Menntamál - 01.10.1945, Side 23

Menntamál - 01.10.1945, Side 23
MENNTAMÁL 173 Bækur sendar Menntamálum í óbyggðum Austur-Grænlands. Samið hefur Sigurður Helgason eftir ferðasögu Ejnar Mikkelsens: Tre Aar paa Grönlands Östkyst. Með myndum. 138 bls. Verð: 20,00 kr. óbundin. — Ejnar Mikkelsen er þannig kynntur lesend- um í alfræðibókum, að hann sé danskur skipstjóri, land- könnuður og rithöfundur. Einhver frægasti leiðangur hans er sá, sem frá er sagt í þessari bók. Hann var hafinn sumarið 1909 til þess að leita að dagbókum og öðrum menjum úr leiðangri, sem danski vísindamaðurinn Mylius- Erichsen hafði farið nokkrum árum áður og týnzt í (1907). Ekki kom Mikkelsen heim úr þessari ferð fyrr en sum- arið 1912. 28 mánuði samfleytt hafði hann dvalið við annan mann á jökulauðninni og oft komizt í hann krapp- an. Eru allar frásagnir hans af líðan og mannraunum þeirra félaga yfirlætislausar og blátt áfram, en jafnframt svo lifandi, að lesandinn finnur, að þarna voru miklu meiri afrek unnin en sagt er með berum orðum. Sigurður Helgason er æfður rithöfundur, svo sem al- kunnugt er, og kann vel að segja frá. Ber þessi bók því glöggt vitni. Frásögnin er blátt áfram og snurðulaus, en þó stundum með töluverðum undirþunga og mótuð kynngi hins góða sögumanns. Örlítillar ónákvæmni verður vart á stöku stað, eins og t. d. þegar Ivarsen vélstjóri er talinn meðal þeirra, sem réðust til ferðarinnar frá Danmörku (bls. 16), en síðar segir, að hann hafi komið á skipið á Patreksfirði í staðinn fyrir veikan mann (bls. 36). Eins hefði ekki verið úr vegi að skýra, hvers konar matur pemmikanið væri. En þetta eru smámunir, sem hverfa hjá aðalkostum bókarinnar, skemmtilegri frásögn um hreysti- verk, unnin í leit að nýrri þekkingu. Slíkar bækur eru

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.