Vikan


Vikan - 16.02.1984, Síða 48

Vikan - 16.02.1984, Síða 48
^^fj^ósturinn AIRMAIL PAR AVION Fjölbrautaskóli, pillan og fóstureyðingar Kœri Póstur. Ég er hérna með nokkrar spurningar sem mig langar að fá svör við. 1. Hvaða skammstöfun er á Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki ? 2. Hver er venjulegur lág- marksaldur til að fá pill- una ? 3. Hvað kostar að fá hana og fœst hún í öllum apótekum á landinu? 4. Verður barnsfaðirinn aö skrifa undir ef maður œtlar að fá fósturegðingu. (Hvað ef maður man ekki hvað hann heitir?) 5. Verður maður ekki slappur eftir fóstureyðingu og verður maður að leggjast inn á spítala? Jœja, þetta œtti að vera nóg í bili. Bœjó, M. T. 1. Skammstöfunin fyrir Fjöl- brautaskólann á Sauðárkróki er FÁS og stendur einfaldlega fyrir Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki. Pósturinn getur einnig frætt þig á því að þar eru nú 264 nemendur. 2. Þessu er dálítið vandsvaraö því ákveðið aldurstakmark er ekki til. Það eru skiptar skoðanir meðal lækna um þessi mál en flestir eru þó sammála um að gefa stúlkum ekki pilluna fyrr en tíða- blæöingarnar eru orðnar nokkuð stöðugar með reglulegu egglosi. Venjan er sú að leyfa notkun pill- unnar hafi stúlkan haft reglulegar tíðir í 2 ár og telji læknirinn hana hafa heilsu til að taka hana. Það eru heldur engar reglur til um það aö það þurfi samþykki for- eldra í þessu máli og læknar og aðrar heilbrigðisstéttir eru bundnar þagnarheiti. Ef þú vilt ekki að aðrir viti um pillutökuna er þaö þitt mál en auðvitað er ákjósanlegt aö geta rætt um þessi mál við einhvern eldri og reynd- ari. Sumir læknar geta verið tregir til að gefa pilluna og telja að með því séu þeir að gera ungum stúlkum kleift að hafa samfarir án þess að verða ófrískar og þaö hvetji til lauslætis. Aðrir hafa svo þá skoðun að stúlkur sem eru farnar að vera með karlmönnum eigi að sjálfsögöu að geta fengið pilluna til að komast hjá því að eignast börn, kannski sjálfar rétt komnar af barnsaldri. Áður en stúlka fær pilluna þarf hún að láta lækni skoöa sig til að ganga úr skugga um að engir sjúkdómar séu í móöurlífi. I slíkri skoðun er einnig mældur blóðþrýstingur. Pillan er talin örugg getnaðarvörn nema 14 fyrstu dagana þegar hún er tekin í fyrsta skipti. Læknir upplýsir svo um hvíldir frá pill- unni og annað þegar þú ferð í skoðun. 3. Pilluna átt þú að geta fengiö í öllum apótekum en verðið er mismunandi eftir tegundum og þaö er læknirinn sem ráöleggur hvaða tegund hentar best. Verðið er eitthvað í kringum 300 krónur fyrir 3 skammta (3 mánuðir). Það er algengast að pillan sé tekin inn einu sinni á dag í 21 dag og síðan gert hlé í 7 daga áður en byrjað er á nýjum skammti. I þessu hléi koma svo blæðingarnar. Mjög mikilvægt er að gleyma aldrei aö taka pilluna því við þaö minnkar öryggið. 