Vikan


Vikan - 26.09.2000, Side 47

Vikan - 26.09.2000, Side 47
Þórunn StefcmsdóUir pýddi konurass." Hún skellihló þegar hún sá svipinn á Charlotte. ,,Hvað segirðu? Eigum við ekki að slá til?“ „Allt í lagi, gerum það.“ „Fínt, ég skal panta borð. Segðu mér nú frá nýja starfinu. Er Daniel Jefferson eins kyn- þokkafullur í raunveruleikanum og á sj ónvarpsskj ánum? Sagði ég eitthvað rangt?“ spurði hún þeg- ar hún sá augnaráðið sem Charlotte sendi henni. „Hvað er að?“ spurði hún blíðlega þegar hún sá óhamingjuna skína úr augum systur sinnar. „Ég stóð í þeirri trú að ég fengi að starfa sjálfstætt... sem fullgild- ur lögmaður. Ég komst að því að ég á að vinna fyrir Daniel Jeffer- son, sem persónulegur aðstoð- armaður hans. Hann vill ekki hafa mig í vinnu, Sarah. Hann treystir mér ekki.“ „Hefur hann sagt það?“ spurði Sarah. Charlotte hristi höfuðið. „Hann þarf þess ekki, það er augljóst." „Ertu viss um að þú hafir rétt fyrir þér?“ spurði Sarah. „Þú verður að viðurkenna að þú hef- ur verið frekar niðurdregin und- anfarið og ekki litið heiminn bj artsýnisaugum. “ „Það er ekki það, Sarah." Charlotte stóð upp og gekk um gólf. „Allt sem hann segir ... allt sem hann gerir, undirstrikar hvað við erum ólfk. I návist hans finnst mér ég vera gjörsamlega mislukkuð. Það er hræðilegt að vita til þess að hann treystir ekki kunnáttu minni og getu. Ef ég þyrfti ekki svo sárlega á starfinu að halda ...“ „Char, ertu viss um að þú sért ekki að ýkja?“ spurði Sarah blíð- lega. „Ég veit að þú ert viðkvæm þessa dagana og...“ „Hvað með það? Er það þess vegna sem ég fell ekki fyrir hin- um guðdómlega Daniel Jeffer- son eins og allir hinir? Er það þess vegna sem ég fyllist ekki lotningu og hef ekki áhuga á því að kasta mér fyrir fæturna á hon- um og tilbiðja hann? Aðstaða mín er vonlaus, Sarah. Starfsfólk- ið á ekki nógu sterk orð til þess að hrósa honum. Ég þoli það ekki. Hann fékk allt upp í hend- urnar. Hann hefur aldrei lent í erfiðleikum og samt þykist hann geta dæmt mig... fordæmt mig..." „Char, heldur þú ekki að þú sért ef til vill... að þú sért of dóm- hörð í hans garð ...?“ Charlotte starði á systur sína eins og hún væri svikari. „Hvað áttu við?“ spurði hún reiðilega þótt hún gæti lesið svarið úr aug- um systur sinnar. Hún fann háls- inn herpast saman og reiðitárin brjótast fram. „Ég skil. Þú heldur að ég sé af- brýðisöm út í hann.“ „Nei, auðvitað ekki,“ sagði Sarah. „Nei, ég á bara við það að dómgreind þín sé sennilega ekki alveg rétt þessa dagana. Og Char ... í sannleika sagt þá er ekkert óeðlilegt að hann fari svolítið í taugarnar á þér. Þú ert nú einu sinni mannleg. Þessi dómharka er bara svo ólík þér. Þér hefur alltaf tekist að koma auga á björtu hliðarnar. Og ef það er rétt að starfsfólkinu þyki vænt um hann...“ „Ég hef rétt fyrir mér. Hann kemur illa fram við mig. Hann treystir mér ekki. Hann vill ekki hafa mig í vinnu.“ „En þú ert í vinnu hjá honum, ekki satt? Og með tímanum verður hann að viðurkenna að hann hafi haft rangt fyrir sér. Ertu viss um að það sé hann sem dregur hæfni þína í vafa.“ „Hvað áttu við?“ Sarah stóð á fætur. „Þegar Sam fékk fyrsta hjólið sitt datt hann og var hræddur við að reyna aft- ur. Hann sparkaði í hjólið í hvert sinn sem hann gekk fram hjá því vegna þess að það hafði meitt hann. Hann kenndi hjólinu um fallið í stað þess að viðurkenna að hann væri hræddur við að reyna aftur.