Menntamál - 01.04.1944, Qupperneq 19

Menntamál - 01.04.1944, Qupperneq 19
MENNTAMÁLi 97 3. Guðmundur Guðjónsson, bóndi ú Saurum. 4. Gunnlaugur Jósefsson, kennari í Miðneshr., Gullbringusýslu. 5. Helga Þorgilsdóttir, kennari í Reykjavík. 6. Hólmfríður Jónsdóttir, verzlunarkona í Reykjavík. 7. Konráð Kristjánsson, cand. theol., d. 1932. 8. Kristinn Pétursson, listmálari í Hveragerði. 9. Kristján Jónsson, skólastjóri í Hnífsdal. 10. Sesselja Konráðsdóttir, kennari í Stykkishólmi. 11. Sigríður Hjartardóttir, kennari í Reykjavík. ] 2. Sigurður Jónsson frá Brún, kennari á Skógarströnd og Hörðudal. 13. Sigurlaug Björnsdóttir, húsfreyja í Vestmannaeyjum, d. 1923. 14. Steinþór Jónsson, kennari, d. 1922. 15. Viktoria Guðmundsd., skófastj. á Brunnastöðum, Vátnsleysustr. — Hún tók áður (1904) próf úr kennaradeild Flensborgarskólans. 16. Víglundur Niktdásson, sjómaður á Olafsfirði. 17. Þorlákur Kristjáusson, trésmiður í Reykjavík. 18. Þorsteinn Sölvason, kennari á Hvammstanga, d. 1924. 19. Þórunn Lýðsdóttir, húsfreyja í Sandgerði. Fulltrúaþing S. í. B. verður haldið í Reykjavik í vor. Tíminn hefur ekki verið ákveðinn enn, en telja má víst að það verði eítir miðjan júnímánuð. Merkasta umræðuefni þingsins verður skólalöggjöfin. Formaður kjörstjórnar S. í. B., Guðmundur f. Guðjónsson, hefur sagt Menntamálum, að 60 fultrúar eigi rétt lil setu á þinginu, og hafa þeir afdrei verið svo margir áður, en atkvæðisbærir kennarar innan félagssamtakanna eru nú 493. <S" tj órnarlcosning á að fara fram í Sambandi íslenzkra barnakennara nú í vor. Kjósa skal alla stjórnarmennina 7 og 5 varamenn. Um 1 (i(i kennara er að velja, en kjörgengi er bundið þeim skilyrðum, að kennarinn eigi heima í Reykjavík eða svo nálægt, að liann eigi hægt mcð að sækja fundi sambandsstjórnarinnar. Kjörgögn hafa verið send út til kennara. Kennarafélag Kjalarnesþings og Kennarafélag Gullbringusýslu héldu aðalfundi sína um páskana, hið fyrra 8. apríl í Austurbæjar- skólanum í Reykjavík og hið síðarnefnda í barnaskólahúsinu í Hafn- arfirði 11. apríl. Báðir voru fundirnir vel sóttir: Úr Kennarafélagi Kjalarnesþings mættu allir (8 kennarar), en úr Gulibringusýslufélag- inu 15 kennarar af 17. Bjarni M. Jónsson, námsstjóri, sat báða fundina.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.