Vorið - 01.03.1949, Blaðsíða 20
16
V O R I Ð
ÁSKELL SNORRASON
tónskdld
<“S*S
í tileíni af sextugs afmæli Áskels
Snorrasonar, tónskálds, þann 5. des.
s. 1., fór ég dag einn heim til hans
til að fá hann til að svara nokkrum
spurningum til birtingar í Vorinu.
Ég lít svo á, að barnablöð eigi að
glæða fagrar listir hjá börnunum
og kynna þeim listamenn.
Þegar ég kom í anddyrið hjá Ás-
keli, heyrði ég, að einhver var að
spila á orgel inni í stofunni. Bráð-
lega kom hann til dyra og tók mér
með Sinni alkunnu ljúfmennsku.
Kom þá í ljós, að ég hafði sótt vel
að honum, því að hann var að semja
lag við kvæðið „Hólaklappir" eftir
Huldu. En sá staður er í Laxárdal
í' átthögum Áskels.
Sílaeyju, hefðir þú ekki fengið
að koma til Vesturlandsins.
BIRGIR: Ne-ei. Heyrðu mamma!
Ég verð að skrifa Rut og þakka
henni fyrir, að hún minnti mig á
kyrtilinn hans Marteins helga.
T j a 1 d i ð.
{Lausl. Þýtt. J. ].).
Hvaðan ertu œttaður?
Ég er fæddur á Öndólfsstöðum í
Reykjadal Jrann 5. des. 1888. For-
eldrar mínir voru Aðalbjörg Jónas-
dóttir og Snorri Jónsson frá Þverá
í Laxárdal. Var faðir minn bróðir
Benedikts á Auðnum, og vorum við
Hulda skáldkona því bræðrabörn.
En móðir mín var dóttir Jónasar
Jóhannessonar frá Laxamýri, föður-
bróður Jóhanns Sigurjónssonar.
Hvað getur þú sagt okkur frd
bernsku þinni?
Ég hafði snemma gaman af að
lesa. Ég las allar bækur, sem ég náði
til. Þá hafði ég snemma gaman af
söng. Foreldrar mínir voru bæði