Vikan - 26.09.2000, Síða 63
Mamman
Spá Vikunnar
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Þú hefur verið að vaxa mikið andlega allan
þennan mánuð og í þessari viku munt þú
sjálf(ur) skynja (Dað. Þú ræður einhvern eða
færð einhverja hjálp í vikunni og átt eftir að sjá að sú hjálp
var löngu orðin þörf.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Félagslífið á allan þinn huga þessa dagana
en þú ert líka mjög upptekin(n) af einhvers
konar námi. Reyndu að hugsa lengra fram í
tímann en þú gerir, ef þú skipuleggur ekki tíma þinn núna
munt þú lenda í vandræðum þegar lengra líður á haustið.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
Þú hefur fulla ástæðu til að vera bjartsýn(n)
og færast mikið í fang. Hugsaðu STÓRT og
láttu ekki aðra draga úr þér kjarkinn því nú
fer góður framkvæmdatími í hönd hjá tvíburum.
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Það er að byrja rómantískur kafli hjá kröbb-
unum. Til þess að það verði til góðs þarf að
vera vakandi fyrir umhverfinu og gefa af sér.
Taktu fram kertin og rauðvínið og sýndu á þér góðu hliðarn-
ar.
Sf
* uu/?
Ljónið
24. júlí - 23. ágúst
Þú ert svolítið lítil(l) í þér núna og þarft á ást
og umhyggju að halda. Það tekur enginn utan
um Ijón sem stendur með gapandi ginið og
öskrar. Leyfðu þínum nánustu að finna að þú þarfnist
þeirra.
Meyian
24. ágúst • 23. september
Þú þarft að skipta um aðferð við eitthvað sem
þér er orðið mjög tamt. Ef þér finnst þú vera
stöðnuð (staðnaður) skaltu ekki hika við að lesa þér til eða
sþyrja aðra. Vittu til! Þú munt verða miklu ánægðari eftir
breytingarnar.
Vogin
24. september - 23. október
Hvíldu þig vel um miðja vikuna því helgin
gæti orðið erfið. Ef ekki þá verður hún að
minnsta kosti óvenjuleg því þú ert að læra að
skynja næsta umhverfi þitt á nýjan hátt.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Nú er tími fyrir ástina hjá sporðdrekanum.
Gönguferðir við sjóinn, rómantískir kvöldverðir
og annað þess háttar er rétta umhverfið þessa
viku og enginn sporðdreki mun sleppa við sterkt tilfinn-
ingaflæði.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Tækifærin bíða þín í röðum núna! Það er sama
hvert litið er; sambönd, viðskipti, ástin, pen-
ingar, alls staðar eiga bogmenn góðan leik í
sigti. Kíktu á spilin þín og vertu dugleg(ur) að spila úr
þeim því þessi meðbyr verður ekki svona snarpur að eilífu.
Steíngeitín
22. desember - 20. janúar
Þú ert búin að leggja net út um allt og nú ættir
þú bara að bíða og sjá til í rólegheitunum. Það
bítur bráðum á hjá þér! í næstu viku ferðu að
verða vör (var) við líf á þeim vígstöðvum sem
þú væntir og vonaðist eftir.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Þeir vatnsberar sem hafa verið óhamingju-
samir í einkalífinu undanfarið gætu skyndi-
lega verið búnir að fá nóg og eru að hugsa sér
til hreyfings. Það eru breytingatímar í vænd-
um, líka hjá vatnsberum sem eru bara að hugsa um að
breyta í stofunni.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Það gæti farið að gefa á bátin á miðunum!
Fiskarnir ættu að reyna að synda með straumi
þessa vikuna og láta það ekki á sig fá þótt
mikið rót sé í kringum þá. Þetta gæti orðið svo-
lítið hryssingsleg vika.