Randy
hafði reynt að drepa konu sína.
Donna flutti umsvifalaust frá
honum og sótti um skilnað
stuttu síðar. Án efa bjargaði það
lífi hennar.
Cynthia Loucks Baumgar-
tner varð síðasta fórnarlamb
Randys. Þau hittust árið 1990
þá voru liðin fimm ár frá því að
maður hennar Tom Baumgar-
tner hafði dáið úr Hodgkin’s
sjúkdómnum. Allan þann tíma
hafði Cynthia lifað fyrir syni
sína tvo og engan áhuga sýnt á
karlmönnum. Pegar hún hitti
Randy fannst henni eins og þar
væri á ferð maður sem hefði
hreinlega verið klæðskerasnið-
inn að hennar smekk og þörf-
um. Þau fóru sjaldnast neitt án
þess að börnin væru með í för
og þess utan var umhyggjusemi
og rómantísk blíða Randys
einmitt það sem Cynthia hafði
Klcttadrangurinn þar sem Janis Miranda Roth hrapaði niður.
var afskiptalítill um börn sín
eftir það. Hann sveikst um að
borga barnsmeðlög en þrátt fyr-
ir það mat Randy hann mikils
og heimsótti föður sinn oft eft-
ir að hann varð fullorðinn.
Randy trúði á mikinn aga og
líkamlega áreynslu. Vitað var
að hann refsaði syni sínum
grimmilega fyrir allar ávirðing-
ar, hversu smávægilegar sem
þær voru, og einu sinni höfðu
barnaverndaryfirvöld afskipti
af þeim feðgum þess vegna.
Yngri bróðir Randys hafði
einnig orðið konu að bana.
Hann var vart af barnsaldri þeg-
ar hann nauðgaði og drap bak-
pokaferðalang sem leið átti um
heimabæ fjölskyldunnar. Systur
Randys og móðir mættu til rétt-
arhaldanna og þær vöktu mikla
athygli fyrir áberandi klæða-
burð, uppsett hár og mikinn
andlitsfarða í sterkum litum.
Kannski leitaði Randy þess
vegna að feimnum konum sem
voru góðar mæður og leituðu
ekki mikið út fyrir heimilið.
Randy Roth situr enn í fangelsi
og enginn veit með vissu hvað
gerði hann að því kaldlynda
skrímsli sem hann er. Sú stað-
reynd að hann kunni og vissi
nákvæmlega hvernig leika átti
góðan, hlýjan mann til að heilla
konur gerir sviksemi hans og
óþokkaskap eftir á enn verri.
ðnnur kona fellur útbyrðis
Hjónabandið hafði ekki stað-
ið lengi þegar hjónin fóru í
skemmtiferð að vatni rétt hjá
heimili þeirra. Drengirnir léku
sér á ströndinni en Cynthia og
Randy reru út á vatnið í
gúmbáti. Skyndilega sást til
Randys þar sem hann reri að
landi en Cynthia var í fyrstu
hvergi sjáanleg, síðan sáu menn
að hún hékk við borðstokk
bátsins. Reynt var að blása í
hana lífi en það var of seint, hún
hafði drukknað. Randy sagði
að stór mótorbátur hefði ekið
fram hjá þeim úti á vatninu og
bylgjur frá honum náð að
hvolfa gúmbátnum. Nú var yf-
irvöldum nóg boðið og þau
hófu umfangsmikla rannsókn
á fjárreiðum, tryggingamálum
og fyrri hjónaböndum Randys.
alltaf leitað eftir hjá karlmönn-
um. Cynthia var efnuð því mað-
ur hennar hafði verið vel
tryggður og auk þess var
tengdafaðir hennar vel efnum
búinn. Hann elskaði sonarsyni
sína og hina ljúfu, blíðlyndu
móður þeirra og vildi því allt
fyrir þau gera.
1 fyrstu leist honum vel á
Randy og hann hafði löngum
hvatt Cynthiu til að giftast aft-
ur. En líkt og áður var fljótt
komið annað hljóð í strokkinn
þegar brúðkaupið var um garð
gengið og hjónin búin að kaupa
góða líftryggingu. Vinir Cynt-
hiu og fyrrum tengdafaðir
hennar tóku fljótt eft'r að brúð-
urin unga ljómaði ekki lengur af
hamingju. Þau reyndu að fá
hana til að tala um hvað væri
að en Cynthia var ófáanleg til
þess að segja nokkuð. Hún
kvartaði lítillega yfir skapsveifl-
um eiginmanns síns og talaði
um að hann beitti alla dreng-
ina heraga sem hún var ekki sátt
við en annað sagði hún ekki.
Meðal þeirra sönnunargagna er
sterkust þóttu gegn honum var
í fyrsta lagi að sjónarvottar báru
allir að ekki hefði verið hægt
að merkja að asi væri á honum
þegar hann reri í land með líf-
vana líkama konu sinnar hang-
andi aftan í bátnum og í öðru
lagi sú staðreynd að þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir tókst lög-
reglumönnum ekki að hvolfa
gúmbáti eins og Randys með
öldugangi frá mótorbáti. Margt
fleira kom til meðal annars
tryggingamál hans og sú stað-
reynd að dauði fyrri konu hans
hafði alltaf þótt grunsamlegur.
Donna bar enn fremur vitni um
atburðina á ánni og Randy
Roth var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi og það tekið skýrt fram
að náðun kæmi ekki til greina.
Randy Roth hataði móður
sína án þess að nokkur viti ná-
kvæmlega hvað olli því. Faðir
hans yfirgaf fjölskylduna þeg-
ar Randy var ungur að árum og
Vikan 55