Menntamál - 01.04.1944, Blaðsíða 16
94
MENNTAMÁL
, *T«sww#*!fiBð3885£
Biíiu ;::: «=s
---- i **«$*???..
Nýtt skólahús í Reykjavík
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur fyrir skömmu ákveðið
að reisa nýtt skólahús fyrir Skildinganesskólann, en hann
starfar nú í næsta ófullkomnu húsnæði, gömlum íbúðarhús-
um, sem á hafa verið gerðar hinar nauðsynlegustu breyt-
ingar. Þetta nýja hús á að standa á Melunum, Verður það
bæði stórt og vandað.
Fyrir nokkru var blaðamönnum boðið að skoða líkan, er
Axel Iielgason hefur gert af þessum fyrirhugaða skóla
eftir teikningum Einars Sveinssonar húsameistara. Er
mynd af líkani þessu hér að ofan.
Skólinn á að vera úr steinsteypu, þrjár hæðir auk kjall-
ara. 1 kjallaranum eru kennslustofur fyrir matreiðslu,
smíðar og annað verklegt nám. Á neðstu hæð eru 7 kennslu-
stofur og lækna- og hjúkrunarherbergi skólans. Á næstu
hæð eru 11 kennslustofur. Efst eru 4 kennslustofur og að-
alsamkomusalur skólans. Salurinn verður þannig útbú-
inn, að leikfimi yngstu barnanna geti farið þar fram, og