Vorið - 01.06.1944, Side 27

Vorið - 01.06.1944, Side 27
VORIÐ 57 geyma það til morguns. Myndir þú vilja fara að Hnjúki með mér? Fríða (æst): Til hvers ertu að tala um það. Húsmóðir mín slepp- ir mér ekki. Ég er búin að segja þér, að ég þoli ykkur ekki, þessi lífsglöðu sveitabörn. Lilly: Svo-nú-þá. Annars kem ég frá því að tala við húsmóður þína. Hún er á förum norður í land með börnin sín og þarf þín ekki með á meðan. Hún sagði, að ég mætti ráða þig að Hnjúki í sumar. Fríða (sprettur á fætur): Ef þetta er satt, þá ert þú engill. — (Kyssir Lilly). Nú er ég svo glöð. Við skulum syngja og dansa: „Siggi var úti. . . .“ o. s. frv. (Barið að dyrum). Fríða og Lilly: Kom inn. Sveirvn (kemur inn): Góðan daginn. Ég kom til að kveðja ykkur. Lilly: Komdu þá fyrst sæll. Fríða: Hvert ert þú að fara? Sveinn: Ætli ég verði ekki að fara í sveitina. Þó að mér þyki það alls ekki gott. Fríða (undrandi): Ekki gott að fara í sveit! Sveinn: Ég vildi heldur vera sendill eða blaðasali í sumar, þá gæti ég keypt mér „cigarettur“ og sælgæti og farið í bíó! Lilly: Ef þú ert farinn að reykja, þá verður nú bara að koma þér í sveit, og það undir eins. Sveinn: í fyrra var nú með mér stelpa að Hnjúki. Hún bæði stal og reykti, var það þó í sveit. Friða og Lilly (undrandi): — Hnjúki? Sveinn: Já, ég sagði að Hnjúki. En hvað gengur eiginlega að ykk- ur? Lilly: Við verðum báðar á Hnjúki í sumar. Sveirm: Þá verður nú ekki leið- inlegt þar í sumar. Því að alltaf er nú gott að vera í góðum félags- skap. Fríða (stríðin): En hvernig fer þá með sælgætiskaupin, reyking- arnar, bíóin og allt hitt, sem þú varst að mæla bót. Sveinn: Ég hef aldrei stolið og lítið reykt. Ég hlakka til að koma á hestbak og hitta fólkið, sem ég var hjá í fyrra. Lilly: Ég hlakka til að tína ber og ganga í skóginn. Sveinn: Þú þarft nú víst nokk- uð langt frá Hnjúki, ef þú ætlar í skógargöngu. Ég fór í fyrra um alla landareignina og sá reyndar hvergi skóg. Fríða: Ég hlakka mest til að sjá litlu lömbin. Lilly: Og ég kálfana. Sveinn: Ég hlakka mest til að sjá veturgamalt tryppi, sem var folald í fyrra. Lilly: Nú, var þá veturgamalt tryppi folald í fyrra, alltaf ertu sleipur í reikningnum. Sveinn: Þetta er nú bara að snúa út úr og látast vera fyndinn. Ég hef heyrt, að þeir, sem halda

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.