Vorið - 01.06.1944, Side 21

Vorið - 01.06.1944, Side 21
VORIÐ 51 sér fyrir úrbótum? Það eruð þið, sem nú eruð að vaxa upp við betri lífsskilyrði en flestar eða allar aðr- ar kynslóðir íslenzkrar æsku hafa átt að fagna. Þið, sem gangið í góða skóla, þið, sem njótið góðra blaða, bóka og tímarita, auk hollra áhrifa æskulýðsfélaga; það eruð þið, sem verðið að temja ykkur að skoða allt lágt og óheiðarlegt neð- an við virðingu ykkar. Við skulum taka dæmi. Það er ósamboðið virð- ingu skólaæskunnar að notfæra sér, að búðarfólk gefur stundum ofmikið til baka af gáleysi í flýti. Takir þú, lesandi minn, eftir því, þá áttu auðvitað að vekja athygli hlutaðeiganda á mistökunum í kyrrþey og skila peningunum, sem þér voru ofborgaðir, í stað þess að hælast um við félaga þína. Það er neðan við virðingu þína. Ég tala nú ekki um, ef reynt er að nota tækifærin til að ná hlutum úr búð- um, án þess að borga þá. Það er réttu nafni nefnt þjóinaður. Það er líka fyrir neðan virðingu ykkar, að skila eigi því, er þið finnið, ef unnt er að hafa upp á eigandan- um. Ég tala nú ekki um, ef það kynni að henda einhvern að rífa merki af fundnum hlut, eða að gera hann óþekkjanlegan í þeim til- gangi að geta notað hann hættu- lítið. Það er bæði óskilvísi og þjótnaður. Og svo að síðustu þetta til barnanna, sem ganga í skóla: Hugsið vandlega út í það, hve af- skaplega það er langt neðan við virðingu ykkar, ef eitthvert barn notar útgönguleyfi, sem því er gef- ið úr kennslustund, til að leita í kápuvösum í fatageymslunni að aurum og sælgæti—tilaðhnupla! Ljótt, ljótt! Þá færist íslenzkri æsku öðruvísi en rússnesku ekkj- unni. Mikill væri munurinn og ís- landi sannarlega til lítillar sæmd- ar. „Hugsa um það helzt og fremst, sem heiðurinn má næra“. Leiðréttingar: í kvæðinu Systkinarabb hafði fallið burtu orð úr 2. línu síðasta erindis, og á hendingin að vera svona: Lízt þér ekki skriftin vera sæmilega fín. — Þá hafa þau leiðinlegu mistök orðið, að á káp- una hefur misprentast 9. árgangur, en á að vera 10. árgangur. Þetta eru kaupend- ur beðnir að leiðrétta. Kaupendur úti á landi eru beðnir að senda greiðslu til Hannesar J. Magnús- sonar, en kaupendur á Akureyri greiði til Eiríks Sigurðssonar. KAUPENDUR! Munið að gjalddagi „Vorsins" er 1. maí. ---o--- Pétur leit í „Kvöldblaðið“ og las þar andlátsfregn sína, sér til mikillar skelf- ingar. Hann flýtti sér að síma til Hans vinar síns og sagði: ,,Hefur þú séð það í blaðinu, að ég er dauður?“ „Já,“ sagði Hans og kom fát á hann, — „en hvaðan talarðu?" -----o----- Barnfóstran: „Barnið var allt í einu horfið." Húsfreyjan: „Því í ósköpunum leitað- irðu ekki til lögregluþjóns?" Barnfóstran: „Nú, ég var hjá einum allan tímann.“

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.