Vorið - 01.03.1944, Síða 36

Vorið - 01.03.1944, Síða 36
32 V O R I Ð Pétur: „Hvað át ég þá í morgun?“ Kennslukonan: „Egg“. Pétur (fagnandi): „Nei! Þér getið skakkt, fröken. Ég fékk fisk í morgun, en egg í gaermorgun". Lygin er ætíð skaðleg, hvort sem hún er sögð með orðum eða gerð á annan hátt. Jón litli lá fárveikur í barnaveiki, svo að faðir hans varð að vitja læknis. Á leiðinni spyr hann dreng, sem Pétur hét, til vegar. Hann svarar engu, en bendir með hendinni á ranga leið. Mað- urinn, sem var ókunnugur, fór þá leið, sem honum var vísað á og lenti fyrir það í forarmýrum, varð að fara yfir á á vað- leysu og lenti sjálfur í lífsháska. Þó þótti honum töfin, fyrir stóran krók um nokkra klukkutíma verri, því að afleið- ingin varð sú, að þegar læknirinn kom til Jóns litla, var hann dáinn. I líkræðunni gat presturinn þess, að lygin væri orsök dauða þessa drengs. Þegar Pétur frétti þetta, grét hann sár- an og varð þunglyndur um tíma. Hann strengdi þess heit að vera sannorður alla ævi, og verða aldrei vísvitandi valdur að böli annarra. Páll litli: „Mamma! Fá börnin hirtingu fyrir það, sem þau gera ekki?“ Móðirin: „Nei, lambið mitt“. Páll litli: „Það er gott. Ég hef ekki lit- ið í kverið mitt í dag“. Tveir drengir voru að kíta. Pétur: „Ég veit vel, að þótt þú kallir fósturforeldra þína föður og móður, þá eru þau það ekki. Þú ert bara bjálfatet- urs tökubarn". Oskar: „Já, þess vegna er ég miklu betri en þú. Mamma mín og pabbi völdu mig úr mörgum börnum. En aumingja foreldrarnir þínir voru neyddir til að VORIÐ tímarit fyrir böm og unglinga. Koma út 4 hefti á ári, minnst 32 síður hvert hefti. Árgangurinn kostar kr. 5.00 og greiðist fyrir 1. maí. Útgefendur og ritstjórar: Hannes J Magnússon, Páls Briems- götu 20 Akureyri, og Eríkur Sigurösson, Hrafnagilsstr. 12, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. sitja með þig með alla heimskuna og óknyttina, þó að þau hefðu orðið lifandi fegin að losna við þig, ef þau hefðu getað“. Ráð til að komast átram í heiminum. 1. Æfðu þig í staðfestu, og jafnframt að hafa vald yfir geðshræringum þinum. 2. Vertu þrautseigur og þolinmóður. Láttu ekki áhugann dofna og eyddu aldrei tíma til óþarfa. 3. Farðu ætíð varlega með heilsuna og æfðu kraftana við erfiði. 4. Lítilsvirtu ekki smámuni, notaðu þá. Þeir draga sig saman, svo að til gagns verða. 5. Vertu áreiðanlegur í orðum, verkum og viðskiptum. Vertu vinavandur. Taktu eftir því, hvernig menn reyn- ast öðrum, og gleymdu ekki að reyn- ast vel sjálfur. Hjúkrunarkonan: , Þú hefur gleymt að þvo þér í morgun, drengur minn. Hvern- ig stendur á því?“ Páll litli: „I gær var ég í afmælisveizlu og kom svo seint heim, að ég gat ekki þvegið mér. Og í morgun vaknaði ég svo seint.“

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.