Vorið - 01.03.1944, Side 29
VORIÐ
EIRÍKUR SIGURÐSSON:
Góðtemplarareglan á Islandi 60 ára.
Nú eru liðin 60 ár síðan
Góðtemplarareglan hóf starf sitt á
íslandi. Fyrsta stúkan var stofnuð
á Akureyri — stúkan „ísafold“,
— og starfar hún enn. Fyrir
ötula forgöngu brautryðjend-
anna breiddi Reglan brátt lim sitt
yfir allt landið, eins og tré, sem
rennur upp úr góðum jarðvegi.
Aðalmarkmið Reglunnar er að
útrýma áfengisnautn úr landinu
og því böli, sem henni fylgir. Regl-
an er byggð á bræðralagshugsjón
ekki annað en þakka Óla aftur og
aftur, og þegar þeir komu niður að
höfninni, leiddi hann Óla inn í eitt
hornið á litlu póststofunni, til þess
að endurtaka þakklæti sitt þar.
Að endingu stakk hann þremur
bankaseðlum í lófa hans, síðan
kvaddi hann alúðlega, rétti honum
hundinn í kveðjuskyni og hvarf
síðan upp landgöngubrúna og út í
ferjuna.
Eftir tvær mínútur lagði ferjan
frá landi, en þá var Óli búinn að
sjá, hvað það var, sem þessi góði
Þjóðverji hafði lagt í lófa hans —
— þrír tiu krónu seðlar — —
þrjátíu krónur — það var nægi-
legt til að greiða hundamerki í
þrjú ár!
kristindómsins, og vill hjálpa
hverjum veikum bróður, sem hef-
ur villst af leið. Hún hefur líka gef-
ið margri konu manninn sinn aft-
ur og mörgu barninu týndan föð-
ur.
Reglan er sterkur og vel skipu-
lagður félagsskapur. Hún telur
um 10 þús. félaga eldri og yngri
hér á landi. Enda hefur hún unnið
að mörgum mannúðar- og menn-
ingarmálum, bæði fyrr og síðar.
Og Óli reyndi að kalla fram á
ferjuna og þakka þessi höfðinglegu
laun, en í sama bili flautaði ferjan,
og litlu síðar stóð Óli aleinn á
hafnarbakkanum, glaður og bros-
andi á milli allra vörukassanna.
En nú sneri hann við og hélt
heimleiðis. Nú stóð vindurinn í
bakið, og nú varð allt auðveldara.
Nú gat hann líka heilsað hinu
nýja ári áhyggjulaus. Nú átti
hann Kát með réttu — og á morg-
un komu jólin, þá ætlaði hann að
binda merkið um háls hans. Eins
og hraustur sigurvegari hljóp nú
Óli heim. Hann var að vísu þreytt-
ur, en gleðin yfir unnum sigri
gerði honum þó heimförina létta.
H. J. M. endursagði.