Vorið - 01.06.1944, Page 25

Vorið - 01.06.1944, Page 25
VORIÐ 55 Konan þakkaði fyrir ráðlegg- ingarnar og lofaði, að hún skyldi gæta drengsins. En hún var nú ekki alveg sannfærð um, að það væri hættulaust að hafa opna glugga, því að dragsúgurinn or- sakaði venjulega kvef. Er hún hafði gengið stundar- korn, sá hún auglýsingu á húsi og þar stóð: Vatn læknir. Þar gengu þau inn. í þessari biðstofu var glugginn líka opinn. Eftir litla stund komu þau inn til læknisins. Hann tók á móti þeim brosandi. Konan skýrði honum einnig frá, hve drengurinn væri heilsulaus og táplítill. „Þess vegna baða ég hann alltaf úr volgu vatni,“ sagði hún. „Ég skal lofa þér að heyra mitt álit á, hvað á að gera, til þess að drengurinn taki framförum,“ sagði læknirinn. „A morgnana á hann að bleyta þurrku og nudda skrokkinn með henni. Svo þerrar hann með þurri þurrku á eftir og nuddar vel. Eftir þetta fær hann góða matar- lyst og á að fá góðan morgunverð. Þegar hann kemur í skólann, verð- ur hann léttur og kátur og á auð- velt með að fylgjast með við nám- ið. Höndunum verður hann að halda hreinum. Ekki má hann gleyma að hreinsa tennurnar, einu sinni hafði hann tannpínu og þurfti til tannlæknisins. A sumrin á hann að baða sig í sjónum. I fyrsta skipti á hann rétt að fara ofan í, í annað skipti má hann vera dálitla stund niðri í, og svo smálengist tíminn. Þá fer hann að læra að synda. Sundið er ágæt íþrótt. Það eykur krafta vöðvanna og víkkar út brjóstkassann. A kvöldin þvær hann sér aftur og burstar tennurnar. Svo háttar hann snemma, því að börn frá 7— 9 ára eiga að sofa að minnsta kosti 12 stundir, 10 ára börn 11 Vz stund. 11 stundir er hæfilegt fyrir 13 ára börn og lOVá stund fyrir 14 ára börn. Stúlkur á aldrinum 11—14 ára þurfa að sofa hálfri stund lengur. Svona hef ég farið með strákinn minn og hann hefur alltaf verið heilbrigður. Farðu eins með þinn strák, og þá mun honum batna. Vatnið er ódýrt meðal.“ Konan þakkaði fyrir og fór. En ekki var hún fullviss um, að allt þetta væri rétt. En þegar hún sá auglýsingu hjá lækningastofu Sól- ar læknis, fór hún þar inn. Hér voru allir gluggar opnir og sólin skein inn. Sól læknir brosti svo blíðlega, að drengurinn gekk til hans og heilsaði honum. Hann var ekkert hræddur við þennan lækni. Læknirinn talaði um sólbað og hve gagnlegt sólskinið væri. „Er drengurinn vanur að fá sólbað?“ „Nei,“ var svarað. „Jæja, en það er mjög hollt. Það styrkir beinabygginguna, og hefir áhrif á f jörefnin. Ekki er vert að vera lengur en 5 mínútur í sól- baði í fyrsta sinn, en svo má lengja tímann. Ef sólskinið er mjög heitt, er betra að vera á hreyfingu. Sólin gerir okkur brún á litinn. Fólk á

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.