Vikan - 16.02.1984, Blaðsíða 35
\s
Draumar
Langamma og hringir úr
ýmsum málmum
Kœri draumráðandi!
Svo ég komi mér að efninu
ttrax þá dreymdi mig að lang-
amma mín, sem er löngu dáin,
k°m til mín og brosti svo blítt að
mér fannst eins og hrukkurnar
v<£ru minni á henni en ég hef séð
a myndum og svo sá ég ömmu
mina sem er á lífi en bún lá á
^akinu með hendumar á brjóst-
kassanum hvora yfir annarri og
augun voru lokuð og fannst mér
eins og hún lægi á líkkistu.
Nóttina eftir dreymdi mig að
eS vœri að fara inn í eitthvert
barnaherbergi sem ég kannast
ekki við og dyrnar voru mjög lág-
af °S breiðar (hurðin flöskugrœn
a ht) 0g þegar ég œtla inn þá er
eirjs og ég sé stoþþuð og mér eru
rfttir þrfr hringir einhverrar
°nu (ca 50—60 ára) sem ég ekki
Pekki og áttu hringirnir að vera
Jraþessari fyrrnefndu langömmu
rnjnni, Fyrsti hringurinn, sem ég
te>k upp' var úr járni eða áli og
var hann dökkfjólublár og héldu
~~ó hringir þessum hring og
Voru eins og droþar í laginu en
nilklu stœrri að sjálfsögðu, mun
Hæm en venjulegur hringur, og
ltlmir voru alla vega, meðal
aPffars kjósgrœnn, fjólublár og
°S fleiri litir en ég man þá
blar
ekki.
% setti hringinn á litlafingur
Vlnstn handar og skoðaði hann
ntj^’S vandlega en sneri mér svo
Sfllhnng sem var með þrem
þ mstemum samhliða og voru
^ r að innanverðu þegar
rjngunnn var kominn á, það er
^ . segJa steinarnir voru ekki á
^ngnum heldur utan með
°num, svo var annar rúbín-
það^ S6m Vtsa^ * hina áttina,
er nær nöglinni, og fannst
er að hann œtti ekki að vera á
hnn,gnum.
o % horfði lengi áþennan hnng
hlið°ttl hUnn SV° a ktilafingur við
ina á htnum hringnum og
r 1 hann svo yfir á baugfingur
nstn handar.
% fannst allan tímann
an ég skoðaði gullhringinn
Part af hinum að verið vceri að
ýta þriðja hringnum að mér en
ég leit aldrei við til að sjá hann.
Mig minnir að ég hafi þá verið
komin í anddyri barnaherberg-
isins og/eða ég fór inn í það og
fór að leika mér þar við einhverja
krakka.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna,
1947—2057.
Fyrri draumurinn er tæplega
fyrir öðru en góðu, ömmur og
langömmur eru prýðilegar í
draumum, og fyrir ömmu þína
táknar þessi draumur tæplega
neitt misjafnt heldur þvert á
móti öryggi og rósemi. Til er að
vísu sú túlkun á draumatákni
sem þessu að hér sé feigð hennar
boðuð en venjulega er gamalt
fólk, eins og ætla má að amma
þín sé, undanskilið og merkingin
látin snúast við, það er algengt,
samanber að veikindi í draumi
boða heilbrigðum veikindi,
sjúklingum bata. Eins eru
dauðatengd tákn öldruðum yfir-
leitt mjög heillavænleg.
Seinni draumurinn er af-
skaplega hlaðinn táknum. Járn-
eða álhringurinn og allir hinir
mislitu em tákn fyrir ýmiss konar
erfiðleika og þolraunir sem þú
munt ganga í gegnum á lífsleið-
inni, líklega sjálfviljug, það er
líklegt að þú skorist ekki undan
er erfiðleikar berja að dyrum.
Gullhringurinn í draumnum er
svo stórgott heillatákn, merkir að
þú munt verða gæfumanneskja
(þrátt fyrir erfiðleika) og eiga
góða fjölskyldu og vera mikils
metin. Rúbínarnir benda til þess
að þú munir eiga býsna
blóðheita aðdáendur, þrjá úr
einni áttinni og einn úr annarri,
en líklegast muntu hafna þeim.