4.1 íslensku fóstureyðingalöggjöf- inni segir aö fóstur megi ekki vera eldra en 12 vikna til þess að leyfi- legt sé að framkvæma fóstureyð- ingu nema í undantekningatilfell- um þar sem heilsu móður er ef til vill stefnt í hættu. Það ber að hafa í huga aö fóstureyðing er og verður alltaf neyðarúrræði og skyldi enginn hugsa sér hana sem getnaðarvörn. Fóstureyðing er nokkuð sem engin kona flanar aö. Ef stúlka er ekki orðin 16 ára þurfa foreldrar hennar að vita um aðgeröina en þeir geta þó ekki ráðið því hvort hún fer fram eöa ekki. Ef stúlka fær ekki traust og hald hjá foreldrum ætti hún að leita til annarra fullorðinna sem hún þekkir og treystir. Samkvæmt lögum á eiginmaður eða barnsfað- ir að taka þátt í umsókn um fóstur- eyðingu nema sérstakar ástæður mæli gegn því en ef þið erum ósammála um hvort fóstureyöing skuli fara fram er þaö að sjálf- sögðu þín afstaöa sem ræður úr- slitum. Varöandi þaö sem þú skrifar innan sviga í sambandi við það aö muna ekki nafn á barns- föðurnum þá líst Póstinum hreint ekkert á þau mál. Enginn ætti aö iðka kynlíf nema hann langi raunverulega til þess og ef tilfinningarnar eru ekki til staðar við iðkun kynlífsins og þú veist ekki einu sinni meö hverjum þú ert hverju sinni ættir þú að bíða meö allt slíkt til betri tíma. 5. Eins og bent hefur verið á eiga fóstureyðingar alls ekki að koma í staðinn fyrir getnaðarvarnir, þær eru neyðarúrræði og geta verið erfitt andlegt álag á stúlkur. Þú skalt alls ekki láta þér detta í hug að fóstureyðing sé eitthvað sem þú getur notað sem getnaðarvörn. Aögerðin er framkvæmd á sjúkra- húsi fyrir 12. viku og er lítil hætta á eftirköstum en hættan eykst eftir því sem lengra er liðið á með- göngu. Örlítið hærri hiti og auknar blæöingar eru algengar. Ef blæðingar eru mjög miklar og hit- inn hár á að snúa sér til sjúkra- hússins þar sem aðgerðin var gerð. Blæðingar vara síðan í nokkra daga eftir aðgerðina og er nauðsynlegt aö fara vel með sig í nokkurn tíma, til dæmis er ekki ráölegt að fara í baðkar eða hafa samfarir fyrsta hálfa mánuðinn vegna sýkingarhættu en allt þetta er brýnt fyrir viðkomandi eftir aðgerðina. Aö lokum vill Póstur- inn aftur minna þig á að fóstureyð- ing er ekki getnaðarvörn. Þetta er mikilvæg ákvöröun og það leikur sér enginn aö því að láta eyða fóstri. David Bowie Hœ, kæri Póstur. . Ég er aðdáandi DaVl Bowie og langar að vita hvort ekki er til klúbbui fyrir aðdáendur hans. óó11' þú sagt mér hversu gatno Bowie er, hvar og hvena’ hann er fœddur og hvo hann er giftur. Er ekki h&9 að fá grein um hann °9 plakat íVikunni. Aðdáand'■ Heimilisfangið hjá aðdáen&j klúbbi David Bowie er: EI« America Records, 1370 Avenue The Americas, New York, N- 10019. . David, sem heitir fullu na ^ David Robert Jones, fæddis janúar 1947 í suðurhluta Lundu^ og er því rúmlega 37 ára 8arna t Eftir því sem Pósturinn _ken næst er David nú laus og liöug ^ að minnsta kosti er ekki vita þess að hann sé kominn í d)° , band, en hann var giftur áður son sem er líklega 7 eða » gamall og heitir Zowie. Eitt hefur Pósturinn heyrt að bandið hafi ekki gengið þar £ll David var nokkuð laus íraSina 0[]. það leiddi að lokum til þess a . an kvaddi. Það er ekki mjög a r síðan Vikan birti grein og myn ^ kappanum en aldrei að vita n , það geti oröið aftur meö 1 2 tíma. íímm bókí blaðformi fæstá næsta b/aðsölustað 48 Vikan 7. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.