Vorið - 01.06.1944, Page 31

Vorið - 01.06.1944, Page 31
Skátar stundir aflögu til slíkra hluta, eins og þér vitið. Ég er smeykur um, að þér gagnrýnið kvæðið „Játning farmannsins“. Ég orti það að mestu leyti eftir sögu, sem birtist í „Vorinu11 fyrir skömmu." Ég læt svo lesendur „Vorsins“ dæma kvæði þessa unga manns, en ekki þætti mér ólíklegt, að hann ætti eftir að yrkja mörg kvæði enn. Hann er afdalabarn þessi drengur, en þótt afdalabörnin fari margs á mis, njóta þau þó eins, sem er þeim dýrmætara en flest annað í uppvextinum, en það er kyrrð og friður, næði til að hugsa, næði til að vaxa og þroskast við barm hinnar lifandi náttúru. Við þessi dýrmætu skilyrði hafa flest okkar skáld alizt upp. Hitt kvæðið birtist væntanlega í næsta hefti. SUMARDAGURINN FYRSTI. Þetta nafn hefur ætíð vakið gleði og tilhlökkun í hjörtum Is- lendinga. En hvers vegna? Það er vegna þess, að veturnir á Islandi eru kaldir og langir. Með vorinu koma fuglarnir, sem flúðu kalda veturinn, þá grænkar jörðin og blómin stinga upp kollinum. En ekki er nú samt alltaf svona sumarlegt á sumardaginn fyrsta. Stundum er allt alþakið snjó, eng- inn fugl kominn, og ekkert bendir á, að vorið sé í nánd. En engu að síður er þessi dagur í miklum metum hér á landi, því að hvernig, sem á stendur, gefur hann þjóðinni nýja von og krafta í baráttunni við myrkur og kulda. H. J. M. Lóa.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.