Vorið - 01.12.1945, Blaðsíða 13

Vorið - 01.12.1945, Blaðsíða 13
VORIÐ 107 kirkjan var í hinum enda þorpsins, °g luis slökkviliðsstjórans var enn lengi-a í burtu. Ef hann ætti að fara þangað, myndi það taka að minnsta kosti Itálfa klukkustund og ef til viH enn lengri tíma að kveðja brunaliðið á vettvang. En hann-gat ekki betur séð en að kofajrakið stæði allt í björu báli. Lars höfðu nálega falli/t hendur af skelfingu, og honum varð hugsað til vesalings gömlu konunnar, senr ef til vill var að verða logunum að bráð. „Eldur!“ kallaði hann og hljóp enn eins og fætnr toguðu. „Kofinn hennar Mettu Katrínar er að hrenna!" Húsið lians Jörgens skósmiðs var rétt í leiðinni, og þegar hann hljóp kam hjá, kallaði hann inn um gluggann: „Eldur, eldur! Húsið hennar Mettu Katrínar er að brenna!" Síðan hljóp hann áfram eins og keturnir gátu borið hann. Loksins stóð hann rennandi sveittur við útidyrnar. Hann íieyrði sriarka í eldinum á þakinu og neist- unum rigndi í allar áttir. Þrátt fyr- lr frosthcirkuna var liitinn svo mik- Hl hérna, að hann sveið í andlitið. Eitt andartak stóð hann þarna ráðalaus. Hvað átti hann að gera? Hvað gat hann gert? Hann vissi það ekki, en hitt vissí hann, að það væri hörmulegt, ef gamla konan liði kvalafullan dauða þarna inni örfá skref frá honum, án þess að nokkur gerði tilraun með að rétta henni hjálparhönd. Lars eyddi ekki nema örfáum sekúntum í þessi heilabrot. Hann hafði tekið eftir því, að minni eld- ur var í austurendanum og eftir andartak var hann kominn þangað að stafnglugganum. Hann barði harkalega með krepptum hnefanum á rúðuna og kallaði: „Opnaðu, Metta Katrín! Metta Katrín opnaði gluggann!“ En enginn svaraði, og það varð ekki vart við nokkurt lífsmark þarna inni. Hann þreif þá í skyndi af sér húfuna, vafði henni um krepptan hnefann og mölvaði aðra rúðuna. Því næst seildist hann til glugga- króksins og lauk upp glugganum. Þegar glugginn opnaðist, hentist eitthvað rnjúkt og loðið út um gluggann, rétt við andlit hans, og hann heyrði vesældarlegt mjálm. Þetta var kisa, sem fór nri að nudda sér vinalega og biðjandi upp við fætur hans. Þetta benti til, að hann hefði hitt á svefnherbergi Mettu Katrín- ar, og á svipstundu hafði hann lyft sér upp í gluggakistuna. Væntan- lega hefði hún köttinn hjá sér á næturnar. En það var einkennilegt, að eldurinn virtist hafa komið upp í þeim hluta kofans, sem ekki var búið í, en aðeins eldiviðargeymsla. Gamla konan hafði ef til vill farið ógætilega með eldspýtu eða kerta-

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.