Menntamál - 01.10.1945, Blaðsíða 11
MENNTAMÁL
161
í héraði. Eins og áður er getið, hefur vilji manna mjög
hallast í þá átt að fá skóla fyrir hvert sveitarfélag. Það
er eins og mönnum finnist, að sveitarfélag sitt missi eitt-
hvað af sjálfstæði sínu við það að sameinast öðrum um
skólamál og dýrð þess sveitarfélags, sem skólann fái, verði
mest — það hafi einnig beinan hagnað af því, því að það
hirði þó útsvör kennaranna. — Þótt áhugamenn um skóla-
mál láti sig þessi útsvarshlunnindi litlu skipta, getur þetta
orðið viðkvæmt mál og þess virði að gefa því gaum áður
en langt er haldið. Útsvar tveggja launaðra kennara geta
á þrengingartímum verið fámennum og tekjulitlum hrepp-
um meira virði en sýnist í fljótu bragði og lítið réttlæti
virðizt, að einn hreppur hirði þau og vinni upp með því
tillag sitt til reksturskostnaðar skóla, sem fleiri hreppar
standa að. Þætti mér líklegt, að fleirum væri unnt að þoka
til samstarfsvilja, væri hægt að koma því svo fyrir, að út-
svör þessara manna rynnu til sameiginlegs reksturs stofn-
unarinnar. Sjálfsagt eru erfiðleikar á að koma því svo
fyrir, en það mun verða athugað, hvort fært er.
Um byggingu skólahúsa í sveitum og kauptúnum gæti
verið athugavert nú og síðar, hvaða byggingarefni og að-
ferðir eru heppilegastar. Á að byggja úr steinsteypu eins
og nú er yfirleitt gert eða er hægt að finna einhverja aðra
kostnaðarminni leið? Erlendis virðist nú mikið að því gert
að tiltelgja hús, sem síðan eru flutt langa vegu til upp-
setningar. Á þessu hef ég enga þekkingu, en vildi aðeins
minnast á, hvort fært mundi að fá skólahús erlendis frá,
smíðuð og búin til uppsetningar. Athugavert mundi vera,
hvort á þennan hátt væri unnt að fá ódýrari skólabygg-
ingar, sem ófrávíkjanlega yrðu að hafa kosti nýtízku
skólahúsa.
En hvernig sem skólahús verða byggð, þarf meira að
gera en koma þeim upp. Þau þurfa að geyma hlýleika og
einfalda fegurð og örva þannig tilfinningu nemendanna
og lotningu fyrir því, sem fagurt er. Skólahús okkar, eins