Vorið - 01.12.1945, Blaðsíða 22
116 '
VORIÐ
Hann læddist hljóðlega burtu nótt
eina og gekk viðstöðulaust í marga
sólarhringa, þangað til hann loksins
náði fundi keisarans. En það var
einmitt í byrjun hinnar heilögu
páskaviku.
í augsýn hirðarinnar fleygði
hann sér fyrir fætur keisarans og
grátbað um fyrirgefningu.
Keisarinn komst við af iðrun
hans og mælti:
„Megi gUð í himninum fyrirgefa
mér syndir mínar, eins og ég fyrir-
gef þér þínar."
En hinn óhamingjusami maður
gat ekki fyrirgefið sjálfum sér.
Minningarnar um illvirki hans á-
sóttu hann dag og nótt. Hann veikt-
ist og dó skömmu seinna í sjúkra-
húsi einu.
í dögun þann sama morgun
dreymdi lækninn í sjúkrahúsinu,
sem hafði vakað yfir sjúklingnum,
þangað til hann andaðist, að illir
andar og englar berðust um sál
lians. Höfðingi hinna vondu anda
liéit á metaskálum í ltendi sér og
lagði öll illvirki 'liins framliðna í
aðra skálina og sýndi englunum
með háðsbrosi, hvernig hún varð
þyngri og þyngri og féll neðar og
neðar, vegna þess að ekki var hægt
að koma með eitt einasta góðverk
sem hann hafði unnið, til þess að
leggja í liina skálina. Þá tók engill-
inn sveitadúk Iiins framliðna, sem
var margvættur í heitum iðrunar-
tárum, og lagði hann í tómu skál-
ina. Og nú brá svo undarlega við,
að skálin fór að falla lengra og
lengra niður, en hinir illu andar
hörfuðu há og nístu tönnum af
bræði. En í sama bili vaknaði lækn-
irinn og sá fyrstu geisla morgunsól-
arinnar skína á ásjónu hins látna
manns, sem ljómaði af heilögum
Iriði.
Þannig er sagan af ræningjanum,
sem iðraðist við ylinn frá kærleiks-
ríkum bænum og hlýjurn hugsun-
um.
(Lauslega )>ý11 úr bókinni Selvopdragelse).
H. ]. M.
ORÐAÞRAUT.
áma.
dik.
ala.
auð.
lin.
Framan við hvert þessara orða á
að setja einn staf, svo að ný orð
myndist. Séu þeir stafir lesnir ofan
frá og niður eftir, myndast nýtt
orð. Það er nafn á fugli.
FUGLANÖFN.
N-----u------1-. L----i-: i.
K-----k —. H-----f —. D------.
F-----k — i. S---i------. Ö--.
K---------ó-------. R-------a.
S-----k-----. L-----. T------d-
---. H----r —.
Stgr. Reynir Valdimarsson
(12 ára), Blönduósi.