Vikan - 16.02.1984, Side 61
Ekki er öil trúin mannanna eins.
Flestir láta sér nægja að tilbiðja guð
almáttugan en ekki geta allir verið
eins. Danska hljómsveitin Mercyful
Fate hefur til dæmis alltaf einn
aukagest á uppákomum sínum,
nefnilega djöfulinn sjálfan i eigin
persónu. Það sem þeir gera til að fá
hann til að mæta er að draga blóð
úr einum í hljómsveitinni og
sprauta því yfir gæsafjaðrir. Þegar
danska bandið var upphitunar-
hljómsveit hjá rokkbandinu Girl-
school særðu þeir félagar eitt sinn
skrattann fram og voru allir
viðstaddir sammála um að eitthvað
dimmt og illt væri á staðnum. Um
leið og Girlschool sté á svið heyrð-
ust óeðlileg hljóð úr hljómkerfinu
og þegar hljómleikarnir voru
byrjaðir fékk ein stúlkan
(Girlschool er stúlknahljómsveit)
raflost og þurfti að flytja hana á
spitala. Á eftir voru græjurnar
athugaðar og fannst ekkert athuga-
vert við þær. King Diamond, for-
sprakki dönsku sveitarinnar, er
þeirra mestur fyrir sér í þessum
efnum. í íbúð sinni í Höfn hefur
hann satansaltari, sérstaka djöfuls-
bibliu og á næturnar kuklar hann
„vilde væk". Grúskar King mikið í
satansfræðum og segist geta lagt
álög á hvern sem hann vill. Ekki eru
það þó alltaf slæm álög sem hann
særir fram þvi að hans sögn er
hægt að gera einhverjum gott með
aðstoð djöfsa ef hann er orðinn
þreyttur á að vera vondur. Reim-
leikar eru miklir í íbúðinni og
kveðst King heyra raddir í sífellu.
King finnst eins og einhver sé að
reyna að ná sambandi við sig til að
nota hann til einhvers en hann veit
ekki enn hvað það er. Hlutir hafa
hreyfst og glös lyfst og ku vera
fleiri vitni að því en King sjálfur.
Þegar King er ekki að syngja með
Mercyful Fate hefst hann (sem bet-
ur fer) við i ibúð sinni og notar
hann, eins og áður segir, næturnar
til trúariðkana sinna en sefur á dag-
inn því hann þolir ekki birtuna og
sólarljósið. Ehem, jæjajá.
Karls
prins
Hér segir af enn
einu gullkorninu frá
^arli prinsi. Þetta átti
sér stað eftir hljóm-
*e»ka Duran Duran í
i'Ondon þar sem hið
^onunglega par var
kieðal áheyrenda.
Karl (við Simon Le
^on): „Ég vissi aldrei
þú þyrftir að vera í
svona góðu formi?"
Þessi var mergjaður
er» þessi er allt að því
^etri:
Karl (á sama stað og
s*und, nú við Nick
Rhodes): „Mér finnst
fötin þín frekar (rather)
‘ töff. Hvað kallarðu
þetta?"
Þvílíkur húmor og
hárfín hnyttni!
Ta«i: Hörður
Nunnublóð þykir King Diamond hinn mesti hressingarvökvi og
segist vera hrifnastur af hinum sjaldgæfa AB rh-. 7. tbl. Vikan 61
L