“ „Ertu að segja að ég beiti sömu rökum og þriggja ára gamalt barn?“ spurði Charlotte reiði- lega. „Nei, ég er bara að minna þig á að þú ert mannleg." „Það sama er ekki hægt að segja um Daniel Jefferson. Hann er fullkominn ... það er einróma álit allra í kringum hann.“ Sarah gaut augunum á systur sína. „Þér líkar sem sagt alls ekki við hann?“ „Líkar ekki við hann? Ég hata hann.“ Sarah lyfti brúnum og opnaði hurðina. „Gættu þín,“ sagði hún brosandi. „Þú veist hvað sagt er „Hvað áttu við?“ „Að það sé stutt á milli ástar og haturs," sagði Sarah og hló. Charlotte elti hana niður stigann döpur í bragði. Hún þekkti systur sína út og inn. Sarah var blíð og góð að eðl- isfari og gæti ekki hugsað sér að særa nokkurn mann. Athuga- semdir hennar um fordóma og afbrýðisemi höfðu sært Charlotte og henni tókst ekki að gleyma þeim, hvernig sem hún reyndi. Þeim skaut upp í kollinn á henni allt kvöldið. Var eitthvað til í þessu? Var óvild hennar í garð Daniels skyldari vanþóknun en vissunni um að hann vantreysti henni? Var hún, eins og Sarah hafði gef- ið í skyn, í raun og veru afbrýð- isöm út í hann ... afbrýðisöm út í velgengni hans? Það var ákaflega ógeðfelld hugsun. Hún hafði ætlað sér að fara snemma í háttinn en eftir að Sarah var farin og pabbi hennar hafði sagt þeim í smáatriðum hvernig honum hafði vegnað á golfvellinum var klukkan orðin tíu. Charlotte hafði ekki einu sinni opnað möppurnar sem hún hafði tekið með sér heim. Hún var ákveðin í því að gefa Daniel ekki tækifæri til þess að gagnrýna störf hennar. Hún skyldi sýna honum að jafnvel þótt hún kynni ekki með peninga að fara stæði hún honum ekki að baki þegar kæmi að lögmannsstörfunum. Hún las til klukkan eitt um nóttina. Hana verkjaði í bakið eftir að hafa setið of lengi við eld- húsborðið. Hún lokaði möppunni. Þetta var flókið mál og hún var undr- andi á því að Daniel skyldi hafa tekið það að sér. Það gaf ekki mikla peninga í aðra hönd, eftir því sem hún best gat séð, og hann yrði að leggja í það mikla vinnu. Ef hún vissi ekki betur hefði hún getað svarið fyrir að hann hefði tekið að sér málið af góðmennsk- unni einni saman. Gat það verið að hún dæmdi hann ranglega? Var hún að bæta einum mistökunum enn á lang- an lista? Hún stóð upp, gekk að vask- inum og lét renna kalt vatn í glas. Hann var áberandi íþjóðfélaginu og varð að viðhalda fjölmiðlaí- myndinni. Hann var ekki sú manngerð að reyna að sýnast betri en hann var. Hún hafði kynnst nógu mörgum slíkum til þess að þekkja þá. Vinum Bevans. Hvað ef hún hefði rangt fyrir sér? ÖIlu starfsfólkinu þótti vænt um hann, eins og Sarah hafði réttilega bent á. Hún fann fyrir kvíða. Hún við- urkenndi að hún vildi ekki hafa rangt fyrir sér. Hún vildi og þarfnaðist þess að halda dauða- haldiímynd sínaafhonum. Hún varð að vernda sig ... Hún lagði frá sér glasið skjálf- andi hendi. Vernda sig gegn hverju? Hún sá allt í einu fyrir sér dökk augu hans og varð þurr í munn- inum. Hún stóð sig að því að bleyta varir sínar með tungunni eins og hún hafði gert í skjala- geymslunni. Líkami hennar stóð í ljósum logum. Klukkan var að ganga tvö. Dagurinn hafði verið erfiður og nú leyfði hún ímyndunaraflinu að búa til ófreskjur sem ekki voru til í raunveruleikanum. Það var kominn tími til að fara að sofa. Vikan 47

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.