Vikan - 26.09.2000, Page 60
Spurningar má
senda tii „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seijavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
iVikunnar
Inga Guðmundsdóttir skrifaði fallegt bréf til ritstjórnar Vik-
unnar þar sem hún óskaði eftir því að systir hennar fengi rós
Vikunnar: „Mig langar til þess að systir mín, sem er 73 ára, fái
rós Vikunnar. Hennar mesta gleði er að gefa þeim sem ekkert
eiga. Hún safnaði fötum í 5 pakka, sem eru 10 kíló hver, og sendi
þá til Afríku. Það gerði hún með aðstoð Lilju vinkonu sinnar en
hún er búin að starfa með mjög fátæku fólki þar í landi. Systir
mín heitir Kristrún Guðmundsdóttir og mér finnst hún svo sann-
arlega eiga skilið að fá rós Vikunnar."
Rós Vlkunnar
Þekkir þú einhvern sem á skilið að
fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá
samband við „Rós Vikunnar, *
Seljavegi 2,121 Reykjavík11
og segðu okkur hvers
vegna. Einhver heppinn
verður fyrir valinu og
fær sendan glæsilegan
rósavönd frá
GRÆNUM MARKAÐI.
MARKAPUR
-látið blómin tala
Gleymdu því ekki að þú ert
konan sem hann varð nógu
ástfanginn af til að gift-
ast á sínum tíma og
það er kannski kom-
inn tími til að
minna hann á
það.
Nú skaltu undirbúa huggulega kvöld-
stund fyrir ykkur tvö, tæla hann svolítið
og segja honum að þú hafir orðið afbrýð-
isöm, þér hafi liðið illa undanfarið og
nú sért þú tilbúin til að leyfa honum að
sýna þér hvað hann elski þig mikið!
Sannaðu til, þetta gæti orðið gott
fyrsta skref í áttina að endurnýjun hjóna-
bandsins.
Kæri póstur
Við hjónin höfum verið gift í 12 ár og
í sumar fórum við í sólarlandaferð, barn-
laus, í fyrsta skipti á ævinni. Það var mjög
gaman fyrstu tvær vikurnar, en síðustu
vikuna leið mér mjög illa vegna þess að
mér fannst maðurinn minn gefa einni
konunni (íslenskri) á hótelinu full hýrt
auga. Ég veit vel að hann hélt ekki fram
hjá mér eða neitt svoleiðis, en ég varð
mjög afbrýðisöm og þetta særði mig
mjög. Ég talaði um þetta við hann og
hann brást illa við, þrætti fyrir þetta og
sagði að ég væri móðursjúk. Það gekk
svo langt að hann fór út úr hótelíbúð-
inni þegar við fórum að tala um þetta, ör-
ugglega af því að hann vissi upp á sig sök-
ina. Það er búið að vera leiðinlegt á milli
okkar síðan, ég treysti honum ekki leng-
ur og hann er alltaf í vörn. Ég hef
nokkrum sinnum ætlað að tala við hann
um málið en hann fer bara í fýlu og það
endar með að ég verð fokill og við töl-
umst ekki við nema það sé bráðnauðsyn-
legt. Ég held ég þoli þetta ekki lengi,
hvað á ég að gera?
Ein örvœntingarfull.
Kæra öruæntíngarfull
Ertu viss um að þú sért á réttri braut?
Ég sé ekki að maðurinn þinn hafi gert
neitt af sér, jafnvel þótt hann hafi orðið
skotinn í einhverri konu svona tilsýndar.
Það kemur fyrir að harðgift fólk sér ein-
hvern af hinu kyninu sem því líst vel á,
það er nokkuð sem fólk getur ekki að
gert. En það er ekki það sama og fram-
hjáhald og það þarf alls ekki að draga
neinn dilk á eftir sér ef skynsamlega er
tekið á málum.
Ef þú vilt vera viss um að hjónaband-
ið fari út um þúfur skaltu endilega halda
áfram að ásaka hann og hundelta, það er
vísasti vegur til að maðurinn gefist upp
á þér og glati ást sinni á þér.
Ef þér er ekki sama um manninn og
vilt vera með honum áfram ættirðu frek-
ar að reyna að gleyma þessu (sem var
kannski ekkert!) og gera eitthvað til að
endurlífga ástina á milli ykkar. Snúa vörn
í sókn!
Konur verða stundum afbrýðisamar
vegna þess að þær vantar hrós eða ást-
arjátningu frá manninum sínum og þær
verða óöruggar þegar þær sjá að hann
hefur auga fyrir öðrum konum.