Menntamál - 01.04.1944, Blaðsíða 22
100
MENNTAMÁL
Nokkur orð um „villandi frásögrí'
kallar fyrrverandi ritstjóri Menntamála, Gunnar M. Magnúss, smá-
grein, sem hann hefur sent Menntamálum og óskað eftir, að birtist
í tímaritinu. Núverancli ritstjóri telur sjálfsagt að verða við þessum
tilmælum fyrrverandi ritstjóra, þó að orka kunni nokkurs tvímælis,
livort orðahnippingar sem þessar eigi heima á síðum Menntamála.
En grein Gunnars er þannig:
Nú hefur eitthvað skeð í sambandsstjórn, mega lesendur Mennta-
mála hugsa, er þeir hafa lesið 2. hefti 1944, þar sem fyrrverandi rit-
stjóri er víttur harðlega fyrir að „birta í heimildarleysi og á mjög
villandi hátt“ fréttir af sjálfstæðismálinu, eins og það bar á góma
innan sambandsstjórnar. Ég vil nú svara Jtessu nokkrum orðum. Til-
löguna, sem ég birti, hafði ég frá tillögumanni sjálfum, með fullu
leyfi um birtingu í ritinu. Nokkur viðbótarorð setti ég til þess að
halda málinu vakandi, Jtví að á Jtessu tímabili liafði meiri liluti
sambandsstjórnar daufan skilning á sjálfstæðismáli þjóðarinnar.
Á fundinum í sambandsstjórn 9. febrúar var einnig samþykkt til-
laga frá undirrituðum, þar sem sambandsstjórn lýsti fylgi sínu við
tillögur stjórnarskrárnefndar alþingis um stofnun lýðveldis á íslandi
ekki síðar en 17. jún/ 1944. Var tillögunni síðan vísað til útgáfu-
stjórnar Menntamála með ósk tillögumanns, að hún yrði birt. — Þess-
ari tillögu hefur verið stungið undir stól, a. m. k. um sinn.
Nú segi ég enn: Af þessu geta kennarar dregið sínar ályktanir.
Viðvíkjandi ávítunum í minn garð lét ég Jress getið á fundinum,
að sambandsstjórn hefði ekki rokið upp til þess að samþykkja á mig
víti lyrir Jtað, að ég vann úr fundargerðum sambandsjringsins „í
heimildarleysi” og birti töluvert fullkomna skýrslu um kennarajúngið
og innti þar af hendi verk, sem stjórnin átti að framkvæma, en hafði
vanrækt sér til vansa. G. M. M.
Stjórn Sambands íslenzkra barnakennara.
í henni eiga nú Jtcssir menn sæti: Ingimar Jóhannesson, formaður,
Arngrímur Kristjánsson, Guðmundur I. Guðjónsson, Gunnar M.
Magnúss, Jónas B. Jónsson, Pálmi Jósefsson og Sigurður Thorlacíus.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA.
Útgáfustjórn: Ingimar Jóhannesson, Arngrímur Kristjánsson,
Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri.
Prentsmiðjan Oddi h.f.