Herbergið, dyraum-
búnaðurinn og leikurinn við
börnin staðfesta bara að þú
hafnar ekki erfiðleikum enda
bendir flest til þess að þú munir
þurfa að gegna mikilvægu hlut-
verki en ströngu.
Vekjaraklukkubíb og
happdrættisvinningur
Kæri draumráðandi.
Eg hef aldrei skrifað áður en
vonast til að fá svar við þessum
forvitnilega draumi ef hann
merkir þá eitthvað.
Eg var stödd í stórri verslun og
var með Ijósbrúna leðurhand-
tösku á öxlinni sem mig langaði
til að skila og fá eitthvað annað í
staðinn. Eg hafði fengið hana í
jólagjöf en í rauninni fékk ég
enga tösku íjólagjöf. Afgreiðslu-
konan bað mig að oþna hana til
að gá hvort eitthvað væri í henni
en ég sá bara bréf eins og í öllum
nýjum töskum, en allt í einu
heyrist þetta svaka bíb, bíb, bíb!
Eg horfði forviða á konuna en
hún sagði að ég hefði gleymt að
slökkva á þjófabjöllunni. Þá sá
ég lítinn takka eins og áþeninga-
skáþum á töskunni, ég fór alveg í
þaník og fannst allir í búðinni
vera að horfa á mig en hvernig
sem ég sneri takkanum gat ég
ekki losnað við þetta bíb, bíb,
bíb! Svo vaknaði ég við vekjara-
klukkuna mína sem hringdi bíb,
bíb, bíb!
Eg er með annan stuttan, þar
sem mér fannst ég hafa unnið
hundrað krónur í hapþdrætti og
var svo ofsalega ánægð. Vonast
til að fá svar bráðlega. Með
fyrirfram þökk.
Magga.
Þú verður sjálfsagt ekkert
ánægð með ráðninguna á fyrri
draumnum en það er sjálfsagt að
láta hana samt birtast hér í
þættinum. Það er nefnilega
nokkuð augljóst að hér er ekki
tákndraumur heldur óskhyggja
og tilraunir þfnar í svefnrofunum
til að leiða hjá þér bíb-ið í
vekjaraklukkunni og komast hjá
því að vakna við það. Þetta er
mjög algengt (draumráðandi
þekkir það mætavel af eigin
raun) og á ekkert skylt við tákn-
drauma.
Seinni draumurinn er hins
vegar dæmigerður tákndraumur
og bendir til þess að þér muni
fljótlega verða falið eitthvað sem
krefst mikillar ábyrgðar, dugn-
aðar og elju. Á því leikur enginn
vafi að þetta er eitthvað sem þér
finnst mjög efdrsóknarvert.
Dreymendur:
Draumráðning 1 Vikunni er ókeypis (tekið fram vegna fyrir-
spurnar) en draumráðandi ræður ekki aðra drauma en þá sem
eru merktir með nafni sendanda. Draumar eru ávaílt birtir undir
dulnefni sé þess óskað og reyndar er sú regla viðhöfð í flestum til-
fellum að birta bara upphafsstafi dreymanda þó ekki sé beðið um
nafnleynd.
Athugið ennfremur að draumar eru EKKI ráðnir nema þeir séu
ætlaðir til birtingar. Ef einhverjum er annt um að fá draum
ráðinn en vill ekki að hann þekktist er auðvitað sjálfsagt að
breyta einstökum orðum og sleppa öllum manna- og staða-
nöfnum. Draumráðandi annar ekki fleiri draumráðningum en
birtast í Viku hverri.
Mismikið kemur inn af draumum þannig að stundum getur
orðið löng bið eftir aö ráðning birtist en stundum er sem betur fer
hægt að hafa nokkurn veginn undan með því að sleppa öllum
nafnlausum draumum og þeim sem ekki eru skrifaðir til birting-
ar. Mánuður líður frá draumráðningu til birtingar. Draumar,
sem greinilega eru EKKI tákndraumar, eru ekki birtir nema
aðrir draumar, sem hafa forgang, séu ekki til. Þetta eru oft
draumar um stráka sem dreymandi er skotinn í og hittir í
sjoppunni eða annars staðar en, því miður, þetta eru ekki tákn-
draumar og verða oftast að víkja fyrir öðrum.
7. tbl. ViKan 35