Vorið - 01.03.1944, Side 25

Vorið - 01.03.1944, Side 25
VORIÐ 21 Hundamerki á 10 krónur. Það var meira en hann gæti ráðið við. „Já, Oli minn,“ sagði móðir hans um leið og hún klappaði hughreystandi á öxl hans, „þú veizt mæta vel, að ég vildi gjarnan hjálpa þér, en 10 krónum má ég ekki eyða í þetta, atvinnan hefur ekki verið svo mikil í seinni tíð, eins og þú veizt—“. „Nei, mamma, mér dettur ekki í hug að biðja þig um slíkt, en heldurðu að það sé óhugsandi, að ég geti unnið mér inn þessa pen- inga fyrir 1. janúar? Þú veizt, að nú er mikill snjór. Gæti ég ekki gengið um og mokað snjó fyrir ná- grannana?“ „Þú ert duglegur piltur, Óli,“ mælti lögregluþjónninn, „og mér dettur undir eins nokkuð í hug, — þú getur komið niður á lögreglu- stöðina og mokað fyrir okkur, ég trúi ekki öðru en að við hjálpum þér til að eignast fyrstu krónuna.“ — Og Óli gaf sig að snjómokstri, ekki aðeins á lögreglustöðinni, heldur hjá ýmsum fyrirtækjum í hverfinu. Aldrei hafði Óli verið eins þreyttur eftir nokkurn dag eins og þennan fyrsta snjómokstursdag. En auk krónunnar, sem hann hafði fengið á lögreglustöðinni, hafði hann unnið fyrir 1 krónu og 75 aurum annars staðar. En mikið vantaði enn, og ekki var víst að þetta snjóveður héldist lengi. Óli óskaði þess þó með sjálf- um sér, og honum fannst þetta vera gott veður, þótt allir aðrir kölluðu þetta mesta hundaveður. En það leit ekki út fyrir að veðrið ætlaði neitt að skána. Það hafði að vísu birt upp um tíma, en nú fór veðrið versnandi aftur. Óli og Kátur brutust gegnum snjókófið og voru á heimleið. Óla virtist sá litli vera orðinn þreyttur, svo að hann greip í hálsbandið hans, hóf hann á loft og stakk hon- um í barm sinn. Því næst setti hann rekuna og sópinn aftur á öxl sér og brauzt á móti veðrinu á ný. Óli var þaulkunnugur í bænum og gat því stytt sér leið með því að fara ýmsa stígi, sem öðrum voru óþekktir. Hann þrammaði fram hjá mörgum geymsluskúrum og timburhlöðum og hraðaði för sinni sem mest hann mátti. En hvað gekk nú að Kát? Hann varð ókyrr í barmi hans og fór að urra og gelta, eins og hann væri hræddur við eitthvað, og Óli sá þann kost vænstan að sleppa honum lausum aftur. Kátur var ekki fyrr kominn á alla fjóra fæt- urna sína í snjóinn, en hann þaut gjammandi og þefandi að dyrun- um á næsta geymsluskúr. Óli hraðaði sér á eftir honum og athugaði aðfarir hans af mikilli forvitni. Skyldi hann vita af rottu þarna inni? Eða var þar ef til vill annar hi ndur? Nú hljóp Kátur alveg að .lyrunum og gelti í ákafa, en í sami. bili heyrði Óli aumkun-

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.