Vorið - 01.06.1944, Page 10
VORItí
SNORRI SIGFÚSSON:
Kaupstaðarferðin.
Oft hafði Jón litli á Gili dáðst
að pabba sínum, þegar hann stýrði
bátnum upp í lendinguna, fram
hjá skerjunum, sem brimið braut
á. Þá stóð hann á bakkanum og
horfði á bátinn, meðan hann klauf
öldurnar með ofsa hraða, svo að
sjórinn varð hvítur í kringum
hann. Og það var svo undur gam-
an að geta þá hlaupið niður í f jör-
una, kysst pabba og boðið hann
velkominn að landi.
Og þegar búið var að kasta
fiskinum úr bátnum upp í fjöruna
og setja, gekk Jón við hlið pabba
síns heim — og þar var þeim jafn-
an fagnað af mömmu og systkina-
hóp.
Sigurður á Gili var orðlagður
sjómaður. Hann var greindur og
gætinn, og svo var sagt, að enginn
væri honum snjallari við að stýra
bát í ólgusjó og brimi. Og allir
vissu, að lendingin á Gili var afar
slæm og hættuleg, vegna skerja og
grynninga allt í kringum hana. Og
ef þeim, sem ætluðu sér að lenda
þar í brimi, fataðist stjórnin, var
dauðinn vís. En Sigurði skeikaði
aldrei stjórnin, — nema einu sinni.
Og þá sögu ætla ég að segja ykkur.
Það var venja Sigurðar á Gili
að fara í kaupstað á bátnum sín-
um einu sinni á vetri. Og þegar
Jón var 12 ára, fékk hann að fara
með. Alls voru 6 á bátnum, 4 há-
setar, Sigurður formaður og Jón
litli sá sjötti. „Skjöldur“ var ára-
bátur. Engar vélar voru þá til í
neinum bát og þekktust ekki þá.
Ferðin gekk vel í kaupstaðinn,
og Jón litli var himinlifandi af
kæti yfir þvi að fá að vera með.
„Það verður einhvern tíma gagn
að honum Nonna litla við árina,“
sögðu hásetarnir. Þetta var ný
uppörvun fyrir Jón litla, og hann
herti róðurinn sem mest hann
mátti. „En ég er viss um, að ég
get aldrei stýrt bát eins vel og
hann pabbi minn,“ sagði hann, í
auðmjúkum tón.
„Og ekki er nú gott að segja
um það,“ sagði Pétur háseti,
„þetta lærist með aldrinum, ef
menn nenna bara að taka eftir og
gæta sín. Enginn veit að hvaða
gagni barn verður.“
Nú var komið í kaupstaðinn og
byrjað að verzla. Margt var keypt,
bæði af matvöru og ýmsu dóti, og
var allt borið jafnóðum út í
„Skjöld“, sem lá við litla bryggju
rétt hjá búðinni.
Jón litli fékk einnig að kaupa
ýmislegt smávegis, og hann hugs-
aði til þess með ósegjanlegri til-
hlökkun, hve gaman yrði að koma