Menntamál - 01.06.1939, Blaðsíða 34
32
MENNTAMÁL
föður síns. „Bækurnar verða mér ennþá kærari, er ég hefi
líka bundið þær inn,“ segir Steingrímur. Báðir foreldrar
Steingríms voru bókelsk og vel hagmælt. Hver einasta ný
bók, sem kom í band, var vandlega lesin og rædd á heim-
ilinu. Steingrímur fékk tækifæri til að lesa aðkomnu bæk-
urnar og notfærði sér það óspart.
Kennari var ekki hafður á Þverá, en Steingrímur setti
allan sinn metnað í það að standa sig eins vel á vorprófun-
um og þau börn, sem kennara höfðu. — 17 ára fór Stein-
grímur á Möðruvallaskóla og lauk þar námi. Hann var þá
mjög óráðinn hvað gera skyldi, en starfaði enn að búi föður
síns í 10 ár, batt bækur og las allar þær bækur, sem hann
komst yfir.
Árið 1907, þá 28 ára gamall, fór Steingrímur í Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði. Þar kynntist hann fyrst Magnúsi
Helgasyni, sem þá og æ síðan reyndist honum bezti drengur
eins og öðrum, sem hafa kynnzt honum. Ögmundur Sigurðs-
son var þar æfingakennari, nýkominn úr amerískum kenn-
araskóla, fullur áhuga á ensku og enskum fræðum. Helgi
Vaitýsson kenndi við skólann nýlega kominn frá kennara-
námi í Noregi, eldheitur og fjörmikill.
Að loknu kennaranámi á Flensborg fór Steingrímur
norður til átthaganna; setti upp unglingaskóla og barna-
skóla á Jódísarstöðum, rétt við Þverá, og kenndi þar um
tveggja ára skeið. En þá útvegaði Magnús Helgason honum
kennslustarf við barnaskóla Reykjavíkur.
Árið 1915 sigldi Steingrímur til New York, ráðinn í því að
auka þekkingu sína og búa sig sem bezt undir lífsstarf sitt.
Fyrsta sumarið dvaldi hann í nágrenni stórborgarinnar og
vann fyrir sér á stóru gistihúsi. Um haustið kom hann
aftur til New York, ráfaði um göturnar, skoðaði sig um og
hugsaði ráð sitt. Hann veitti þá athygli stórri og sérstæðri
byggingu með áletruninni Morris’ High School. Steingrím-
ur náði tali af skólastjóranum; spurði hann ýtarlega um
ferðir hans og hver hefði vísað honum til sín. Steingrímur