Vorið - 01.03.1949, Blaðsíða 30
26
VORIÐ
í sál barnanna. Það eru þessir eigin-
leikar, sem gert ha£a bækur Hann-
esar svo vinsælar.
Barnablaðið Æskan hefur gefið
bókina út, og er liún sérstaklega
vönduð að öllum frágangi. í henni
eru tíu myndir eftir Þórdísi
Tryggvadóttur, Magnússonar, prýð-
isvel gerðar.
Adcla lærir aÖ syna eftir Jennu og
Hrei&ar kennara á Akureyri, er
þriðja bókin af Öddusögunum.
Þessar bækur hafa verið mjög vin-
sælar hjá yngri börnum. Efnið er
við þeirra hæfi og frásögnin létt og
lipur. Sagan af Öddu, munaðar-
lausu stúlkunni, hefur orðið mörgu
barni hugstæð. Bókin er prýdd
mörgum fallegum myndum eftir
Þórdísi Tryggvadóttur. Barnablað-
ið „Æskan“ gaf bókina út.
Skólarím heitir nýstárleg barna-
bók eftir Kára Tryggvason kennara
og nemendur lians. I bókinni eru
kvæði og lausavísur, sem orðið hafa
til í barnaskólanum hjá Kára vet-
urinn 1946—47. En Kári, sem er
skáld gott, hefur glætt rímhneigð
barnanna og kennt þeim að yrkja. í
formála getur höfundur þess, að
hann sé þess fullviss, að ljóðagerðin
liafi þroskandi og hvetjandi áhrif á
börnin sjálf. Bókin er prýdd mörg-
um góðum myndum eftir Odd
Björnsson, 15 ára dreng.
Það er freistandi að taka hér upp
eitthvað af Ijóðum barnanna, en
þessar vísur verða þó að nægja:
ÆRNAR MÍNAR.
Svala mín er svört að lit,
Svölu nafnið ber hún.
Löngum hefur hún lítið vit,
löt urn völlinn fer hún.
Rönd er bæði gæf og góð,
ég gef henni brauð að smakka.
Hún er feit og fjarska móð,
en fljót að þekkja krakka.
Hildur Káradóttir.
Bifurinn hann byggir sér
býsna góða kofa.
Inn í þá hann alltaf fer,
er hann þarf að sofa.
Baldur Sigurðsson.
Vorið kemur, vetur fer,
víður himinn blánar.
Skemmtilegt og ágætt er
alltaf þegar hlánar.
Hrafnhildur Þórólfsdóttir.
Hér birtist nýjung í skólastarfi
og er þetta því athyglisverð bók.
Eflaust væri ástæða til að gera
rneira að því, en gert er, að lofa
börnum að læra að yrkja, kynna sér
rímreglur og glæða skilning þeirra
á fögrum ljóðum. Bókmenntirnar
eru okkar dýrmætasti arfur. íslenzk
Ijóðlist er frábær um margt. Þessi
list má ekki glatast. Og hvað er þá