Menntamál - 01.04.1944, Blaðsíða 12
90
MENNTAMÁL
kennir hann börnunum, hvernig bezt sé að taka upp
mann, sem er í dauðadái, og bera hann (brunamanns-
tak). Eftir að börnin hafa lært þetta, rifjar hann það
upp við og við.
Kennarinn lætur sér ekki nægja þær leikfimiæfingar,
sem hann getur tekið með nemendunum í þessum þröngu
húsakynnum. Hann grípur til bekkjarstofuæfinga (örv-
unaræfinga). Á hverjum degi lætur hann nemendur taka
2—4 æfingar í sætum. Þrengslin leyfa ekki mikil umsvif,
svo að hann verður að beita að mestu armteygjum og
bakfettum.
Á ferðum mínum hef ég hitt marga kennara, sem hafa
fléttað íþróttaiðkunum inn í nám nemenda sinna. Fram-
kvæmdir þeirra hafa verið langt fram yfir það, sem hægt
hefur verið að ætlast til, miðað við hinar örðugu að-
stæður.
Störf slíkra kennara munu hjálpa til að færa íþrótt-
irnar inn í daglegt líf þjóðarinnar, og það mun einhvern
tíma sýna sig, þegar reynir á þjóðlífið eða samtök þjóð-
arinnar, að hér var ekki unnið til einskis.
Þorsteinn Einarsson.
Skíðafer&ir skólabarna.
Bæjarstjórn Reykjavíkur samþykkti fyrir skömmu (17. marz s.l.),
að verja mætti allt að 15 þús. kr. til þess að kaupa skíði, er börn í
barnaskólunum skyldu fá til afnota, svo að þau gætu fremur brugðið
sér á skíði að vetrinum, þegar veðurfar og aðrar ástæður leyfði.
Slcólabílarnir.
Dagblaðið Visir segir 5. april s.l. frá skólabílunum í Olfusskólahéraði
og á Vatnsleysuströnd og vitnar til frásagnar um þau efni í síðasta hefti
Menntamála.